blaðið - 29.07.2006, Qupperneq 38
38
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 blaðið
HVAÐ FINNST ÞER?
Borgar Borgar skatta?
Það cr tnilli niín og sknttsins og
gm
W A 'A
folk@bladid.net
kenuir engnm öðrum við.
Borgar Þór Einarssoii,
formaður SUS.
Samband ungra sjálfstæðismanna stóð fyrir að-
gerðum í afgreiðslu Skattstjórans i Reykjavik í gær
sem miðuðu að þvi að hindra aðgang almennings
að álagningarskrám sem þar lágu frammi.
Smáborgarinn
AÐ SKÍTA Á SIG
Smáborgarinn var að lesa
hugleiðingar bandaríska rithöfund-
arins Kurt Vonnegut en hann er
orðinn gamall maður. Þrátt fyrir
það er hann enn næmur á veik-
leika manna og þjóðfélaga. Heiti
bókarinnar má lauslega þýða
sem: Maður án lands (Vonnegut
finnur sig nefnilega ekki í Banda-
ríkjum Bush yngri).
Vonnegut barðist í seinni heims-
styrjöldinni og var stríðsfangi
í Dresden þegar Bretar gerðu
loftárás á borgina. Um þetta
tímabil ævi sinnarfjallar Vonnegut
í bókinni Slaucjhterhouse 5. Bókin
er áhrifamikil a þann máta að þar
reynir Vonnegut að lýsa því sem
ekki er hægt að lýsa, að koma
skelfilegri reynslu í orð. Slaughter-
house 5 fjallar um hvernig mann-
eskjur nota húmor til að breiða
yfir hörmungar lífsins, hvernig
Smáborgarinn sá fyrir
mörgum árum myndina
Björgun óbreytts Ryans.
manneskjur bregðast oft órökrétt
og tilviljanakennt við aðstæðum.
í hugleiðingum sínum er Von-
negut svo sem ekki að feta nýjar
slóðir, það sem hann bendir á
„vissu“ flestir. Hann lýsir undrun
sinni á því að þetta ástand dags-
ins í dag í Ameríku hafi skapast.
Hann agnúast út í tóbaksfram-
leiðendur fyrir að hafa ekki getað
kálað sér áður en Ameríku yrði
stjórnað af mönnum sem heita
Bush, Dick og Colon (Colon
er reyndar ekki inni í myndinni
lengur). Hugleiðingarnar setur Von-
negut fram á sinn kaldhæðnislega
hátt og hann reykir víst enn.
Eðlilega hefur seinni heimsstyrj-
öldin verið Vonnegut hugleikin og
vísanir í hana má sjá víða í verkum
hans. Smáborgarinn sá fyrir
mörgum árum myndina Björgun
óbreytts Ryans. Byrjunaratriðið
er eitt það magnaðasta sem sést
hefur á hvíta tjaldinu þar sem
allt skelfur, líkamar eru brytjaðir
niður í kúlnahríð, menn missa
stjórn á sér, skíta á sig og grenja.
Síðan hélt myndin áfram og varð
týpísk bandarísk vælumynd með
tilheyrandi fiðluvæmni en byrjunin
stendur fyrir sínu.
Kurt Vonnegut sá ekki hóp
hugrakkra hermanna berjast í
seinni heimsstyrjöldinni heldur
hóp barna sem pissuðu og skitu á
sig af hræðslu. Fyrir Vonnegut er
skítur einfaldlega skítur.
Mitt annað heimili
Gerður G. Bjarklind
eyðir helginni upp í
sumarbústað enda
segir hún að hann sé
nánasthennarannað
heimili. Bústaðurinn
er i Bjarkarborgum i
Grímsnesi og hefur
verið þar í 16 ár.
Sumarbústaðurinn er besta bilunin
Gerður G. Bjarklind útvarpskona
ætlar að eyða helginni í sumarbú-
staðnum ásamt manni sínum enda
segir hún að sumarbústaðurinn
sé besta bilunin sem komið hefur
fyrir hana. „Ég ætla að hafa það
huggulegt, njóta þess að vera til
og lesa bækur. Maður vindur ofan
af sér hér enda líður okkur svo vel
hérna. Við sofum líka svo vel í nátt-
úrunni, við sofnum eins og börn
á kvöldin og vöknum eitilhress á
morgnana. Þetta er yndislegt í alla
staði. Það er líka svo gott fólk hérna
í nágrenninu, það eru allir til í að
hjálpa manni og enginn abbast upp
á mann eða neitt svoleiðis. Þetta er
gott samfélag.“
Erum sem minnst á
vegum landsins
Gerður segist oft fara upp í sumar-
bústað enda sé hún ekkert að vinna
utan þess að vera með útvarpsþátt
vikulega. „Við reynum að fara eins oft
og við getum. Auðvitað þurfum við
að sinna öðru, fara út á land í ferðir til
vina og ættingja og svona nokkuð. En
ég reyni að vera sem minnst á vegum
landsins þegar ég er í fríi. Ef það er
eitthvað sem við förum hér í nágrenni
þá reynum við að fara á Skálholtstón-
leika yfir sumarið."
Mitt annað heimili
Sumarbústaður Gerðar er í Bjarkar-
borgum í Grímsnesi sem Gerður segir
að sé yndislegur staður. Það eru sex-
tán ár síðan bústaðurinn var fluttur
í Grímsnesið og Gerður viðurkennir
fúslega að þetta sé í raun annað heim-
ili þeirra hjónakorna. „Við reynum
að vera hérna yfir veturna líka. Við
förum oft hingað um helgar yfir vet-
urinn, fáum okkur kaffi og gistum
stundum þegar svoleiðis vill til. Við
erum það heppin að vera tiltölulega
nálægt veginum og þurfum því ekk-
ert að kjaga mikið ef það er snjór. Það
er mikill gróður í kringum bústaðinn
enda höfum við gróðursett heilmikið
hér. Upphaflega var hér bara mói og
mýri,“ segir Gerður að lokum.
svanhvit@bladid.net
HEYRST HEFUR...
Steinunn V. Óskarsdóttir,
fyrrverandi borgarstjóri
í Reykjavík, upplýsir það við
Fréttablaðið í gær, að hún sé
að hugleiða þingframboð að
ári, en vetrinum hyggst hún
verja í meistaranám í opin-
berri stjórnsýslu við Háskóla
Islands. Talið er tímaspursmál
hvenær Stefán Jón Hafstein
gefi sitt framboð í
skyn. Segja sumir
að hann sé í raun
búinn að því. Blaða-
grein hans um
hugmyndir, sem
Margrét S. Björnsdóttir setti
nýlega fram um samstarfskosti
Samfylkingarinnar, segja þeir
einfaldlega hafa verið merki
um að hann hyggist snúa sér
alfarið að landsmálunum...
*
Ur olíubransanum heyrist
að framsóknarmenn hafi
- sem svo oft áður - gengið á
fund forráðamanna Olíufélags-
ins Esso fyrir sveitarstjórna-
kosningarnar og beðið um
fjárstuðning. Viðtökurnar
munu hins vegar hafa verið
nokkuð dræmar. Esso gaf að
vísu einhverja peninga en ekki í
neinni líkingu við það, sem tíðk-
aðist fyrr á árum. Æ sér gjöf til
gjalda eða þannig, en strax eftir
kosningar sagði útgerðarfyrir-
tækið Skinney-Þinganes upp
samningi sinum við Esso...
Hinn 17. ágúst fer fram hin
árlega Tom Selleck keppni
í vínstúkunni Sirkus við Klapp-
arstíg. Þar keppa karlmenn í
skeggvexti en þrjú glæsilegustu
yfirvaraskegg landsins verða
verðlaunuð. Að vanda munu
þrír landsfrægir
einstaklingar skipa
dómnefnd sem velur,
undir handleiðslu
fagmanna, það
yfirvaraskegg sem
er eiganda sínum til mestrar
prýði og þykir bera af í þokka
og útgeislun.
andres.magnusson@bladid.net
Á móti Þessar mættu til að mótmæla aðgerðum israelsmanna við bandaríska sendiráðiö. Þær ásamt fleirum sýndu andstöðu sína, en
það hver með sinum hætti.
Iiras §r L#ra$
by Jim Unger
Afhverju gefur þú hundinum aldrei að borða?
10-5
© Jlm Uriger/dist. by Unitecl Medla, 2001