blaðið - 04.08.2006, Síða 2
2IFRÉTTIR
“FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 2006 blafti6
Vershmarmannahelgin:
VR heldur ekki
upp á daginn
VR
VR heldur ekki upp á frídag
verslunarmanna á sama hátt í ár
og verið hefur undanfarin ár.
ÁvefVR
kemur fram
að peningar
sem ella færu
í að borga
fyrir fjölskylduskemmtun í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
eða golfmót þessa helgi fari þess
í stað í að efla sjóði félagsmanna.
VR stofnaði varasjóð fyrr á
árinu og var markmiðið að auka
jafnræði og frelsi félagsmanna
til að ráðstafa inneignum sínum
í sjóðum félagsins.
Blaðið:
Næsta blað
á miðvikudag
Vegna verslunarmannahelgar-
innar er blaðið í dag helgarútgáfa
Blaðsins. Næsta tölublað kemur
út næsta miðvikudag.
Tugþúsundir á faraldsfæti:
Besta veðrið verður
á norðausturlandi
Rigning á köflum um mest allt landið ■ Stíft eftirlit umferðarlögreglu
■ Mikið að gera á Reykjavíkurflugvelli og BSÍ
Otlit er fyrir að rigna muni á lands-
menn um verslunarmannahelgina.
Því má búast við að margir þeirra
fjölmörgu einstaklinga sem leggja
land undir fót þessa miklu ferðahelgi
eigi eftir að blotna nokkuð áður en
upp er staðið.
Veðurstofan spáir því að verði skýjað
og rigning á köflum um mest allt
landið um helgina. „Bjartast verður
á Norður- og Norðausturlandi, en
það mun enginn losna alveg við rign-
inguna," segir Kristin Hermanns-
dóttir, veðurfræðingur.
Kristín segir það þó bót í máli að
það verði ekki mjög kalt í dag og á
NÝR VALKÖSTIJK Á
transport'’%%
toll- og flutningsmiðlun ehf
Fiskislóð 26 • 101 Reykjavík • Sími: 578 4600
www.transport.is • transport@transport.is
Frábær í
Diskurinn Ómar lands og þjóðar er frabær til
morgun. „Á sunnudaginn verður
svo vestlæg átt og kólnandi veður.
Blautt verður vestan til en léttir til
fyrir austan. Á mánudaginn mun
svo aftur birta til þegar fólk er að
taka saman og heldur heim á leið.“
Inga Birna Ragnarsdóttir, sölu- og
markaðsfulltrúi Flugfélags Islands,
sagði í gær að flugið hefði gengið
vel og vonaðist til að veðrið myndi
ekki setja strik í reikninginn í dag
svo að ekki þurfi að fresta vélum til
Vestmannaeyja. I gær voru átta flug
til Vestmannaeyja, en sautján í dag.
„Þetta er náttúrulega margfalt fleiri
flug en á venjulegum degi, en ég tel
að heildarframboð sæta sé minna í
ár en í fyrra.“
Sömu sögu er að segja af BSl. „Föstu-
dagurinn fyrir verslunarmanna-
helgi er yfirleitt þyngsti dagurinn
á BSf,“ segir Svanhvít Helga Rún-
arsdóttir, aðstoðarvaktstjóri hjá
Kynnisferðum á BSl. „Mesta traf-
fíkin er norður til Akureyrar og til
Vestmannaeyja þar sem fólk tekur
rútur ýmist á Bakka eða til Þorláks-
hafnar. Svo eru ýmsir sem eru að
fara í þessar hefðbundnu dagsferðir
hjá okkur eins og venjulega. Við
reiknum með að þetta muni ganga
greiðlega fyrir sig, en þetta hefur
gengið mjög vel það sem af er.“
„Við verðum með stíft umferðareft-
irlit, bæði á Suðurlandsvegi og á
Vesturlandsvegi, og verðum til taks
ef eitthvað kemur upp á,“ segir Guð-
brandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri
umferðardeildar lögreglunnar í
Reykjavík.
„Við munum fylgjast með umferð-
inni, sjá til þess að ökutæki séu í
lagi, á löglegum hraða og standi
ekki í ógætilegum framúrakstri. Þá
munum við fylgjast vel með að allir
séu með beltin spennt.“
Guðbrandursegirvegaframkvæmdir
hafa áhrif á umferðina út úr bænum.
„Framkvæmdir standa meðal ann-
ars yfir á gatnamótum Vesturlands-
vegar og Suðurlandsvegar, auk fram-
kvæmda í Mosfellsbæ. Við biðjum
því fólk um að sýna þolinmæði gagn-
vart samborgaranum og brosa.“
Lögreglan í Reykjavík reiknar með
miklum töfum seinni part dags,
þegar umferðin er sem mest og að
á mánudeginum verði bíll við bíl
alveg upp fyrir Hvalfjarðargöng.
„Allar helgar yfir sumartímann eru
miklar umferðarhelgar, en verslun-
armannahelgin er öðrum meiri. Lög-
reglan í Reykjavík á í góðu samstarfi
við önnur lögregluumdæmi, og við
beinum því til almennings að vera
með beltin spennt, keyra eftir að-
stæðum og gildandi hámarkshraða,
standa ekki í ógætilegum framúr-
akstri og keyra ekki undir áhrifum
áfengis,“ segir Guðbrandur.
bladiö==
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 - www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
51Q 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
51Q 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Á förnum vegi
Hvert ferðu
um verslunar-
mannahelgina?
Júlía Alexandersdóttir blaðamaður
„Ég fer kannski í sumarbústað annars
verð ég í bænum.“
Dóra Pálsdóttir starfsmaður
Alþingis
„Ég fer ekki neitt. Verð bara heima."
Anna Björk Jónsdóttir
„Ég verð í bænum en fer
á Innipúkann."
Arnar Þór Úlfarsson iðnaðarmaður
„Það er óákveðið en yfirleitt fer
ég ekkert."
Sigurbjörg Guðnadóttir
„Ég veit ekki hvert ég fer, það er
ekkert sérstakt sem ég vil fara.“
Margir af fremstu söngvurum þjóðarinnar:
Bubbi Morthens,Björgvin Halldórs, Pálmi Gunnars, Páll Óskar.Guðrún Gunnars,
Matti Matt, Bjarni Ara og Garðar Cortes
að taka með í ferðalagið
Sumarfrí
2 O M T
# HeiöskírtLéttskýjað'f2o Skýjað . Alskýjað i^>»ni9ning,lltilsháttar^^RÍBnmg-£L^,Súld ^ SnjókomaSlydda Snjóél »Skúr
iitiiyj]/ Algarve 27
Amsterdam 20
Barceiona 29
Berlin 22
Chicago 21
Dublin 17
Frankfurt 20
Glasgow 16
Hamborg 20
Helsinki 21
Kaupmannahöfn 22
London 22
Madrid 30
Mallorka 30
Montreal 21
NewYork 28
Orlando 26
Osló 25
París 21
Stokkhólmur 21
Vin 19
Þórshöfn 12
Á morgun
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á uppiýsingum frá Veðurstofu íslands