blaðið - 04.08.2006, Blaðsíða 33

blaðið - 04.08.2006, Blaðsíða 33
blaöió FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 2006 33 lifid@bladid.net Ahrifamáttur Madonnupoppstimið viðurkennir það fúslega að síðasta plata hennar sé undir áhrifum frá stórstjörnunni . Jessicu hefur oft verið líkt við drottninguna og eftir að hún setti lagið A Public Affair út á heimasíð- una sína fékk hún mikla gagnrýni fyrir það að hún hafi verið að herma eftir lagi sem Madonna gaf út 1984. Hún vill samt ekki meina að hún sé að herma eftir Madonnu þó að hún líti mikið upp til hennar og að hún hafi vissulega haft mikil áhrif á hana. „Ég held að fólk sé tilbúið til að heyra efni sem líkist því sem Madonna gerði hér áður fyrr. Maður þarf alltaf að hlusta á hana öðru hvoru og gömlu lögin hennar eru algjör snilld,“ segir Simpson í viðtali við MTV. „Þetta var eitthvað sem mig hefur alltaf langað að gera ætlaði alltaf að gera. Hún hafði mikil áhrif á mig á meðan ég var að mótast sem tónlistamaður og hefur enn í dag. Ég vona svo innilega að ég geti notið þeirra vinsælda sem hún hef- ur notið." og ég Verður í næstu Batman-mynd Heath Letii , riddarinn úr A Knight s Tale, hefur tekið að sér hlutverk í næstu Batman-myndinni sem mun koma út 2008. Myndin mun hafa undir- titilinn The Dark Knight en í henni munu Batman, Jim Gordon og DA Harvey Dent berjast við hinn illa Clown Prince of Crime, The Joker, sem Ledger mun leika. Christian Bale mun leika Bruce Wayne eða Batman og Christopher Nolan mun spreyta sig f annað sinn á því að leikstýra Batman-mynd. Sagan er skrifuð af þeim sömu og skrifuðu síðustu Batman-mynd, þeim Christopher Nolan og David Gayer, og geta áhorf- endur farið að hlakka til nýrrar og spennandi Batman- myndar. Lafhræddur Supemova töffarinn Tontmy Lee lenti f klandri í Króatíu á dögunum þegar honum var „næstum því haldið í gíslingu" eftir að hann hafði verið að spilað á tónleikum þar í landi. „Ég var að spila með vini mínum Morlllo og það komu bara einhverj- ir brjálaðir gaurar sem voru að sjá um tónleikana og hótuðu að berja mig ef ég héldi ekki áfram að spila á trommurnar. Öryggisverðirnir sneru sér að okkur og gerðu sig líkleg til þess að taka í okkur. Okkur var næstum því haldið í gíslingu. (fyrsta skipti á ævinni var ég í alvöru hræddur. Við þurftum að fá lögregluna til þess að fylgja okkur að bílnum okk- ar og við rétt náðum beint á flugvöllinn og upp í einkaflugvéla sem Erick á. Ég var alveg laf- hræddur," segir Tommy Lee. Brúðkaup um helgina? Orðrómur er á kreiki um að Tom Cruise og Katie Holmes ætli að gifta sig i um helgina en það er ekkert staðfest f þessum efnum. Heyrst hefur að hárgreiðslumeistari þeirra skötuhjúa sé uppbókaður alla helgina fyrir þau. Mikið umstang, tjöld, risa Ijósakrónur og fleira, er svo fyrir utan Scientology Celebrity Centre en það gæti elnmitt verið að veislan yrðf haldin þar. ðum Sumargleði og stuð í Galtalækjarskógi um helgina Stuð og stemning Það er alltaf mikið stuð við stóra sviðið i Galtalæk. „Það er her veðurfræðinga upp frá og það er útilokað að það rigni, það gerist bara ekki! Við erum búnir að biðja bænir og ég held hreinlega að veðurguðirnir verði okkur hliðholl- ir í ár. Sumargleðin mun svífa yfir vötnum og þá er engin hætta á öðru en að það verði stuð,“ segir Einar Bárðar, umboðsmaður fslands og einn af skipuleggjendum hátíðar- innar. Fjölskylduhátíðin í Galtalæk hefur í gegnum árin verið ein sú fjölmennasta og vinsælasta á land- inu og nú í ár verður hátíðin mjög glæsileg. Fólkfarið að streyma að „Ég var þarna upp frá í gær og þá voru nokkrir gamlir Galtalækj- arhundar búnir að tryggja sér sín svæði. Það var mikið fjör í gærkvöld þó að formleg dagskrá hefjist ekki fyrr en í kvöld en þá fyrst byrjar ball- ið. Það er ekki annað hægt, þegar allar þessar stórsveitir koma saman þá er alveg pottþétt að verði gaman,“ segir Einar Bárðarson. Fjölskylduhátíð af bestu gerð „Við sem stöndum að þessari hátið leggjum mikið upp úr því að hafa þetta skemmtilega hátíð fyrir alla fjölskylduna. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Við leggjum áherslu á glæsileika og ferskleika en á sama tíma er haldið í gömlu góðu Galtalækjar gildin sem eru flestum kunnug; Fjölskylduhátíð í vímu- lausu umhverfi. Hin árlega flugelda- sýning verður á sínum stað sem og varðeldurinn sem eru fastir liðir um Verslunarmannahelgina í Galtalæk,“ segir Einar. Frábært tækifræi „Það eru nú ekki nema tvö ár síðan við auglýstum eftir söngfuglum sem vildu freista gæfunnar og úr varð stúlknasveitin Nylon sem er að slá í gegn í Bretlandi um þessar mundir. Nú erum við að leita að ungum söng- stjörnum til að syngja inn á plötu í haust. Mikill áhugi hljómsveita var fy rir þessu einstaka tækifæri og barst skrifstofunni fjöldi umsókna. Við höfum nú valið nokkrar sveitir sem ætla að stíga á stokk og trylla lýðinn. Tónlistarflutningur sveitanna er fjöl- breyttur og allt frá rappi upp í rokk. Á meðal þeirra sveita sem koma fram eru Mammút og Búdrýgindi. Báðar þessar sveitir hafa meðal annars á ferli sínum afrekað að vinna Músíktil- raunir,“ segir Einar. Stelpu söngvakeppnin „Áhugi upprennandi tónlistar- manna á söngvarakeppninni var ekki minni en hjá hljómsveitunum en 187 söngvarar á aldrinum 12 til 17 ára sóttu um. Fjölmargir umsækj- enda voru hæfileikaríkir en aðeins 12 fá tækifæri til að taka þátt í keppn- inni í Galtalæk laugardaginn 5. ág- úst og hafa þeir verið valdir og þær heppnu eru Karen Ósk Þórisdóttir, Sigrún Vala Baldursdóttir, Hrein- dís Ylva Garðarsdóttir, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir, Þuríður Marín Jóns- dóttir, Edda Margrét Erlendsdóttir, Sædís Harðardóttir, Bryndís Öfjörð, Sif Sigurðardóttir og Margrét Edda Jónsdóttir. Einhver af þessum efni- legu stúlkum mun standa upp i sem sigurvegari og færi hann að syngja inn á Jólaplötuna Jólaskraut II sem kemur út fyrir jólin,“ segir Einar Bárðarson. kristin@bladid.net Dagskráin 2006 Föstudagur 22:00 - 02:00 Dansleikur á Stóra sviðinu Papar og Skítamórall 22.00 - 02.00 Unglingahljómsveitir halda uppi fjörinu i Kúlunni Laugardagur 14.30-16.00 Barnaskemmtun Söngvarakeppni, Nylon og Snorri 20.00-23.00 Kvöldvaka Sumargleöin, Nylon og Snorri Idol- stjarna 23.30 - Brenna, flugeldasýning og Eyrarsöngur 00.30 - 03.00 Dansleikur á Stóra sviðinu Hljómsveitin izaiold 22.00 - 02.00 Unglingahljómsveitir halda uppi fjörinu í Kulunni Sunnudagur 13.30- 14.30 Messa með sr. Pálma Matthiassyni og Ragga Bjarna og Þorgeiri Ástvalds 14.30- 16.00 Barnaskemmtun Sumargleðin, Briet Sunna og Ingó 20.00-23.00 Kvöldvaka Sumargleðin, Bríet Sunna og Ingó 23.00-03.00 Dansleikur á Stóra sviðinu Stuðmenn asamt Birgittu og Stefáni Karli 22.00 - 02.00 Unglingahljómsveitir halda uppi fjörinu i Kúlunni Söngpípa Sigrún Vala ætlarað taka þátt í söngvakeppninni I Galtalæk Hlakka til helgarinnar „Já, ég ætla að taka þátt í söngva- keppninni. Það er frábært tækifæri því mér finnst svo gaman að syngja og það er það sem ég ætla að gera f framtíðinni,“ segir Sigrún Vala Baldursdóttir. „Ég er í rauninni bú- in að vera að syngja síðan ég man eftir mér en síðustu þrjú ár hef ég verið að læra söng hjá Margréti Stef- ánsdóttur. Ég vann söngvakeppni UMFl 2003 en þá var yfirskriftin Hættum að reykja. Eftir það tók ég upp lag sem heitir Því ástin sem er sænskt lag og var talsvert spilað á Bylgjunni en Grétar Örvarsson stjórnaði upptökum. „Ég hlakka mikið til helgarinnar ví það verður nóg að gera með mér. g fer með fjölskyldunni í Galtalæk og ætla að taka þátt í söngvakeppn- inni á laugardeginum en svo strax á sunnudeginum ætla ég að skella mér norður á Akureyri því ég ætla að syngja á Glerártorgi fyrir fólkið sem leggur leið sína þar framhjá,“ segir Sigrún Vala söngskvfsa. SERBLAÐ Fimmtudaginn 10. ágúst mmmmtmmmmmmmmmmmmm m me ^ . __ wmmmmmmmmmmmmmmmm mmmmmmmmmmmmmmmmmmBaaagi Auglýsendur, upplýsingar veita: Magnús Gauti Hauksson • Síini 510 3723 • Gsm 691 2209 • maggi@vbl.is Katrin L. Rúnarsdóttir • Sínii 510 3727 • Gsni 856 4250 • kata@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.