blaðið - 04.08.2006, Side 9
blaðið FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 2006
FRÉTTIR I 9
í skjóli þess að ólíklegt er, eins og
málin standa nú, að Bandaríkja-
menn hafi vilja til þess að fara
með hernaði gegn þeim.
Horfið frá viðræðum
1 gegnum tíðina hefur það
verið ríkur þáttur í utanrikis-
stefnu Bandaríkjanna að ræða
við þau ríki sem þau hafa átt í
útistöðum við. Þrátt fyrir hinn
tvískipta veruleika kalda stríðs-
ins sáu stjórnvitringar Vestan-
hafs snemma að rétta stefnan
fólst í fælingu og viðræðum.
Stefna Bandaríkjanna gagnvart
Sovétríkjunum er ágætt dæmi
um þetta. Bush-kenningin
hefur fyrst og fremst falist í fæ-
lingu án viðræðna. Bundinn
hefur verið endi á tilvist tveggja
stjórna sem Bandaríkjamenn
töldu sig stafa ógn af en hins
vegar hafa þær aðgerðir ekki
knúið fram breytta hegðun
hjá öðrum óvinum Bandaríkja-
manna, fyrir utan Líbíu.
Og fælingin í augum ráða-
manna í Teheran í Iran og Pjongj-
ang i Norður-Kóreu, sem fara
fram með óþolandi og ögrandi
hætti gagnvart öðrum ríkjum, er
þverrandi vegna þess að herlið
Bandaríkjanna hefur nóg á sinni
könnu. Bandaríkjamenn geta
litlumþrýstingibeittástjórnmála-
sviðinu og bandamenn þeirra enn
minni. Þetta ástand gerir það að
verkum að núverandi stjórnvöld
í Bandaríkjunum geta ákaflega
litt beitt sér með beinum hætti
í þessum málum þrátt fyrir að
viljinn til þess sé ríkur. Þau hafa
sýnt meiri vilja en undanfarin ár
til þess að leita samstarfs, jafnvel
á vettvangi Sameinuðu þjóðanna,
við úrlausn þessara deilumála en
það hefur ekki skilað miklum
árangri.
Það blasir við að spenna á
alþjóðasviðinu kallar eftir að
Bandaríkjamenn sinni leiðtoga-
hlutverki sínu og án efa munu
þeir sinna því kalli eins og áður.
En ljóst er að núverandi nálgun
Bush-stjórnarinnar er ákaflega
takmarkandi og hefur lítið til
málanna að leggja þegar kemur
að myndun farvegs sem á að
draga úr spennunni.
Afganistan:
Börn létust í
Breski sendiherrann í írak:
Borgarastríð líklegra en lýðræði
Það eru meiri líkur á að
borgarastríð brjótist út
í írak en að lýðræði nái
að festa rætur í landinu.
Þetta er álit Williams
Pateys, í síðasta skeytinu
sem hann sendi breskum
stjórnvöldum áður en hann lét
af starfi sendiherra Bretlands í
Irak.
Patey tekur fram í skeyti sínu að
ástandið í írak sé ekki vonlaust en
leggur áherslu á að ef ekki eigi illa
að fara verði að tryggja ákveðna
þætti. „Ef við eigum að forðast
■ jj^. að Irak verði borgarastríði og
| . stjórnleysi að bráð verður það
að vera forgangsverkefni að
koma í veg fyrir að Mehdi-
herinn verði að ríki í rík-
1 inu líkt og Hizbollah
'kJsi'k <óil k í Líbanon.“ Þar vísar
hann til vígamanna
sjíamúslima.
Patey á ekki von á -alls-
herjar borgarastríði en óttast að
átök í landinu geti orðið svo mikil
að írak skiptist í raun upp í nokkra
hluta þó svo ekki komi til formlegs
klofnings landsins.
Sorg í Bagdad Faðir syrgir syni sína sem létust ísprengjuárás iBagdad ígær.
Skeytið sendi Patey til Tony Bla- bresk stjórnvöld hafa gert opin-
irs forsætisráðherra og utanríkis- berlega. Skeytið er leyniskjal en
ráðuneytisins. Þar er lýst meiri fréttamenn BBC komust yfir það
áhyggjum af stöðu mála í írak en og greindu frá innihaldi þess.
SUND ER
SLÖKUN
AFGREIÐSLUTÍMI LAUGA
sprengjuárás
mbl.is Að minnsta kosti 20 manns
létu lífið og 13 særðust í sjálfs-
morðssprengjuárás í suðurhluta
Afganistans í dag. Sprengjan
sprakk í bil á markaði í Kandahar-
héraði. Börn voru á meðal þeirra
sem létu lífið.
Lögreglustjóri á svæðinu segir,
að árásin hafi beinst að her-
sveitum NATO en misst marks
og óbreyttir borgarar látið lífið.
Kanadískar og breskar hersveitir
undir merkjum NATO tóku í vik-
unni við stjórn hernaðaraðgerða á
svæðinu af Bandaríkjamönnum.
Talibanar eru fjölmennir á
þessu svæði og hafa staðið þar
Fyrir fjölda árása á undanförnum
mánuðum.
Virka daga frá kl. 6:30 - 22:30
Helgar kl. 8:00 - 22:00
afgreiðslutími er mismunandi eftir
sundstöðum, sjá nánar á www.itr.is
Stakt gjald fullorðnir 280 kr.
10 miða kort fullorðnir 2.000 kr.
Stakt gjald börn 120 kr.
10 miða kort barna 800 tav
Sund er æóislegt
www.itr.is 1 sími 411 5000
BBBHbB
Laugarnar í Reykjavík