blaðið - 04.08.2006, Page 13
blaðið FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 2006
ÁLIT I 13
Synjun Herra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, greinir frá þvíhinn 2. júní 2004,
að hann synji fjölmiðlalögunum staðfestingar.
Völd forsetaembættisins
hafa ekki verið aukin
Tíu ár eru síðan Ólafur Ragnar
Grímsson var kjörinn forseti Is-
lands. Af því tilefni hafa verið við-
töl við hann í fjölmiðlum. Þar hefur
hann sagt margt ágætt. Tvennt hef
ég þó staldrað við þar sem ég er
honum ósammála, meira að segja
mjög ósammála.
í fyrsta lagi hef ég miklar efa-
semdir um þá áherslu, sem hann
leggur á völd embættis síns. Vald
forsetaembættisins er honum
greinilega ofarlega í huga. I viðtali
í einhverjum fjölmiðlinum sagði
Ólafur Ragnar að hvergi á byggðu
bóli hefði forseti eins mikið „frelsi
og svigrúm" og hann hefði sjálfur.
Hann hefði umboð sitt frá þjóðinni
beint og milliliðalaust.
Ég spyr á móti, umboð til hvers?
Því fer afar fjarri að forsetinn hafi
i' 7
tvS
Viðhorf
Skriíar um
vald forseta og
umræöu um
beitingu þess.
Ögmundur Jónason
þingismaður.
Hvað um það, niðurstaðan varð sú
að þetta var gert. Lögin voru numin
úr gildi. En það var Alþingi sem tók
ábyrgð á brottnámi laganna, ekki
forsetinn. Það er fráleitt að leggja
þann skilning í ákvörðun Alþingis
um að nema fjölmiðlalögin úr gildi
með nýju frumvarpi - eins og gert
var - sem viðurkenningu á því að
forseta íslands hafi þar með í reynd
verið veitt neitunarvald!
Nær væri að segja að Alþingi
hefði tekið sér vald gagnvart túlkun
viðkomandi greinar stjórnarskrár-
innar. Því má bæta við að vorið 2004
var ekki rætt um þessi mál á þeirri
forsendu sem forsetinn gerir nú og
fráleitt að vísa til hennar núna í því
samhengi sem forsetinn gerir.
Að svo mæltu óska ég Ólafi Ragn-
ari Grímssyni, forseta lýðveldisins
alls góðs og velfarnaðar í starfi.
Viðvörunarbjöllum hringt
„Alvarleg offita eykst sífellt"
- „Skortur á meðferðarúrræðum
við offitu" - „Öryrkum vegna of-
fitu fjölgar“ - „Sífellt fleiri verða of
feitir" - „Sykursýki 2 ógn við börn“
- „Fjöldi skólabarna þjáist af offitu“,
- „Islenskt þjóðfélag að fitna“ - „Of-
fita er heilsufarsvandi hættulegur
konum á barneignaraldri“. Þetta eru
nokkrar fyrirsagnir á fréttum frá
því nú í sumar. Þær ættu að hringja
viðvörunarbjöllum hjá öllum sem
láta sig varða lýðheilsumál.
Hreyfiseðlar ein leið
Erlendir sérfræðingar hafa verið
hér og varað okkur Islendinga við
þeirri þróun sem er að verða hér
á landi og hvatt okkur til að bregð-
ast við. Ég hef verið á þeirri skoðun
lengi að taka þurfi á þessum málum
og í því skyni lagt fram á Alþingi til-
lögur sem eiga að sporna við þessari
þróun. Við Samfylkingarþingmenn
höfum lagt til að takmarka beri
óhollustuauglýsingar sem beinast að
börnum. Feitt barn verður oft feitur
fullorðinn og matarvenjur mót-
ast á unga aldri. Einnig hef ég lagt
til, ásamt þingmönnum úr öllum
flokkum, að hreyfi- og matarleið-
beiningar, svokallaðir hreyfiseðlar,
verði teknir upp í heilbrigðiskerfinu
svipað og lyfseðlar og læknar geti
ávísað á hreyfingu ekki síður en lyf.
Nú er tilraun hafin með hreyfi-
seðla í heilsugæslunni í Garðabæ, en
reynslan af þeim á Norðurlöndum
undanfarin 5-6 ár er góð.
Óhollustuauglýsingum
ekki beint að börnum
Sérfræðingur í barnalækningum
við Harvard háskólann, sem var hér
í sumar, sagði offitu vera faraldur í
Asta Ragnheiflur
Jóhanncsdóttir.
alþingismaflur
Skrifar um
leiöir í baráttu
gegn offitu og
óhollustu.
Bandaríkjunum og benti á að hættu-
merki væru um að íslendingar væru
á sömu leið ef ekki yrði brugðist
fljótt við. Þrír af hverjum fjórum
Bandaríkjamönnum eru of þungir
eða þjást af offitu og eitt af hverjum
þremur börnum er í sömu stöðu.
Bandaríski læknirinn segir þetta
ekki líffræðilegan vanda heldur sé
orsaka hans að leita í lífsstíl, virkni
og mataræði. Hann telur að banna
eigi óhollustuauglýsingar sem bein-
ast að börnum. Hann gengur þar
enn lengra en ég og félagar mínir
í Samfylkingunni sem leggjum til
samkomulag ráðherra og auglýs-
enda um að beina ekki óhollustu-
auglýsingum að börnum, en ekki
fortakslaust bann. Við höfum verið
sökuð um forsjárhyggju í þessu máli
af ýmsum, en nágrannaþjóðir okkar
ganga mun lengra. Víða í Evrópu-
löndum hefur verið lagt bann við
óhollustuauglýsingum sem beint er
að börnum. Við verðum að bregðast
við, ella getum við horft til Banda-
ríkjanna og séð hvernig framtíðin
verður hjá okkur.
Hreyfing og rétt matar-
æði, úrræði og forvörn.
Rannsóknir sýna að offita er í
raun orðin faraldur í íslensku þjóð-
félagi. Offita eykur stórlega líkur á
ýmsum sjúkdómum, t.d. sykursýki
2 eða svokallaðri áunninni sykur-
sýki, hjarta- og æðasjúkdómum,
ristilkrabbameini, kæfisvefni og
stoðkerfissjúkdómum, auk þess
sem fullyrða má að sálrænir fylgi-
kvillar offitu séu verulegir. Þrátt
fyrir þetta hefur lítið farið fyrir
beinum aðgerðum stjórnvalda til
að stemma stigu við þróuninni. Þó
er að vænta niðurstöðu nefndar sem
sett var á laggirnar eftir að Alþingi
hóf umræðu um vandann að frum-
kvæði allra þingmanna í heilbrigðis-
nefnd Alþingis og samþykkti tillögu
hennar um aðgerðir til að bæta heil-
brigði Islendinga með hollara matar-
æði og aukinni hreyfingu.
umboð til að fara sínu fram að eigin
geðþótta, frelsi hans og svigrúmi
eru nefnilega settar mjög strangar
skorður. Þær skorður markast að
sjálfsögðu af lögum og stjórnarskrá,
einnig hefðum og af þeirri umræðu
sem fram fór við forsetakjörið.
Eftir því sem ég man best var þar
ekki gefið grænt ljós á að gera for-
setaembættið að valdaembætti.
I öðru lagi á ég erfitt með að
skilja þá yfirlýsingu forseta íslands
að með því að fella fjölmiðlalögin
úr gildi vorið 2004, hafi forset-
anum verið fært aukið vald - neit-
unarvald gagnvart Alþingi. Þetta
er að mínum dómi alrangt. Margir
höfðu um það efasemdir að Alþingi
hefði rétt til þess að fella fjölmiðla-
frumvarpið úr gildi; þinginu bæri
að láta fara fram þjóðaratkvæða-
greiðslu eftir að forsetinn neitaði
að staðfesta lögin, sbr. 26. grein
stjórnarskrárinnar þar sem segir,
m.a.;
„Nú synjar forseti lagafrumvarpi
staðfestingar, og fær það þó engu
að síður lagagildi, en leggja skal
það þá svo fljótt sem kostur er
undir atkvæði allra kosningar-
bærra manna í landinu til sam-
þykktar eða synjunar með leyni-
legri atkvæðagreiðslu.”
Margir litu svo á að samkvæmt
þessu orðalagi hefði Alþingi ekki
heimild til annars en að láta fara
fram þjóðaratkvæðagreisðlu. Ég
var í hópi þeirra sem var því fylgj-
andi að fella lögin úr gildi og taldi
að markmið stjórnarskrárinnar
væru í heiðri höfð með því móti þótt
vissulega mætti gera ágreining um
það hvort orðalag 26. greinar stjórn-
arskrárinnar byði upp á þetta. Ég
rökstuddi þessi sjónarmið mín á
sínum tíma og held mig enn við þá
afstöðu sem ég tók þá.
Náðu þér í ókeypis loftþrýötingö-
og dekkjaslitsmæli á næetu
bensínstöð 6KELJUNG6
Umferðarstofa
l FIA Foundation