blaðið - 04.08.2006, Síða 17
blaðið FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 2006
17
Einar Már Guömundsson, rithöfundur
eirra
Sumnr manneskjur hafa
meiri og djúpstæðari áhrif
á okktir en aðrar oggeta
jafnvel mótað skoðanir ok-
kar og viðhorftil lífsins og
tilverunnar. Stundum eru
áhrifavaldarnir frægir eins-
taklingar en í öðrum tilfel-
lum er um að ræða nákomnit
ættingjar og vinir. Blaðið
leitaði til nokkurra valin-
kunnra íslendinga ogfékk
þá til að segja frá helstu
áhrifavöldum í lífi sínu.
Synt á móti
straumnum
Ég á mér ekki fyrirmyndir í þeirrri merk-
ingu að ég vilji vera eftirmynd einhverra ein-
staklinga en hins vegar má segja að ég dáist
að ákveðnum eiginleikum í fari fólks og vilji
tileinka mér þá.
Ég dáist að foreldrum mínum og þá
sérstaklega gildismati þeirra. Þegar ég var
að alast upp var aldrei sparað fyrir dýrum
bílum og húsgögnum eða stærri íbúð. Þess
í stað var borðaður góður matur, farið í leik-
hús og á tónleika - lesið saman og spjallað
saman. Foreldrar mínir hafa kennt mér að
safna góðum minningum í stað þess að
safna peningum og fyrir það verð ég þeim
ævinlega þakklát.
Ég dáist að konum sem hafa synt á móti
straumnum og náð árangri í karlaheimi án
þess að spila eftir leikreglum karlmanna eins
og Helgu Kress og Þórhildi Þorleifsdóttur.
Ég dáist að Guðrúnu Ásmundsdóttur
fyrir að hafa ótakmarkaðan kærleik að gefa
heiminum og hafa jafnframt endalausan
húmor fyrir sjálfri sér og lífinu. Sjálf er ég
trúlaus en viðurkenni fúslega að ef allir
trúaðir væru eins og Gunna væri heimurinn
betri staður.
Ég dáist að hæfileikum en ekki alltaf að
hæfileikafólki.
Ég dáist að fólki sem vinnur umönnun-
arstörf og vona innilega að þegar ég verð
orðin gömul og grá verði ekki allir flúnir úr
stéttinni og komnar vélar til að mata mig og
strjúka mér um vangann.
Ég dáist að fólki sem þorir að hafa hugsjón-
ir í heimi þar sem hugsjónir eru í besta falli
taldar hallærislegar og barnalegar og í versta
falli hættulegar.
Foreldrarnir
í aðalhlutverki
Mínar helstu fyrirmyndir í lífinu eru
foreldrar mínir. Ég er svo heppin að for-
eldrar mínir eru ástríkt kærustupar og hafa
alla tíð hvatt mig áfram og stutt mig í því
sem ég tek mér fyrir hendur. Þau eru líka
gagnrýnin á það sem ég geri en við tölum
mikið saman og erum miklir vinir. Þau
eru sjálfum sér samkvæm, óhefðbundin
og opin fyrir nýjungum, gera vel það sem
þau taka að sér og eru góðir og ræktarsamir
vinir vina sinna. Allt þetta í fari þeirra, og
miklu meira til, tek ég mér til fyrirmyndar í
mínu eigin lífi. Ég hef, sem fullorðin mann-
eskja, forgangsraðað hlutum á svipaðan hátt
og þau, hvað varðar fjárhagsmál, skyldur og
ævintýramennsku, og gildismat mitt tekur
mið af þeirra. Ég átta mig smám saman
betur á því að það fólk sem ég sækist í að
vera nálægt og hafa samskipti við, hefur að
geyma marga þá eiginleika sem mér finnst
mikilvægir í fari foreldra minna, og sækist
jafnframt eftir að rækta með sjálfri mér.
Góð fyrirmynd finnst mér vera fólk sem er
forvitið og vaxandi í lífi sínu.
Öflugt en
ólíkt fólk
Þegar ég lít til baka og velti fyrir mér hverj-
ir hafi verið mínar fyrirmyndir eru engin
einhlít svör. Ég hef ekki meðvitað átt mér
fyrirmyndir, en hins vegar hafa orðið á vegi
mínum fólk sem ég hef litið upp til og talið
til fyrirmyndar. Ég hef áreiðanlega reynt að
tileinka mér eitthvað frá þessu fólki. Fyrst
koma upp í hugann tveir afburða kennarar,
þær Herdís Egilsdóttir sem var kennari
minn í ísaksskóla og Ragnheiður heitin
Briem íslenskukennari í MR. Þær áttu það
sameiginlegt að hafa ást á viðfangsefninu og
leggja sál sína í kennsluna og árangur okkar.
Þær gerðu kröfur til okkar, en enn meiri til
sjálfra sín. Þetta hvort tveggja kallaði það
besta fram i nemendunum. Af þeim sá ég
hversu mikilvægt það er að vera heils hugar
og óskiptur í því sem maður tekur sér fyrir
hendur. Baráttuþrek og örlæti Björgólfs
Guðmundssonar ætti einnig að vera okkur
öllum til fyrirmyndar. I pólitíkinni hef ég
gaman af að fylgjast með því hvernig þeir
Geir H. Haarde, Kjartan Gunnarsson og
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson rækja sín störf.
Þeir eru mjög ólíkir, en það má læra af þeim
öllum. Geir er yfirvegaður og hvers manns
hugljúfi, en fastur fyrir, Kjartan gætinn og
passasamur á allt sem snýr að hagsmunum
og orðspori flokksins, Viíhjálmur er maður
fólksins, sem dregur okkur samstarfsmenn
sína á hundruði vinnustaðafunda með borg-
arbúum og er óþreytandi við að sinna málefn
um fólksins í borginni. Svo eru að sjálfsögðu
foreldrar mínir og bræður, öll mjög öflugt en
ólíkt fólk, sem ég sæki mikið til.
Enginn
er eyland
Svarið mitt við þessari spurningu er ekki
frumlegt heldur ofur fyrirsjáanlegt. Stærstu
áhrifavaldar í lífi mínu eru þessir: foreldrar,
móðurafi (móðuramma mín lést áður en ég
fæddist og föðurforeldrar mínir létust þegar
ég var mjög ungur svo ég hafði minna af
þeim að segja), bræður og frændfólk. Lengi
býr að fyrstu gerð, segir máltækið og fólkið
sem var mér samferða á helstu mótunarárum
mínum hafði þar af leiðandi mest áhrif á mig.
Síðan tók við nýtt tímabíl þegar maki kom til
sögunnar og fjölskylda makans. Börnin hafa
líka haft mikil áhrif á mig og nú eru barna-
börn komin til sögunnar og frá þeim koma
sterk áhrif. Enginn er eyland, segir máltækið,
við erum samfélagsverur. Við erum mótuð
af umhverfi og samferðafólki. Kennarar hafa
haft áhrif á mig á öllum stigum skólagöngu
svo og skólasystkin. Þá hafa ýmsir kenni-
menn kirkjunnar haft á mig mótandi áhrif.
En sú persóna, sem þó skiptir mestu hvað
varðar hinstu örlög mín, verlferð og ham-
ingju, er Jesús Kristur, sem dó fyrir syndir
mínar og opnaði mér leið til himinsins heims
Hann var reyndár ekki íslendingur, en
hann er að mínu áliti áhrifaríkasta persóna
mannkynssögunnar og hefur átt samleið
með íslenskri þjóð í þúsund ár. Hann hefur
mótað mig enda þótt ég eigi enn langt í land
fullkomnunar. Ég get tekið undir orð Páls
postula er hann segir: „Ég er krossfestur með
Kristi. Sjálfur lifi ég ekki framar, heldur lifir
Kristur í mér. Lífinu, sem ég lifi nú hér á jörð,
lifi ég 1 trúnni á Guðs son, sem elskaði mig og
lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir mig.“
Undir
áhrifum
Til að svara þessari spurningu, einsog
hún blasir við mér þessa stundina,
sendi ég bút úr nýju ljóði. Það er úr
væntanlegri ljóðabók Ég stytti mér leið
framhjá dauðanum.
Undir áhrifum
Nei, ekki vilt þú vera
kaupmaðurinn
sem sópargólfin
að morgni dómsdags
ekki lögregluþjónninn
sem ekur um myrkrið
meðfingur á púlsi
dapurleikans
ekkifanginn
sem situr í klefanum
ogyrkir ástarljóð sín
með tárum.
Samtget ég ekki hugsað mér
betri áhrifavalda,
segi ég við skáldið
sem yrkirþetta Ijóð.