blaðið - 04.08.2006, Page 20
20
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 2006 blaöið
Eg ólst upp á söng-
elsku heimili og það
er til dramatísk upp-
taka af mér þar sem
ég, tveggja ára gam-
all, syng Sofðu unga
ástin mín, þannig
að söngáhuginn
kom snemma í ljós,“ segir Páll Óskar
Hjálmtýsson þegar hann er spurður
hvenær sönghæfileikar hans hafi
fyrst komið í ljós. „Það var mikil
blessun fyrir mig að fá að fæðast inn
í fjölskyldu mína. Blessunin felst
í þvi að við erum öll ákaflega vel
saman skrúfuð, hæfileikafólk hvert
á sínu sviði. Pabbi og mamma voru
aldrei að neyða okkur systkinin til
eins eða neins. Það var engin pressa
á mér að fara út í tónlistarbransanna
eða verða söngvari. Það var ég sem
hafði viljann og þörfina til þess.
Vildi verða súperstjarna
Hvernig unglingur varstu?
„Mín sjálfsvirðing var ekki meiri
en sú þegar ég var unglingur að
ég leit á sjálfan mig sem brandara.
Orðið nörd var þá ekki til í málinu
en ég var nörd. Ég hafði ekki sömu
áhugamál og hinir krakkarnir
og leið bara ágætlega með það. Á
meðan hinir strákarnir í bekknum
spiluðu fótbolta þá var ég inni í
herbergi að borða epli og lesa Ösku-
busku, Þúsund og eina nótt og ævin-
týri H.C. Andersen. Ég lifði mig inn
í Öskubusku og tengdi mig sterkt
við hana. Ég teiknaði mikið og naut
Á tvítugsaldri upplifði ég það sem
mikið frelsi að koma fram sem
dragdrottning. Ég fékk aldrei neitt
kynferðislega kikk út úr því, eins og
svo margir héldu og voru kannski
að hneykslast á. Drag er leikhús því
þarna urðu að fara saman leikhæfi-
leikar, geta, útlit, húmor og útsjónar-
semi. 1 dag hafa tímarnir svo sannar-
lega breyst og það hneykslast enginn
á hommum né dragdrottningum."
Frábært að vera hommi
Þúferð ekki ífelur með kynhneigð
þína. Hvenær uppgötvaðir þú að þú
vœrir hommi?
„Á sama tíma og þú uppgötvaðir
að þú værir gagnkynhneigð."
Hvernig finnst þér að vera
hommi?
„Mér finnst frábært að vera
hommi. Það er skemmtilegt og
fyndið og á sama tíma kemur það
„Ég vissi nákvæmlega
hvað ég vildi verða
þegar ég yrði stór. Ég
vildi verða súperstjarna
sem myndi breyta heim-
inum. Ég vildi sjá nafnið
mitt uppi á ljóstaskilti.
Ég vann að því eins og
brjálæðingur og draumur
minn rættist."
þess að vera einn og geri enn. Mínar
bestu stundir eru þegar ég er einn
að dúlla mér.
Mín albesta skólun í lífinu var að
fara í leiklistartíma í Menntaskól-
anum við Hamrahlíð. Þar lærði ég
að koma fram og ég hef notið góðs af
því allar götur síðan. í kórnum hjá
Þorgerði Ingólfsdóttur lærði ég ýmis-
legt hvað varðar tónlist, til dæmis að
fyrsta orðið í sungnum texta skiptir
öllu máli ætli maður að ná til hlust-
enda sinna.
Ég vissi nákvæmlega hvað ég
vildi verða þegar ég yrði stór. Ég
vildi verða súperstjarna sem myndi
breyta heiminum. Ég vildi siá
nafnið mitt uppi á ljóstaskilti. Eg
vann að því eins og brjálæðingur og
draumur minn rættist."
Þú komst fram sem dragdrottn-
ing um tíma. Hefurðu gaman af að
hneyksla?
„Eg er orðinn 36 ára gamall en er
enn þá prakkari. Þegar ég lít til baka
þá var ég stundum að hneyksla fólk
án þess að innistæða væri fyrir því.
En ef það þótti hneykslanlegt
að vera hommi sem fór í drag árið
1990 þá segir það mér meira um þá
sem hneyksluðust heldur en mig.
mér dæmalaust mikið á óvart hvað
það er venjulegt að vera hommi.
Samkynhneigð fylgir nefnilega al-
veg nákvæmlega sama uppvaskið og
hjá gagnkynhneigðu fólki og sömu
skúringarnar."
Þú ert rómantískur, erþað ekki?
„Hluti af mér er rómantískur en
það hefur ekki reynt á það lengi. Ég
á engan karl.“
Langarþig ekki til þess?
„Jú, ég held að ég hafi aldrei verið
jafn tilbúinn á ævinni til að eignast
karl. Mér finnst eins og karlmenn
í kringum mig séu dálítið hræddir
við mig. Kannski er það vegna þess
að undanfarin tólf ár hef ég verið að
heimta ákveðna athygli og þetta er
án efa ein afleiðing þess. Þeir koma
allavega ekki til mín að fyrra bragði.
Ég hef notið mín í sviðsljósinu og af
ásettu ráði passaði ég lengi upp á það
að ekki væri þláss fyrir karlmann í
lífi mínu. Sennilega var þetta flótti
frá nánd. Ég var dauðhræddur við
skuldbindingar. En ég er að lagast.
Síðustu tvö árin hef ég meðvitað
verið að reyna að búa til pláss fyrir
annan einstakling til að hann geti
upplifað þetta frábæra líf með mér
og ég með honum. Sá karlmaður