blaðið - 04.08.2006, Blaðsíða 32
32
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 2006 blaAÍA
tonlist@bladid.net
„Ef ég þyrfti aö finna nýtt nafn
yfir rokk og ról myndi ég kalla
þaö „Chuck Berry““
John Lennon
Breski tónlistarmað-
urinn Morrissey er á
leiðinni til landsins og
treður upp á tónleikum
í Laugardalshöll 12. ág-
úst. Flestir vita að hann var söngvari
hinnar goðsagnakenndu hljómsveit-
ar The Smiths en fáir, fyrir utan með-
limi, vita fyrir víst af hverju sveitin
lagði upp laupana.
Ósætti Morrissey og Johnny Marr,
gitarleikara og aðallagahöfundar
sveitarinnar er oftast kennt um en
fleiri ástæður hafa verið nefndar til
sögunnar. Margir halda því fram að
Morrissey sé samkynhneigður og að
ást hans á Marr hafi rústað samstarfi
þeirra. Þær getgátur eru ekki út í hött
þar sem textar Morrissey hafa oft ver-
ið túlkaðir á samkynhneigðan hátt.
Ástfanginn
Morrisey hefur ávallt forðast að
tala um einkalíf sitt í fjölmiðlum.
Það hefur virkað sem olía á eld sögu-
sagna og komið af stað þrálátum
orðrómi um samkynhneigð hans. Ri-
chard Smith, blaðamaður tímaritsins
Rolling Stone, hefur til dæmis fullyrt
að flest lög með The Smiths sé hægt
að túlka á samkynhneigðan hátt og
hefur hann gengið svo langt að hvetja
Morrissey opinberlega til að koma út
úr skápnum. En í viðtali við Rolling
Stone árið 1990 blés Morrissey á sögu-
sagnirnar: „Er ég hommi? Jæja, það
eru nýjar fréttir." Þegar hann var
beðinn um að útrýma orðróminum í
heimildarmyndinni The Importance
of Being Morrissey taldi hann ekki
ástæðu til þess. „Fólk heldur að það
viti og heldur að það skilji. Mér er al-
veg sama um hvað fólki finnst - það
breytir engu. Ég hef ekkert að fela.“
í viðtali við timaritið NME fyrr á
þessu ári sagðist Morrissey ekki leng-
ur lifa skírlífi eins og hann hafi gert
síðustu 20 ár. Fólk velti þá fyrir sér
hvort hann ætti í ástarsambandi, við
hvern og að sjálfsögðu hvort aðilinn
væri kven- eða karlmaður. Morrissey
gaf það ekki upp og sagðist vera ást-
fanginn einhverju, ekki einhverjum.
Óendurgoldin ást
Fyrr á þessu ári kom út Ringleader
of the Tormentors sem er áttunda
sólóplata Morrissey, að frátöldum
safn- og tónleikaplötum. Þegar rýnt
er í texta plötunnar kemur ýmislegt
óvænt í ljós. Einmanaleikinn og
þunglyndið er enn til staðar en í lag-
inu Life is a Pigsty kallar Morrissey til
einhvers sem hann þekkir og saknar.
Hér eru nokkur brot úr textanum:.
„It’s the same old S.O.S.
But with brand new broken
fortunes
And once again I turn toyou
Onceagain Idolturn toyou'
„Every second of my life I only live
foryou
Andyou can shoot me
Andyou can throw me off a train
I still maintain"
„And I’d been shifting gears all
alongmylife
But I ’m still the same underneath
Thisyou surely knew
I can’t reach you
„Canyou stop thispain?
Even now in thefinal hour ofmy
life
I’mfalling in love again
Agairí'
Morrissey og Johnny Marr eiga
gríðarlega farsæla fortíð. Samstarf
þeirra bar ávöxt sem fáir geta státað
sig að, en The Smiths er ein virtasta
hljómsveit allra tíma þrátt fyrir stutt-
an starfsaldur. Þeir félagar unnu
ávallt náið saman að tónlistinni og
eru einir skráðir fyrir öllum lögum
sveitarinnar. Er Morrissey að kalla
til Marr í textanum? Hann má túlka
þannig að Marr hafi forðast Morriss-
ey í fjölda ára og að ást Morrissey
hafi verið með öllu óendurgoldin.
Þegar samstarfi þeirra lauk getur
4. ágúst
í rokksögunni...
2003
Bassaleikari Nirvana, Krist
Novoselic, tilkynnir að hann
sé hættur í tónlistar-
bransanum. Þrátt
fyrir það segist
hann ætla að
halda áfram að
spila með hljómsveit-
inni sinni. Mjög
ruglingslegt.
1979
Led Zeppelin spilar fyrir 120.000
manns í Knebworth-almennings-
garðinum í Englandi. Tónleikarnir
eru þeirra fyrstu í Bretlandi í
fjögur ár.
1970
VE
FRÁ 13:00-21:00
Pantanir og tilboö fyrir
hópa í annan tíma:
draugasetrid@draugasetrid.is
S. 895 0020 ' &Y
1 V
Draugasetríð
Stokkseyri
\\ w.draumtsetrid.is
island, s;ekjunt jniö heiin! drauniisiti i(K«'clraug;isetrid.is
FgROAM*LAflAD
Morrissey hafa bælt niður ást sína en
í enda lagsins segist hann aftur vera
ástfanginn.
1 laginu Dear God Please Help Me
sem er einnig á Ringleader of the Tor-
mentors biður Morrissey um hjálp
guðs því hann er orðinn þreyttur
á að gera hið rétta. Hann syngur
einnig um að vera með tunnur milli
lappanna sem gætu sprungið. Seinni
hluta textans er varla hægt að túlka
öðruvísi en kynferðislega:
„Now I’m spreadingyour legs
with mine in between
dear God if I could, I would help
you"
Túlka má textann sem einhvers
konar ástarjátningu til guðs því eins
og fyrr segir hefur Morrissey sagst
ástfanginn af einhverju en ekki ein-
hverjum. Hann gæti verið ástfanginn
af æðri máttarvöldum en hann lifir
ekki lengur skírlífi sem flækir skýr-
inguna töluvert. Aftur væri hægt að
túlka þetta sem hugsanir um Johnny
Marr. I upphafi textans segist Mor-
rissey vera „á gangi um Rómarborg
með hjartað í spotta“ en þangað
fluttist hann til að semja og taka upp
síðustu plötu sína. Fjarlægð frá þeim
sem hann saknar kemur fram í text-
anum, en Morrissey biður manneskj-
una (Marr?) um að „finna og reyna
að vinna sig“ (e. „Track me down and
try to win me“). Róm er í um 1.400
kílómetra fjarlægð frá Manchester,
þar sem Johnny Marr hefur aðsetur.
Vinsæll Qölmiðlamatur
Morrissey er samur við sig og virð-
ist ekki vera á leiðinni að tala um kyn-
hneigð sína á opinberum vettvangi,
enda ætti hún ekki að skipta máli.
En þögnin hefur gætt hann dulúð
sem aðskilur hann frá öðrum lista-
mönnum og réttlætir hugleiðingar
sem þessar. Fjölmiðlar munu halda
áfram að snúast í kringum hann um
ókomna framtíð. Óvissan hefur gert
hann að einum vinsælasta fjölmiðla-
mat Bretlandseyja en hann virðist lít-
ið hafa á móti því og heldur áfram að
þegja opinberlega en þess í stað tjá
sig í gegnum tónlistina á sinn eigin
snilldarlega hátt.
atli@bladid.net
Yorke
á Blair
Thom Yorke, söngvari bresku
sveitarinnar Radiohead, fjarlægði
neikvæða yfirlýsingu um Tony Blair
stuttu eftir að hann birti hana á vef-
síðu Radiohead í gær.
„Ég hef fengið nóg af þessu,“ sagði
Yorke í yfirlýsingunni. „Ríkisstjórn
okkar slakar á með þeirri banda-
rísku á meðan þriðja heimsstyrj-
öldin er í startholunum í Líbanon
og Norður-ísrael.“ York hélt áfram:
„Við verður að henda Tony Blair úr
embætti strax. Hann er ekki sam-
mála embættismönnum Breta
erlendis. Hann fylgir
ekki einu sinni
sínum eigin —
þingmönn-
um. Sam-
band hans
við Bush er
honum of
kært.
Eftir að hafa sofnað
á veröndinni hjá
ungri dömu er
Jim Morrisson
handtekinn
fyrir ölvun á
almannafæri.
1966
Fjölmargar útvarpsstöðvar í
Bandaríkjunum hætta að spila
plötur Bítlana eftir að John
Lennon sagði sveitina vinsælli
en Jesúm.
maður er ekki hæfur forsætisráð-
herra.“
Vangaveltur um af hverju Yorke
fjarlægði yfirlýsinguna skutu fljót-
lega upp kollinum á aðdáendasíðum
Radiohead. Margir töldu þrýsting
frá stjórnvöldum sökudólginn á
meðan örlítið raunsýnni aðdáendur
töldu Yorke hafa ákveðið sjálfur að
taka niður yfirlýsinguna. Yorke hef-
ur enga yfirlýsingu gefið
um ástæðuna svo að-
dáendur hans fá að
velta sér upp úr
málinu þar til
það gerist.
2 The One
Trabanl
4 M John the... Depeche Mode
6 |M Black Swan Thom Yorke
7 m Happiness Orson
8 tVAEleanor Franz Ferdiand
10 Hu // Your Poison... Frank Black
topp 10
27. júli - 2. ágúst
Þessi
Toggi
Heart in line
4 ■»! Purole
Skln
otttiSatellites September
7 Q Crystall Ball Keane
mm ^
8 10 Farinn Burt Snorri w
10 H Hvar sem ég fer Á móti sól i!r