blaðið - 04.08.2006, Side 38

blaðið - 04.08.2006, Side 38
38 FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 2006 blaöiö fólk folk@bladid.net HVAÐ FINNST ÞER? Tekur þú með þér sundföt í Galtalæk? „Já, éggeri það enda gott ad vera léttklæddur ísólinni. Hins vegar ráðlegg ég öllum, hvcrt á land seni Jieir stefna, að taka ineð sér regnhltf því að þannig er spáin." m Sigurður Þ. Ragnarssoit, veðurfréttamaður. Sigurður, eða Siggi Stormur, verður í Gaitalæk um helgina. Spá hans um hitabylgju yfir helgina virðist varla ætla að ganga eftir. Smáborgarinn Ólafur Egill Egilsson leikari verður fjarri Islandsströndum um þessa Verslunarmannahelgi þar sem hann er á leikferðalagi um Evrópu ásamt félögum sínum í leik- hópnum Vesturporti. „Samkvæmt fjölskylduvenju verð ég að vinna um Verslunarmannahelgina,“ seg- ir Ólafur og kímir en hann er sem kunnugt er sonur Stuðmannsins Egils Ólafssonar og Tinnu Gunn- laugsdóttur Þjóðleikhússtjóra. „Að þessu sinni verð ég í Gdansk að leika Rómeó og Júlíu fyrir Pól- verja. Vesturport er búið að fara víða í sumar, nú þegar erum við búin að heimsækja Þýskaland og England og þegar leikárinu lýkur verðum við búin að fara til Pól- lands, aftur til Þýskalands og svo til Noregs,“ segir Ólafur Egill. Saknar Verslunarmanna- helgarinnar ekki sárlega Ólafur Egill tekur undir að Vestur- portsævintýrið hafi undið all hressi- góðar minningar tengdar ferðum með Stuðmönnum þegar hann var barn að aldri. „Það var hefð fyr- ir því að fjölskyldur Stuðmanna kæmu með þegar Verslunarmann- arhelgargaleiðan lagði úr höfn. Ég man sérstaklega eftir Eðlunni, sem var rúta sem var búin rúm- um og við hösuðumst aftur í á meðan hringlað var frá einu balli til annars. Eg fékk þess vegna að heimsækja fornfræg Verslunar- mannahelgarvígi eins og Eyjar og Húnaver í algleymi, svo ekki sé minnst á Atlavík þar sem ég naut þess heiðurs að sitja til borðs með Ringo Starr. En við það borðhald á bítillinn að hafa sagt, þegar borið var á borð fyrir hann eðal rauðvin aðflutt úr vínkjallara Hótel Holts og sérvalinn risahumar, „I dont eat anything that crawls“ svo bað hann um klúbbsamloku og bragð- bætti rauðvínið með kóki, alþýð- legur að vanda“ segir Ólafur Egill Egilsson að lokum. lega upp á sig en honum þykir engu að síður alltaf jafnskemmtilegt að starfa með leikhópnum. „Þetta er svo frábær hópur af vinum og sam- ferðarfólki sem hefur gaman hvert af öðru og gaman af því að vinna saman og það er nú það sem skiptir máli. Það er í raun sama hver vinn- an er, maður getur ekki beðið um meira en það að vinna með góðu fólki," segir Ólafur Egill sem finnst ekki mjög miður að fara á mis við íslenska verslunarmannahelgarst- emningu að þessu sinni. „Það er auðvitað alltaf frábær geðsýkisstemning á íslandi um Verslunarmannahelgina en ég sakna hennar ekkert sérstaklega þetta árið. Kannski var þetta einna skemmtilegast þegar maður var yngri og það var metnaðarmál að taka sem mestan þátt í tryll- ingnum,“ segir hann. Hitti Ringo Starr Ólafur Egill á engu að síður TÍMI OG PENINGAR Smáborgarinn er stórhuga í eðli sínu og hefur útbúið lista yfir það sem hann ætlar sér að afreka áður en hann geispar golunni og kemur sér fyrir hinum megin foldar. Á þessum lista kemur meðal annars fram að Smáborgarinn ætli sér að heimsækja öll lönd í Evrópu (33 komin) og allar heimsálfurnar (tvær komnar). Þá má nefna að hann ætlar einnig að hlaupa maraþon og klífa fjallið Kilimanj- aro í Afríku. Smáborgarinn ætlar sér sem sagt stóra hluti í lífinu. Ferðast til Suðurskautslandsins og hlaupa 42 kílómetra óumbeð- inn! Tími virðist kosta peninga og peningar virðast kosta tíma. Ókosturinn við þessar áætl- anir Smáborgarans er hins vegar sá, að til þess að hrinda þeim í framkvæmd þarf bæði tíma og peninga. Tími virðist kosta peninga og peningar virðast kosta tíma. Smáborgarinn er því í svolítið erfiðri stöðu. Hann mætir til vinnu þessa dagana, sest fyrir framan tölvuskjá í tíu tíma og laumast stundum til að skoða það sem heimurinn hefur upp á að bjóða. Myndir frá stór- borgum, frumskógum, helstu undrum veraldar og margt fleira sem Smáborgarinn ætlar sér að sjá berum augum. Sem stendur verður tölvuskjárinn að duga. Smáborgarinn leyfir sér samt sem áður að dreyma. Þegar hann er búinn að vinna stóra pottinn í lóttóinu mun hann láta drauma sína rætast. Einhver hvíslaði samt að Smáborgar- anum að til þess að vinna í lotteríum þarf að kaupa miða. Smáborgarinn hefur hins vegar ekki lagt það í vana sinn að kaupa miða og finnst ólíklegt að breyting verði á því. Ætli hann verði því ekki að leggja litla upp- hæð til hliðar í hverjum mánuði eins og aðrir smáborgarar til þess að láta fyrirhuguð ferðalög verða að veruleika. Var það ekki Bítillinn John Lennon sem sagði „Life is what happens to you while you’re busy making other plans“? Þetta eru orð að sönnu. SU DOKU talnaþraut Lausn síðustu gátu: Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir (hverri Ifnu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers niu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Gáta dagsins: 9 5 8 3 7 9 8 2 4 6 8 1 4 8 9 1 1 3 4 5 2 3 8 7 5 4 6 1 9 5 7 5 8 4 7 6 1 3 9 2 6 2 3 9 8 5 4 1 7 7 9 1 2 3 4 5 6 8 3 1 5 6 2 9 7 8 4 9 4 6 8 5 7 1 2 3 8 7 2 1 4 3 6 5 9 1 5 9 3 7 2 8 4 6 2 3 8 4 1 6 9 7 5 4 6 7 5 9 8 2 3 1 Ég var að flytja inn við hliðina. Hvar geymirðu sláttuvélina? HEYRST HEFUR... Almælt er að Árni Johnsen hyggist fara í prófkjör sjálf- stæðismanna í Suðurkjördæmi, enþannigvill hann fá uppreisn æru eftir að hafa komist svo eftir- minnilega í kast við lögin um árið. Segja kunnugir að Árni hafi verið búinn að ákveða að fara í prófkjörið nánast jafnskjótt og Hæstiréttur staðfesti dóm hér- aðsdóms og þyngdi refsinguna í tveggja ára fangelsi í aðdrag- anda síðustu alþingiskosninga. Nú gengur um kjördæmið und- irskriftalisti, þar sem skorað er á Árna að gefa kost á sér. Ekki er ljóst um viðtökurnar þó vafa- laust sjái ýmsir aumur á Árna, en undirskriftalistarnir munu frá honum ættaðir... TV K innihlutinn í bæjarstjórn- IVXinni á Bolungarvík vill fá rökstuðning fyrir ráðningu Gríms Atlasonar í stöðu bæjarstjóra og telur að gengið hafiveriðfram hjá fólki, með *«•» betri menntun og ■ reynslu. Grímur, sem ekki hefur enn tekið við starf- inu, er þroskaþjálfi að mennt en hefur auk pólitískra afskipta getið sér gott orð fyrir skipu- lagningu tónleika og ámóta menningarviðburða. Fyrir nú utan það að slá bassagígjuna með dr. Gunna sjálfum. Þar vestra efast menn ekki um að Grímur og hans góða kona, Helga Vala Helgadóttir, geti orðið menningarlífinu í Vík- inni lyftistöng, en setja spurn- ingarmerki við stjórnunarhæfi- leikana á öðrum sviðum... Samfylkingin hefur verið gagnrýnd fyrir málefnaflökt og óljósa stefnu, en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, hefur raun- ar tekið undir að nokkuð sé til í því. Mörgum þótti því einkenni- legt að heyra formanninn segja það í fréttum NFS á miðviku- dagskvöld, að Evrópustefna Samfylkingarinnar væri í raun afgangsstærð. Ingibjörg Sólrún lýsti mikilvægi þess að ísland gengi í ESB og tæki upp evruna við fyrstu hentugleika en þegar hún var hún spurð að því hvort Samfylkingin gerði ESB-um- sókn að skilyrði fyrir ríkisstjórn- armyndun kom á daginn að svo var alls ekki. Spyrja menn hvað sé þá eftir af grunnstefnu Samfýlkingarinnar... Samfylkingunni hefur ekki auðnast að rífa sig upp úr lægðinni ef marka má Þjóðar- púls Gallups. I Staksteinum Morgunblaðsins er vikið að þessu og bent á að Vinstrigræn- ir séu alls ekki langt frá því að komast upp að hlið Samfylking- arinnar í fylgi. Fari svo er stóra spurningin hvort Steingrímur J. Sigfússon muni gjóa augunum til vinstri eða hægri... andres.magnusson@bladid.net

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.