blaðið - 01.09.2006, Qupperneq 36
48
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2006 blaðið
r
íþróttir
ithrottir@bladid.net
f
Big John Daly
Bandariski kylfingurinn John Daly sem er jafnþekktur fyrir golfhæfíleika og frjálslegt
vaxtarlag og líferni varö að hætta keppni á Opna BMW-mótinu i gær vegna þráláts
magaverkjar. John Daly vann þetta mót árið 2001 en í gegnum tíðina hefur ferill hans
einkennst af mikluni sveiflum.
Varamaöur Frakka myndaði af bekknum:
U-21 keppir við Ítalíu:
Leyndarmál afhjúpuð?
Vikash Dhorasoo, leikmaður
Paris St. Germain og franska
landsliðsins, er með kvikmynd í
bígerð um heimsmeistarakeppn-
ina í sumar. Dhorasoo kom aðeins
nokkrum sinnum inn á sem vara-
maður í leikjum Frakka og varði
tíma sínum í að mynda það sem
fram fór hjá franska landsliðinu,
innan vallar og utan. Hefur Dhor-
asoo gefið myndinni nafnið Vara-
maður: Mín saga af HM 2006.
Franska knattspyrnusamband-
iðoglandsliðsþjálfariFrakka
Raymond Domenech eru ^
ekki par ánægð með
þessar fyrirætlanir jÆj
Dhorasoos. „Hann /Æ
má klippa mig fl
út úr myndinni
strax, ég mun aldr-
ei leyfa myndbirt- fl
ingar af mér,” segir vl
Domenech. Franska
knattspyrnusamband-
ið hefur skýrt það vel JM
út fyrir Dhorasoo
hvað hann megi sýna og hvað
ekki, sem er mjög afdráttarlaust:
Ekkert sem snertir heimsmeist-
arakeppnina í knattspyrnu 2006.
Dhorasoo fullyrðir á móti að
myndin fjalli ekki um heimsmeist-
arakeppnina eða aðra leikmenn
landsliðsins. „Þetta er mynd um
mig sjálfan og nokkurs konar dag-
bók nema hvað í stað penna og
blaðs nota ég myndavél.”
Mikil óánægja er meðal ann-
arra leikmanna hjá landsliðinu
vegna fyrirætlana Dhorasoos.
Patrick Vieira tjáði sig opin-
berlega um málið og varaði
Dhorasoo við útgáfu mynd-
arinnar og sagði hann
fl verða að fara varlega því
fl líf franska landsliðsins
H væri í húfi: „Það eru
p? sumir hlutir sem ekki
l ) má afhjúpa” sagði Vieira.
WK Þessi athugasemd Vieir-
fl as hefur þó aðeins aukið
áhuga fransks almenn-
Hg^ ings á myndinni.
■ ítalir unnið EM í fimm
U-21 árs landslið Islands í knatt-
spyrnu leikur gegn ítölum í kvöld
klukkan 19:00. Ef Islendingar sigra
eiga þeir góða möguleika á að kom-
ast í lokakeppnina, en íslendingar
gerðu jafntefli við Austurríkismenn
úti, 0-0, íó.ágúst.
Við ramman reip verður að draga
því ítalir hafa orðið Evrópumeistar-
ar í fimm af síðustu átta skiptum
og er liðið síst síðra en það hefur
verið síðustu ár. ítalirnir verða
með gríðarlega vel skipað lið á Laug-
ardalsvelli í kvöld og má þar nefna
kappa eins og Alberto Aquilani, leik-
mann Roma, sem skoraði tvö mörk
gegn Inter í hinum árlega leik milli
bikar- og deildarmeistara, Giorgio
Chiellini hjá Juventus og Giampaolo
Pazzini sem hefur leikið vel fyrir Fi-
orentina.
í samtali við Blaðið sagði Lúkas
Kostic þjálfari U-21 árs liðsins að
þrátt fyrir erfiða andstæðinga ætl-
aði hann ekki að breyta skipulag-
inu frá síðasta leik, „Uppleggið er í
grunninn mjög einfalt. Við ætlum
að sækja þegar við erum með bolt-
ann og verjast þegar þeir eru með
hann,” sagði Lúkas en liðið mun
leika 4-3-3 eins og í leiknum gegn
Austurríki.
Lúkas segist merkja mikinn
uppgang hjá íslenska liðinu og tel-
ur liðið eiga ágæta möguleika á
að ná hagstæðum úrslitum gegn
ítölunum. „Leikmennirnir eru sí-
fellt að kynnast hver öðrum betur
svo við erum bara að bæta okkur.
Við áttum miklu meira í leiknum
gegn Austurríkismönnum en náð-
um ekki að skora,” segir Lúkas.
Leikurinn hefst klukkan 19:00 í
kvöld og er aðgangseyrir ókeypis.
reynir@bladid.net
Opið til kl. 19 á föstudag og kl. 17 á laugardag
Firði Hafnarfirði I Sími 565 0073
Vorum að taka upp nýja sendingu af
Bertoni jakkafötum
Bertoni skyrtum
Bertoni gallabuxum
Herra
hafnarlörtur