blaðið

Ulloq

blaðið - 21.10.2006, Qupperneq 22

blaðið - 21.10.2006, Qupperneq 22
blaðið 22 LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2006 t 'i 1=411 'i II 'i T Á morgun kl 14 mun Hallgrímur Helgason myndlistamaður og rithöfundur og Helgi Þorgils Friðjónsson ganga um sýninguna Málverkið eftir 1980 í Listasafni (slands og spjalla við gesti út frá sinni persónulegu reynslu. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir \ \ Tónlistarveisla í tilefni af því að 40 ár eru liðin frá stofnun Tónlistarskóla Mosfellsbæjar, nú Listaskóla Mosfells- bæjar verður efnt til sannkallaðrar tónlistarveislu í (þróttahúsinu að Varmá, í dag kl 15. Sinfóníu- hljómsveit fslands undir stjórn Kurt Kopecky flytur meðal annars nokkur lög við Ijóð Halldórs Kiljan Laxness, sem Páll Pampichler Pálsson hefur fært í hljómsveitarbúning af þessu tilefni. Miðasala verður við innganginn. Að hafa sögu að segja anadískir menningar- dagar í Kópavogi standa nú yfir og í tengslum við þá verður í dag hald- ið málþing um frum- byggja og landnema Kanada í Saln- um í Kópavogi. Einn frummælenda á málþinginu er Björk Bjarnadóttir umhverfisþjóðfræðingur en hún hefur síðustu misserin dvalið í Kan- ada þar sem hún hefur rannsakað menningu frumbyggjaog Vestur-ls- lendinga í Manitoba. „Ég var skipti- nemi við Háskólann í Manitoba haustið 2003. Meðan á dvölinni stóð var ég alltaf að horfa í kring- um mig eftir einhverjum sem hefði þekkingu á náttúruskilningi frum- byggja. Fljótlega komst ég í kynni við frumbyggjana Gary Raven og bróður hans heitinn Raymond Ra- ven sem báðir eru þjóðháttakennar- ar,“ útskýrir Björk. „Það var mikil gæfa fyrir mig og í fyrsta skipti sem ég hitti Gary segir hann við mig ,Þitt fólk var alltaf gott við mitt fólk“ og átti með því við að Vestur-lslend- ingar hefðu reynst frumbyggjun- um á þessu svæði ákaflega vel. Sjálf vissi ekki alveg hvað ég átti að segja því þá vissi ég lítið sem ekki neitt um landnám íslendinga í Kanada en það breyttist heldur betur í kjöl- far þessa.“ Vetur við Winnipeg vatn Allan síðasta vetur dvaldi Björk á verndarsvæðinu Hollow Water sem er á austurströnd Winnipegs vatns. Þar umgekkst hún bræðurna Gary og Raymond sem eru af ættbálkn- um Ojibway og fylgdist með störf- um þeirra en þeir hafa ferðast víða og kennt menningu forfeðra sinna í skólum og á vinnustöðum. „Ég tók viðtöl við þá bræður og reyndi að læra sem mest af þeirra aðferðum. Ásamt því að ástunda fræðin sinnti ég daglegum störfum og stundaði meðal annars veiðar“ segir Björk og bætir við að þó frostið hafi oft farið niður í 30 stig þá hafi vetur- inn verið með þeim hlýrri í minn- um heimamanna. „Ég lærði mikið af þessari vist. Gary hefur unnið frábært starf í þessum geira en hann er sjálfstætt starfandi og hef- ur búið til sitt eigið starf í tengslum við þessa menningu. Meðan ég var að vinna með honum þá var ég oft að hitta fólk sem bar Islendingum vel söguna og sögðu þá sem fluttu vestur um haf hafa aðstoðað frum- byggja við að yrkja landið og leysa úr ýmsum vandamálum sem upp komu enda voru þeir vanir erfiðum aðstæðum að heiman. íslendingar náðu að koma vel undir sig fótun- um við Winnipegvatn, urðu miklir fiskimenn og gátu ráðið til sín fólk frá Hollow Water í vinnu til sín.“ Heillandi menning Björk heillaðist fljótt af menning- unni við Winnipeg vatn og þá ekki síst af samruna þessara tveggja menningarheima. „Mér fannst áberandi hve orðstír islensku landnemana meðal frumbyggjana virðist vera góður og margir nú- lifandi afkomendur frumbyggja hugsa hlýlega til íslendinganna sem sigldu vestur um haf. Þetta er gagnkvæmt því afkomendur Vest- ur- Islendinga bera frumbyggjum á svæðinu lika mjög vel söguna. Auðvitað heyrði ég líka ýmislegt neikvætt en samstarf frumbyggja og Islendinga við Winnipeg vatn virðist hafa verið ákaflega farsælt og það samfélag sem þar spratt upp gott og gjöfult. Þessir tveir menn- ingaheimar runnu farsællega sam- an og frá um 1920 og allt til ársins 1970 var mikil og góð fiskveiði við Winnipegvatn. Björk þótti sérstak- lega merkilegt að komast að því að hópur Vestur-íslendinga virðist hafa tekið þátt í og verið áhorf- endur að helgum athöfnum frum- byggja. „Frumbyggjar buðu ekki hverjum sem var að taka þátt i sínum helgu athöfnum og því kom þetta mér nokkuð á óvart. Þetta voru einkum athafnir tengdar nátt- úrunni, verið var að biðja um góða uppskeru, þakka fyrir gott árferði og fleira í þeim dúr.“ Kennir trommugerð Síðasti vetur var viðburðarík- ur hjá Björk í landinu kalda. „Ég reyndi að nýta tímann vel og læra sem mest inn á menningu og siði frumbyggjanna. Þegar leið á vetur- inn fór ég að taka viðtöl við fólk sem gat sagt mér frá samskiptum Islendinga og frumbyggja. „Þetta eru allt sögur sem lifað hafa í munn- legri geymd, ég get ekki alhæft um að þær hafi ekki verið skráðar en það sem er einstakt við það sem ég hef verið að gera er að ég er ekki að nota heimildir upp úr bókum held- ur ferðast um, tala við fólk og skrái niður það sem það hefur að segja.“ Björk mun halda aftur út til Kan- ada i næstu viku þar sem hún stefn- ir ótrauð að því að halda áfram sín- um rannsóknum. „Ég ætla að halda áfram að hitta fólk og taka viðtöl. Ég er að gera þetta á eigin spýtur, er að koma undir mig fótunum í Kan- ada og verða mér út um atvinnuleyfi. Mig langar til þess að vinna við að kenna íslenska menningu, þjóðsög- ur, þjóðtrú og siði í Kanada. Þegar ég kem aftur til Manitoba mun ég byrja á því að aðstoða Gary Raven við að kenna börnum í grunnskólan- um í Hollow Water hvernig á að búa til trommur að hætti frumbyggja,“ segir Björk sposk. Málþingið er haldið í samstarfi við Reykjavíkur- Akademíuna og hefst í dag kl 10 en frummælendur auk Bjarkar eru þau Viðar Hreinsson, Gísli Pálsson, Garð- ar Baldvinsson, Gísli Sigurðsson og Ásta Sól Kristjánsdóttir og fundar- stjóri Salvör Nordal. hilma@bladid.net „SVONAÁAÐ SEGJA SÖGU." ■ ni AÐEINS 4 SÝNINGAR! TILNEFNT TIL GRlMUNNAR 2006 BORGARLEIKHÚSIÐ „UNDRABÖRN ERU andstyggileg; BORGARLEIKHÚSIÐ Haukur Már sendir frá sér skáldsögu Út er komin hjá Nýhil skáldsagan Svavar Pétur & 20 öldin eftir Hauk Má Helgason. Þar segir frá bankastarfsmanninum Svavari Pétri Svavarssyni sem er gert að flytja likið af John Lennon frá New York til Kópavogs, þar sem því verður stillt upp við hafnarmynnið til að bjóða íbúa velkomna í 20. aldar-garðinn Öldina okkar. „Atburðastýran" Ást- hildur gerir Svavari Pétri tilboð sem hann getur ekki hafnað uns verkefnið vex honum, vægast sagt, yfir höfuð, og jafnvel persónu- legustu minningar hans sjálfs af 20. öldinni eru ekki lengur óhultar. Þetta er fyrsta skáldsaga Hauks Más en áður hefur áður sent frá sér Ijóðabækur og kennslubækur. Von er á tveimur skáld- sögum til viðbótar frá Nýhil fyrir jólin. Þær eru wr Fenrisúlfur eftir Bjarna Klemenz og Eitur fyrir byrj- endur eftir Eirík Örn Norðdahl

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.