blaðið - 21.10.2006, Blaðsíða 25
24 LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2006
blaðiö
„Ég held að maður eigi ekki að stefna
Þakklát
lífinu
Guðmunda Elíasdóttir
fer með hlutverk í
Mýrinni, mynd Balt-
asars Kormáks. Guð-
munda naut mikillar
hylli á sínum tíma
sem söngkona en sneri sér síðan
að söngkennslu. Hún hefur leikið
i allnokkrum kvikmyndum. „Hlut-
verkið í Mýrinni er það erfiðasta,“
segir hún. „Mjög skemmtilegt hlut-
verk en erfitt því ég varð að tala á
mjög harðri skagfirsku. Ég fékk
kennara sem breytti mér í skag-
firska kerlingu. Það var mjög gaman
að leika í Mýrinni af því að Baltasar
er svo stórkostlegur og ljúfur og nær
að laða allt það besta fram í öðrum
með blíðunni - og það er list.“
Þú ert 86 ára, skiptir þig miklu
máli aðfá að tjá þig í einhvers konar
listsköpun?
„Já, það er lífið sjálft, fyrir utan
nánustu fjölskyldu. Þegar ég hætti
að kenna söng vissi ég eiginlega ekki
hver ég var. Það tók mig tíma að átta
mig en nú hef ég alltaf nóg að gera.
Ég skrifa dagbók á hverjum degi og
það tekur sinn tíma. Ég ræð mér
sjálf og bý í góðri íbúð hér á Vestur-
götu, besta stað i bænum. Stundum
fer ég í bíltúr með fólki upp í sveit
og þá finnst mér allt svo fallegt og
Island vera svo guðdómlegt. Þá skil
ég hvers vegna mér fannst ég alltaf
verða að komast heim, þótt ég byggi
í útlöndum, eins og ég gerði svo lengi,
bæði í Danmörku og Ameríku."
Að gefaafsér
Ætlaðirðu þér alltaf að verða
söngkona?
„Það var ekki til neitt annað í huga
mér frá því ég man eftir mér en að
verða söngkona. Ég hafði mikinn
metnað til þess. Ég var alltaf syngj-
andi. Ég held að maður eigi ekki
að stefna á peninga og heldur ekki
stefna á frægð. Hvort tveggja er
mjög fallvalt. Þetta vissi ég einhvern
veginn frá byrjun. Ég vildi bara
syngja og læra og læra og læra.“
Mér leið aldrei betur en þegar ég
var á sviði. Fyrir sýningar fannst
mér ég vera að deyja og fór með
faðirvorið hvað eftir annað bak við
tjöldin en á sviði var ég allt önnur
manneskja. Ég gjörbreyttist. Þegar
ég var að syngja þá var ég bara að
hugsa um það að gefa af mér, gefa og
gefa, og ég var ekki að hugsa um að
ég væri að syngja fyrir fjölda fólks.
Ég sá fyrir mér nokkrar manneskjur
og söng fyrir þær. Ég get ekki al-
mennilega skýrt þetta fyrir þér, það
er voða skrýtið en eitthvað gerðist
innra með mér og ég fékk kraft og
þakkaði guði. Eins er það þegar ég
var að kenna söng, sem ég gerði í ára-
tugi. Þá var eins og eitthvað kæmi
yfir mig. Ég varð örugg, viss um það
sem ég var að gera.“
Tækifæri og raddmissir
Þú söngst í sjónvarpi og útvarpi í
Bandaríkjunu. Hefðirðu ekki getað
náð frama þar eða hafðirðu ekki
nógan áhuga á því?
„Það er ómögulegt að
lifa án þess að trúa
á ástina. En ástin er
duttlungafull, hún er
eins og nýfæddur kjúk-
lingur sem veit ekkert í
sinn haus."
„Ég er komin á þá skoðun að það
hefði verið óþarfi að fara til Amer-
íku. Já, ég fékk mörg tækifæri þar
og í þrjú ár kom ég reglulega fram
í sjónvarpsþætti hjá lúthersku kirkj-
á peninga og heldur ekki stefna á
frægð. Hvort tveggja er mjög fallvalt.
Þetta vissi ég einhvern veginnfrá
byrjun. Ég vildi bara syngja og
læra og læra og læra."
Vaxtalaus
greidslukjör
í allt að 24
mánuði
(visa/euro) Engin útborgun
Sjóntækjafræðingur með
réttindi til sjónmælinga og
linsumælinga
Ssieraugað
Bláu húsin við Faxafen
Suðurlandsbraut 50
108 Reykjavík
Sími: 568 1800
Fax: 5682668
gleraugad@simnet.is
www.gleraugad.is
blaöiö
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2006 25
unni. En stóra tækifærið kom ekki.
Kannski hefur einhverju ráðið að ég
hef aldrei getað markaðssett sjálfa
mig. Svo missti ég röddina. Það var
áfall. Röddin kom aftur en ég söng
ekki eins mikið og áður eftir það
heldur sneri mér að söngkennslu."
Afhverju misstirðu röddina?
„Eg var gift kona með tvö lítil börn
og bjó í New York. Það er erfitt að
vera með tvö lítl börn í þeirri borg
og það kom svo margt upp á, þar á
meðal skilnaður. Ég vil samt ekki
kenna einkalífinu eingöngu um. Ég
skrapp heim til íslands eitt árið með
dóttur mína, drengurinn var eftir
í Ameríku hjá pabba sínum og allt
var í klúðri. Svo var ég ráðin til að
syngja í Kiss Me Kate í Þjóðleikhús-
inu. Ég vaknaði einn morguninn og
var raddlaus. Mér varð mikið um og
fór til ýmissa lækna en fékk ekkert
ákveðið svar. Ég held að þetta hafi
verið taugaáfall. Annars veit ég það
ekki. En skilnaður og það að geta
ekki sungið lengur var eins og enda-
lok á öllu. Hver var ég eiginlega? Ég
var eins og nakin.“
Varstu ekki hamingjusöm í hjóna-
bandi þínu?
„Ég er oft að hugsa um hvað sé eigin-
lega hamingja. Hvernig eigum við að
skilgreina hamingju? Hversdagslífið
býður ekki bara upp á rauðar rósir.
Þetta var nokkuð erfitt líf og margt
búið að koma upp í okkar sambandi
og það safnaðist upp og svo sprakk
aUt.“
Varþetta þá ekki ást?
„Ég veit það ekki. Veistu, hjóna-
band getur orðið vani. Maður
finnur öryggi við tilhugsunina um
að það séu tveir sem sjái um börnin
en ekki bara einn. Svo er mikil-
vægt að reyna að láta hjónabandið
ganga þótt einhverjir skellir verði
öðru hvoru. Annað þýðir ekkert.
Stundum þarf að breiða yfir ágrein-
ing, melta vandamálin og biðja Guð
að hjálpa sér með næsta skref. En ef
ástandið er orðið svo erfitt að engin
lausn finnst þá verður að slíta hjóna-
bandinu. Mér varð ljóst að þetta gat
ekki gengið hjá okkur. En þetta var
góður maður, gullsmiður, og svaka-
lega fínn listamaður á sínu sviði.“
Stóra ástin
Trúirðu á ástina?
„Það verð ég að gera. Það er ómögu-
legt að lifa án þess að trúa á ástina.
En ástin er duttlungafull, hún er
eins og nýfæddur kjúklingur sem
veit ekkert í sinn haus.“
Rúmlega fimmtug kynntistu
Sverri Kristjánssyni sagnfrœðingi
sem varð seinni maðurþinn. Er ekki
allt annað að verða ástfangin þegar
maður er fullorðinn en þegar maður
er ungur?
„Ég held að það sé sterkari til-
finning þegar maður er eldri af því
maður er kominn með vit í kollinn
og orðinn reyndari í tilverunni.“
Hvað hreifþig við Sverri?
„Ég er oft að spekúlera í því eftir að
hann er farinn frá mér. Hann hafði
afskaplega fallega rödd og ég elska
raddir.
Framhald á næstu opnu
MYNDIR/FRIKKI
„Fólk sem ég hef
unnið með sendir mér
blóm og þá verð ég
glöð og þakklát líf-
inu því ég heffengið
staðfestingu á því að
ég hafi látið eithvað
gott afmér leiða.
Enginn fer að gefa ein-
hverri ótukt blóm."
dúnsængur & koddar
náttborð verð 9.800
rafmagnsrúm verð frá 84.510
eldhússtólar
barstólar
sjónvarpsherbergið
borðstofa
stólar / casper 39.000
sófasett & hornsófar
svefnsófar
www. toscana. is
SMIÐJUVEGI 2. KOP S.587 6090
HÚSGÖGNIN FÁST EINNia i HUSGAGNAVAL. HÓFN S: 478 2535
mm ! 6**WL-J PDi
i -1 rl 1
.fc&aKííUí 'íiS Sí&i; *, m ■kaíi . .. 1
1 V SPSá i