blaðið - 02.12.2006, Side 39
blaöiö
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 3 9
Það er nóg að gera hjá
Ragnhildi Gísladóttur
tónlistarkonu. I næstu
viku verður hún í hópi
fimm söngkvenna
sem stíga á svið í Laug-
ardalshöll á stærstu
jólatónleikum sem haldnir hafa
verið hér á landi. Geisladiskur með
verki hennar Bergmáli, við texta
Sjóns, er væntalegur á markað. Auk
þessa er Ragnhildur önnum kafinn
nemandi í Listaháskóla Islands þar
sem hún stundar nám í tónsmíðum.
Ragnhildur segir tónleikana i
Laugardalshöll vera spennandi. „Ég
hlakka til að hitta Petulu Clark. Ég
lít á Eyvöru Pálsdóttur sem okkar
konu þótt hún sé færeysk, hún er
allavega náfrænka. Sissel Kyrkjebo,
sú norska, er einnig frænka eins
og sú írska. Þarna eru frænkur að
syngja saman. Svo er þarna söng-
kona frá Grikklandi. Nú þarf maður
bara að standa sig á sviðinu."
Ertu stundum kvíðin þegar þú
stígur á svið?
„Ég er oft kvíðin áður en ég stíg
á svið en er að reyna að venja mig
af því. Það fer svo mikil orka í það.
Stundum hef ég verið svo tauga-
óstyrk þegar ég stíg á svið að ég er
allt fyrsta lagið að jafna mig á kvíð-
anum. Það er mjög óþægilegt. En ég
þarf ekki að syngja lengi til að orkan
magnist. Ef fólk er leitt eða í fýlu
þá ætti það að taka lagið. Ástandið
verður betra."
Finnst þér við oftgleyma því hvað
söngurinn er mikils virði?
„Við áttum okkur ekki á því hvað
það að syngja magnar upp mikla
orku. Það er ekki að ástæðulausu
að munkar og fólk sem stundar hug-
leiðslu notar tóna til að jafna eða
efla orku. Það setur af stað víbra
sem virka á allan líkamann.
I fyrra var ég með verkefni í Lista-
háskólanum. Eg fékkheyrnarlausan
tólf ára dreng til að syngja fyrir mig.
Hann horfði til dæmis á sjónvarp og
sá fólk syngja og sá líka alls konar
skemmtilegar myndir. Svo fór hann
að syngja. Hann söng alltaf í svip-
aðri tóntegund. Hans náttúrulega
rödd var þarna og var frábær. Hann
söng guðdómlega og af svo mikilli
tilfinningu að ég fór að gráta. Ég
er ekki að grínast með það. Ég held
að hann sé uppáhaldssöngvarinn
minn. Hann heitir Arnold.“
Hvað með þig. Fðrstu að syngja
um leið ogþúgast talað?
„Pabbi var organisti í kirkju og
ég fór með honum þangað og söng
eitthvað með kirkjukórnum. Ég var
afskaplega feimin við að syngja. For-
eldrar minir vissu ekki hvernig ég
söng fyrr en þau heyrðu mig syngja
á plötu. Annars lít ég ekkert frekar á
mig sem söngkonu en tónlistarmann.
Mitt hlutverk er að búa til tónlist."
Auðmjúkur nemandi
Þú ert að lœra tónsmíðar í Lista-
háskólanum. Hvernig lærir maður
svoleiðis?
„Að fara í skóla er inspírasjón, þar
er maður leiddur inn í hulda heima
og sýnt hvaða aðferðir snillingarnir
notuðu. Svo er maður jafnvel látinn
semja með sömu aðferðum en það
kemur aldrei jafn snilldarlega út og
hjá meisturunum, en það kemur þá
eitthvað annað.“
Þegar fólk hefur lengi unnið í
ákveðnu fagi og fer svo í skóla þá er
hætt við að það hugsi: Hvað er ég að
gera hér? Ég kann þetta allt saman.
„Það er akkúrat öfugt þegar ég á
í hlut. Mér finnst ég ekkert kunna.
Ég er auðmjúkur nemandi, sem er
stundum óþægilegt. Ég hugsa: Hvað
er ég að gera? Er ég að misskilja
þetta allt? Ég hugsa oft þannig."
En ertu ekki ánœgð með ferilinn
fram að þessu?
„Ég er þakklát fyrir þessa skemmti-
legu og miklu reynslu. Ég hef reynt
margt sem aðrir hafa ekki haft tæki-
færi til. Þetta eru orðin mörg ár og
það eru forréttindi að fá að vinna
við sitt áhugasvið.“
Hvernig á við þig að vera {
sviðsljósinu?
„Ég velti því stundum fyrir mér
af hverju ég sé í sviðsljósinu. Eru
þetta komplexar í manni sjálfum?
Áf hverju er þessi sýningarþörf í
manni? Hún stafar auðvitað af því
að manni finnst maður vera að
gefa eitthvað af sér. Auðvitað gerir
maður ekki ráð fyrir að allir kunni
að meta það og það sem maður er að
gera er ekki alltaf stórkostlegt. Samt
er þessi þörf þarna og sömuleiðis
þörf fyrir að gera alltaf betur. Mér
finnst ég aldrei gera alveg nógu vel.
Ég reyni alltaf að gera betur næst.“
Hvað meðfréttir áforsíðumslúður-
blaða, til dæmis um skilnað og nýtt
samband? Hvernig tekurðu slíkum
fréttaflutningi?
„Það er skrýtið að heimurinn
skuli þróast í þessa átt, maður hefði
haldið að hann myndi þróast í vit-
„Maður uppsker eins og
maður sáir. Það sem maður
segir, það sem maður gerir,
hittir mann hvort sem það
ergott eða illt."
rænni átt. Þetta er eitthvert skrítið
tímabil sem við þurfum að fara í
gegnum. Vonandi fer þetta að breyt-
ast til hins betra.
Finnst þér mikilvægt að þróast
sem manneskja oglistamaður?
„Já, og vera opin fyrir því að breyta
til, hætta því sem maður er að gera
og fara að gera eitthvað annað.“
/ hugum fólks ertu tengd Stuð-
mönnum. Varð það ekki eins og
hjónaband að vera í hljómsveitinni?
„Það var frábær skóli. Þetta var
ekki bara nokkurra mánaða skóla-
vist heldur mörg ár. Ég kynntist
þessum frábæru mönnum sem eru
algjörlega einstakir. Heildin bjó yfir
mjög sérstökum krafti. Svo kom að
því að mig langaði til að breyta til.
En það var gaman hjá okkur.“
Aldrei ífríi
Þú hefur sungið víða um heim og
kynnst ólíkum menningarþjóðum.
Hvaða þjóð hefur haft mest áhrif á
þígf
„Ég hef farið nokkrum sinnum til
Japans að syngja þar. Ég hef verið
svo heppin að vera þar í hópi sér-
stakra manna, munka og hljóðfæra-
leikara sem hafa lært á gömul og
sérstök hljóðfæri. Þetta eru tónlist-
armenn sem sinna listinni af mikilli
virðingu.
Framhald á nœstu opnu
Allt á einum stað...
borðstofa
sjónvarpsherbergið
svefnsófar
sófasett & hornsófar
svefnsófi TILBOÐ 59.600.-
rafmagnsrúm verð fra 84.510
sjonvarpssofi
eldhusborð
hvíldarstóll / 4497
4
Koge / hvíldarstóll
stólar / casper 39.000.-
Samba
full búð af jólatilboðum
www. toscana. is
t :)
HUSGAGNAVERSLUN
TOSCANA
SMIDJUVEGI 2 KOP S 587 6090
HÚSGOGNIN FAST FJNNIG I HUSGAGNAVAL. HOFN S: 478 2535