blaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 2

blaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006 blaöið VEÐRIÐ í DAG ÁMORGUN VÍÐA UM HEIM Víða bjart Dálítil snjókoma eöa él á Norður- og Austurlandi, annars úrkomulítið og víða bjart veður. Frost 0 til 12 stíg', káídast í uppsveitum suðvestanlands. Léttskýjað Hæg norðvestlæg eða breytileg átt. Él við norð- urströndina, annars létt- skýjað. Frost 0 til 8 stig, en 10 til 15 í innsveitum. Algarve Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Dublin Frankfurt 16 12 14 10 8 9 7 Glasgow Hamborg Helsinki kaupmannahöfn London Madrld Montreal 9 New York 11 Orlando 5 Osló 10 Palma 13 París 9 Stokkhólmur 4 Þórshöfn 9 w 6 19 6 10 6 Svíþjóð: Klósettpappír- inn loks búinn Lögreglustöðin í Hagfors í Svíþjóð hefur neyðst til að kaupa klósettpappír i fyrsta sinn eftir að hafa verið með nægar birgðir síðustu tuttugu árin. Mistök í pöntun árið 1986 ollu því að lögreglustöðin sat uppi með tuttugu bretti af klósettpapp- ír í stað tuttugu pakka. Lögregla íhugaði á sínum tima að skila pappírnum, en taldi slíkt of tímafrekt og kostnaðarsamt. Stúlka slasast: Missti tönn í trylltum dansi Lögreglan var kölluð upp í Breiðholt á miðvikudaginn vegna sjö ára gamallar stúlku. Hún hafði verið að dansa með vini sín- um innandyra þegar hún missti fótanna í snúningnum og datt. Stúlkan missti tönn við fallið og önnur losnaði. Stúlkan var þó ekki sú eina sem slasaðist þennan dag því lögreglan fékk einnig tilkynningu um áttræð- an mann sem fótbrotnaði. íslendingar snemma á ferðinni: Jólatrén að klárast Jólabækur: 95 prósenta verðmunur Allt að 95 prósenta verðmunur var á nýjum jólabókum þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í bókaverslunum og stórmörk- uðum í fyrradag. Office 1 var oftast með lægsta verðið eða á 36 titlum af þeim 37 sem kannaðir voru. Á öllum titlum reyndist yfir 50 prósenta munur á hæsta og lægsta verði en í flestum tilvikum 60 til 65 prósent. Hæsta verðið var oftast í Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi og í Pennanum Ey- mundsson í Kringlunni. ■ Fyrstur kemur fyrstur fær ■ Von á aukasendingu fyrir helgina Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net „Það er allt að verða vitlaust hjá okkur og salan hefur þrefaldast frá því í fyrra. Færri tré virðast vera í umferð og ég man ekki annað eins. Nú fer hver að verða síðastur að ná sér í tré,“ segir Trausti Gunnarsson, umsjónarmaður jólatréssölu Blóma- vals í Grafarvogi. Færri virðast selja jólatré nú í sam- anburði við síðustu ár. Samkvæmt heimildum eru jólatrén víða að klárast og styttist í að þau verði upp- seld. Trausti á von á gámi af trjám í aukasendingu þar sem lagerinn var nánast uppurinn. Hann telur líklegt að hann muni eiga tré á lager yfir helgina sem framundan er en óljóst sé með næstu viku. „Þetta er alveg ótrúlegt ævintýri hvernig salan hefur verið. Lætin eru svo mikil að grunnlagerinn er að klárast. Þetta sleppur alveg nú um næstu helgi,“ segir Trausti. Pöntuðu aukalega Eirikur Sæland, garðyrkju- maður í Garðheimum og umsjón- araðili jólatréssölunnar, segir fyrirtækið hafa pantað töluvert aukalega af trjám þar sem mun færri seljendur yrðu á mark- aðnum í ár. Hann segir söluna hafa gengið vonum framar. „Við eigum nóg af trjám ennþá. Ég gæti trúað því að lítið sé til því það eru færri á markaðnum núna, en við reiknuðum með því,“ segir Eiríkur. „Helgin ræður úrslitum um ástandið og ekki víst að við munum eiga tré fram á síðasta dag. Ég mæli með því að fólk sé snemma á ferðinni núna til að tryggja sér tré.“ Seldust upp í fyrra Ásgerður Einarsdóttir, umsjón- armaður jólatréssölu Flugbjörg- unarsveitarinnar.segirjólatréssöl- una hafa farið óvenjuvel af stað í ár. Hún bendir á að í fyrra hafi öll tré selst upp á Þorláksmessu en i ár gæti það verið fyrr. „Við reynum alltaf okkar besta og þetta byrjar mjög vel. Furan er sérstaklega fal- leg í ár og til að tryggja sér hana er gott að mæta snemma," segir Ásgerður. „Ég býst við miklu fjöri núna um helgina og treysti mér ekki til að lofa því að tré verði til þegar nær dregur jólum.“ Mjólka: Úrskurður staðfestur Áfrýjunarnefnd samkeppn- ismála hefur staðfest úrskurð Samkeppniseftirlitsins um að Osta- og snijörsalan hafi brotið samkeppiiislög með því að mis- nota markaðsráðandi stöðu sína. Segir í úrskurði áfrýjunar- nefndarinnar að Samkeppniseft- irlitið hafi leitt i ljós að Osta- og smjörsalan hafi í október í fyrra sett upp annað verð á undanrennudufti fyrir Mjólku en Ostahúsið. Þar með hafi við- skiptavinum verið mismunað og staðfesti áfrýjunarnefndin þann úrskurð. Forsetabíllinn: Örlög bílsins enn óráðin Örlög fyrsta forsetabílsins eru enn óráðin. Bílasmiður sem stóð í endurbótum á bílnum hefur sent greiðslukröfu á emb- ætti forseta Íslands, Bílgreina- sambandið og Þjóðminjasafnið, þar sem hann hótar að selja bílinn á uppboði. Fulltrúar þessara þriggja stofnana hafa á undanförnum vikum fundað um mögulegar málalyktir en enn hefur engin niðurstaða fengist. Ekki er reiknað með neinum máls- lyktum fyrr en eftir áramót. Seiður lands og sagna IV Fjórða bókin í hinum glæsilega bókaflokki Gísla Sigurðssonar blaðamanns og ritstjóra. í þessari bók er fjallað um Mýrar og Snæfellsnes. Eins og í fyrri bókum er efnið sótt í sögu þjóðarinnar frá landnámi til okkar tíma. Á fimmta hundrað ljósmyndir, málverk, teikningar og kort prýða bókina. Glæsilegt afrek í íslenskri bókargerð SKRUDDA Eyjarslóð 9 - 101 R. skrudda@skrudda.is Spað 1 jolaveðrið: Grámóskuleg jól Jólin verða grámygluleg á höfuð- borgarsvæðinu en góðar líkur eru á því að norðanmenn njóti jólasnjós yfir hátíðarnar. Þetta er álit Sigurðar Þ. Ragnarssonar veðurfræðings. „Mér sýnist á öllu að Norðlend- ingar verði með hvítan heilagleika á jörðinni, þeir fá jólagjöfina í ár.“ Sig- urður er ekki bjartsýnn á að íbúar höfuðborgarsvæðisins njóti hvítra jóla. „Við verðum með hita um eða yfir frostmarki og ef einhver úr- koma fellur verður hún tiltölulega blaut. Þetta verða grámóskuleg jól.“ Sigurður segir að á suðvesturhorn- inu verði hæglætisveður og að þessir tíðu stormar sem hafa skollið á landsmenn undanfarnar vikur séu ekki í kortunum eins og stendur. „Ef ekki verða kollsteypur í þessu þá erum við að horfa upp á fremur hægan vind, eitthvað suðrænt ættaðan, með úrkomu, sennilega skúrum eða slyddu á aðfangadag í höfuðborginni. Fyrir norðan á ég frekar von á því að sú úrkoma falli sem snjór.“ Þórólfur Jónsson, forsvarsmaður Veðurklúbbsins á Dalvík, tekur í svipaðan streng og Sigurður. „Þetta verða frekar dökk jól sunnanlands en svona skjöldótt fyrir norðan en um áramótin verður mjög þokka- legt veður víða um land.“ Snjólaus aðfangadagur ibúar höf- udborgarsvæðisins sem þrá hvit jói verða fyrir vonbrigðum þetta árið. ■VifSCÍPj' t Íí í' (/••<? ' , ; ■~mt££'wrý..
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.