blaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 18

blaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006 blaðið Macfnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslyndra: Eg ætla ekki að víkja baráttulaust Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net „Núna getum við farið að einbeita okkur að flokksstarfinu og það er mjög gott. Það var nánast lamað á meðan þetta gekk yfir,“ segir Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, i tilefni leyfis Margrétar Sverrisdóttur, fram- kvæmdastjóra flokksins, fram yfir landsþing í lok janúar. „Það segir sig sjálft að það skapast erfitt ástand þegar maður er með framkvæmdastjóra sem vitað er að er á fullu í að búa sér til einhverja víg- stöðu til að geta hjólað í mann í fram- boði seinna meir á landsþinginu.“ Margrét Sverrisdóttir segir að nið- urstaðan um að hún færi í launað leyfi, sem greint var frá eftir mið- stjórnarfund Frjálslynda flokksins í fyrradag, hafi í raun náðst á sátta- fundinum í síðustu viku. „Það máeig- inlega segja það þótt maður væri ekki með allt í hendi þannig séð. Forystan samþykkti launað leyfi en svo var ós- kað sérstaklega eftir því að ég sinnti ýmsum verkefnum, eins og skipulagn- ingu landsþings að hluta. Bara það að ég taki þátt í undirbúningi lands- þings ætti að tryggja á báða bóga að engin tortryggni skapist. Ég mun einnig ganga frá bókhaldi og skýrslu framkvæmdastj órnar.“ Fyrir nokkrum vikum lýsti Margrét því yfir að það færi eftir þróun mála hvort hún byði sig fram í embætti formanns eðavaraformanns. „Miðstjórnarfund- urinn var mjög góður , fundur. Farið var Til í slaginn Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins. hreinskilnislega fyrir þessa ólgu sem hefur verið þótt menn hafi í sjálfu sér ekki verið að útkljá málin. En ég ætla að gefa mér tíma tilaðíhuga hvort ég bjóði mig fram. Það hafa margir hvatt mig til að g e f a kost á mér í for- Gefur sér tíma Margrét Sverrisdóttir, framkvæmda stjóri Frjálslynda flokksins. ystuna um nokkra hríð.” Það er mat Margrétar að málefna- ágreiningur verði flokknum ekki mikið til trafala á næstunni. „Það fer bara eftir því hvernig málin þróast. “ Magnús Þór kveðst ekki koma auga á neinn málefnaágreining. „Margrét fagnaði umræðunni um innflytj- endur þegar hún kom fram á sínum tíma en sneri svo við blaðinu. Ég tel að það sé verið að búa til málefnaágrein- ing til að geta farið í kosningar. Ég tel augljóst að hún stefni á embætti for- manns eða varaformanns. Það verður tekið á móti henni þar. Ég ætla ekki að víkja, ekki baráttulaust." — Fjölskylduspil arsins „Mikið fjör og öil mín reynsla bar soninn ofurliði. Frábært spil Guðni Bergsson „Ég og dætur mínar elskum þetta spil en af hverju tapa ég alltaf?" Valtýr Björn Valtýsson HAGKAUP SkemtntlUgAjt Á& vírfit^ vodafone : ■•■; • ■ :■ .".■•■. .■■■', Svíþjóð: íbúar Fjuckby langþreyttir tbúar sænska smábæjarins Fjuckby eru orðnir langþreyttir á öllum þeim kynferðislegu athuga- semdum sem þeir fá frá fólki þeg- ar greint er frá nafni heimabæj- arins og vilja nú nafnbreytingu. I bænum, sem er norður af Uppsölum, búa sextíu manns og nú krefjast 21 íbúi þess að nafninu verði breytt í hlutlausara nafn, Fjukeby. „Þetta er einfaldlega orðið þreyt- andi. Við viljum ekki að nafn bæj- arins verði umtalsefni þegar við hittum annað fólk,“ segir Katrina Flensburg sem fer fýrir hópnum. Samgöngur Hvalfjarðar- göng stækki Ríkisstjórn og Alþingi ættu að tryggja nú þegar fjármuni til að tvöfalda þjóðveginn um Kjalarnes og undirbúa stækk- un Hvalfjarðarganga í beinu framhaldi af því. Þetta er skoðun bsejarstjórnar Akraness. I samþykkt bæjarstjórnar segir að umferð um Kjalar- nes og í Hvalfjarðargöngum hafi aukist um tólf til fjórtán prósent á ári undanfarin ár eða Íangt umfram landsmeðaltal. SMÁAUGLÝSINGAR KAUPA /SELIA blaöiðs SMAAUGLYSINGAR@BLADID.NET
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.