blaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006
blaöiö
Glóð í reykofni
Hringt var í slökkviliðið vegna reyks í iðnaðar-
húsnæði við Fossháls í Reykjavík í fyrrakvöld. I
Ijós kom að glóð var í reykofni sem ekki átti að
vera í gangi. Sama kvöld var logaði eldur í bif-
reið við Skútuvog og við Nýbýlaveg í Kópavogi.
BOLUNGARVIK
Tvær gangaleiðir ákjósanlegar
Þrjár gangaleiðir milli (safjarðar og Bolungarvíkur upp-
fylla skilyrði samkvæmt skýrslu Vegagerðarinnar. Þetta
eru Hnífsdalsleið, Skarfaskersleið og Tungudalsleið.
Bæjarráð Bolungarvíkur telur að Skarfaskersleið og
Tungudalsleið séu álitlegustu kostirnir.
Kveiktu í blaðabunka
Lögreglan á Akureyri hefur upplýst íkveikju við Drekagil á
Akureyri seint í nóvember. (Ijós kom að þrír piltar á aldrinum
tólf til fjórtán ára kveiktu í. Einn þeirra játaði íkveikju í blaða-
bunka í gangi hússins. Máli þeirra var vísað til barnaverndaryf-
irvalda en þeir eru ósakhæfir vegna aldurs.
E EIMSKIP
Sjá næsta afgreiðslustað á www.eimskip.is
SMAAUGLYSiNGAR
blaðiðs
SMAAUGLYSINGAR@BUOID.NET
Nafnbreyting hjá KB banka í Kaupþing:
Gömlu nöfnin meira
spes
■ Herferð milli jóla og nýárs ■ Hefur valdið ruglingi ■ Kostnaður ekki Ijós
'
KB banki Nafni bankans
verður breytt á næstunni í
Kaupþing og herferð feri
I gang milli jóla og nýárs. Und-
irbúningurinn hefur staöið
[ yfir um nokkurt skeiö.
Blatll/lngó
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Ákvörðun um þessa breytingu var
tekin fyrr á þessu ári og undirbún-
ingur hefur staðið yfir um nokkurt
skeið. Breytingin er sú að KB banka-
heitið hverfur, en Kaupþing kemur
í staðinn. Kynningarefni bankans
verður breytt til samræmis,“ segir
Ingólfur Helgason, forstjóri KB
banka.
Stjórnendur bankans hafa
ákveðið að breyta nafni bankans úr
KB banka yfir í Kaupþing. Á milli
jóla og nýárs mun bankinn ráð-
ast í kynningarherferð til þess að
kynna nafnbreytinguna fyrir lands-
mönnum. Starfsmönnum hefur
þegar verið tilkynnt hið nýja nafn
bankans. Ingólfur segir kostnað-
inn við herferðina ekki endanlega
liggja fyrir en gera má ráð fyrir að
hann verði á bilinu hundrað til tvö
hundruð miljónir. „Markaðsdeild
bankans mun vinna kynningarefni
vegna þessarar nafnbreytingar í
samvinnu við auglýsingastofu bank-
ans. Þessi mál eru í vinnslu og því
lítið meira hægt að segja um þau að
svo stöddu,“ segir Ingólfur.
Minna spes
Guðmundur Oddur Magnús-
son, prófessor í grafískri hönnun
við Listaháskóla íslands, er ekki
sannfærður um að nafnbreyting
íslenskra stórfyrirtækja sé réttur
leikur. Hann telur umfangið við
breytinguna vera gífurlegt í ljósi
stærðar fyrirtækisins. „Afleiðing
útrásarinnar hefur verið sú að
mönnum finnst eðlilegt að breyta
nöfnunum í samræmi við tísku-
strauma erlendis. Raunverulega
eru allir samtímastraumar að fara
í hina áttina þar sem sérstaðan
þykir merkileg,“ segir Guðmundur
Oddur. Nú verður til dæmis tekið
aftur upp nafn Eimskipafélags
Islands. Mín tilfinning er sú að í
framtíðinni verði meiri eftirspurn
eftir hinu sérstæða en að þurfa að
haga sér eins og alþjóðlegu stórfyr-
irtækin. Ég held að það verði meira
spes að heita áfram sínum uppruna-
legu sérstæðu íslensku nöfnum.“
Ruglingur víða
Aðspurður segir Ingólfur nafn-
brey tinguna lið i langtímaáformum
bankans um að hann starfi sem
víðast undir sama heitinu, Kaup-
þing. Hann geri það víðast hvar er-
lendis þar sem hann starfar. „Að
nokkru leyti hefur undirbúning-
urinn haldist I hendur við endur-
nýjun á útibúum okkar sem hefur
farið fram og mun halda áfram
Ákvörðun um
■ þessa breytíngu
var tekin fyrr á
lúi iL þessu árl
Ingólfur Helgason,
forstjórl KB banka
/ framtiðinni
verðl meiri eftír-
spum eftír hlnu
sérstæða
Guðmundur Oddur
Magnússon.prófessor í
grafískri hönnun
næstu misserin,“ segir Ingólfur.
„Auk þess hefur þetta á stundum
valdið nokkrum ruglingi og mis-
ræmi hefur verið í frásögnum af
bankanum, og heitunum stundum
ruglað saman.“
úmsmnHúsio
LE2KFÖNG FYRIR ALLA
ALOÖRSHÓPA.
OPIB ALLA 0AGA TIL JÓLA.
U
+ % ^ 4ie
W t
Tómstundahúsið • Nethyl 2 * S. 587 0600 * www.tomstundahusid.is
Stungumaður á Húsavík í gæsluvarðhaldi:
Morðtilraunin í rannsókn
Húsið brunnið Árás á
mKHsbu a konu og mann í byrjun nóv- t
^f.ÖQREOLwttsffifl rjr lögreglan Rfflftnin ember er rannsakað sem
morðtilraun. É
' ................--.....”
Morðtilraun á Húsavík í nóvember
er enn til rannsóknar hjá lögregl-
unni. Maðurinn sem er grunaður um
ódæðið er í gæsluvarðhaldi. Maður-
inn hefur játað hluta af brotinu. Sam-
kvæmt lögreglunni er málið á loka-
stigum rannsóknar. Verið er að hnýta
síðustu endana að sögn varðstjóra.
Árásin átti sér stað i byrjun nóv-
ember. Kallað var á slökkvilið vegna
eldsvoða á Húsavík. Slökkvilið kom á
vettvang ásamt lögreglu. Þá sáu þeir
meðvitundarlausa konu í anddyri
hússins. Lögregla og slökkvilið drógu
hana út en hún brenndist nokkuð illa
á baki og andliti. Að auki hafði hún
verið stungin með hníf. Á meðan þeir
huguðu að konunni réðst maður að
þeim vopnaður eggvopni. Með snar-
ræði sneri lögreglan manninn niður.
I ljós kom að annar maður, sem hafði
setið með þeim fyrr um kvöldið, hafði
einnig hlotið stungusár.
Konan var send til aðhlynningar
á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Hlúð var að manninum á Heilsugæslu
Húsavíkur.
Hinn grunaði árásarmaður var
umsvifalaust hnepptur í gæsluvarð-
hald í kjölfarið. Ekki er vitað hvers
vegna hann stakk konuna og mann-
inn. Ljóst er að þau höfðu setið heima
hjá manninum sem var stunginn og
drukkið áfengi.
Málið verður sent ákæruvaldi sem
tekur ákvörðun um hvort árásarmað-
urinn verði ákærður.
S T E I K H Ú S
Laujiavegur 53b • 101 Reykjavilc
5 11 3350 • www.hercfbrcf.r>T
CjjafaBréf a 3-fereforcCSteíkfiús erfrabær jóCagjöf fyrírpd sem eíga aCCtfrd
fótanucCatœkjum tií vpocCa.
(jefðu notaCega CvöCcCstuncCá 3-CereforcC í jóCagjöf
Borðapantanir
HEREFORD Sparaðu pér sjtorín!
511 3350
jHríngdu tímanCega í oCCur, joantaðu og greícCcCu og víð sencCumfiér gjafabréfín í póstí.
3bereford nautasteikurnar eru romaðar,pu veCur stærð, steíkingu og meðCœti. Magnaðl