blaðið - 15.12.2006, Síða 6
vjS • avdid
Jólamatseðill Silfurs
beint á borðið til þín
6 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006
blaðiö
SEYÐISFJÖROUR
Rúmenar í fangelsi
Tveir Rúmenar voru handteknir við komu þeirra með Norrænu til íslands
á miðvikudag. Um er að ræða karlmann um fertugt og konu um tvítugt.
Þau framvísuðu fölsuðum ítölskum skilríkjum. Myndin af þeim hafði
verið sett í stað upprunalegu myndarinnar. Fólkið var fært fyrir dómara í
Héraðsdómi Austurlands og voru þau dæmd í 30 daga fangelsi.
INNLENT
Reynt að kveikja í sömu fiskvinnslunni fjórum sinnum:
Silfur jólaflavors menu
Sýnishorn af kvöldseðli:
Forréttir Heitreykt turtildúfa með timjan,
rósapipar og hvítlauk
Kengúra með rósmarín, lakkrís-
rót og villiberjum
Áll með rauðrófu, jerúsalem-
ætiþystlum og chorizo
Graflax með maísbaunum, dijon
sinnepi og sólselju
Aðalréttir Hreindýr með kantarellu,
rauðkáli og epli
Lynghæna með beikoni, döðlu
og andalifur
Andabringa og svínasíða með
mandarínu, súkkulaði og bbq
Vanillusaltaður þorskhnakki
með fennel, sítrus og myntu
Einnig opið í hádeginu
■
New Style Restaurant / Pósthússtræti 11 / 578 2008 / www.silfur.is
Brennuvargur
kveikir aftur í Lifró
■ Kveikir í á svipuðum tíma árlega ■ Talið að maðurinn sé veikur
■ Lögreglan óskar eftir upplýsingum
Lifrarsamlag
Vestmannacyja
1932
Brennuvargur gerir óskunda
Jóhann Jónsson, framkvæmdastjóri
Lifró í Vestmannaeyjum, telur að
- brennuvargurinn sé tæpur á geði og
óskar þess að hann leiti sér aðstoðar.
Eftir Val Grettisson
valur@þladid.net
„Honum hefur ekki enn tekist að
brenna húsið niður,“ segir Jóhann
Jónsson, framkvæmdastjóri Lifr-
arsamlagsins í Vestmannaeyjum,
eða Lifró eins og það er kallað í
daglegu tali. Síðastliðin fimm ár
hefur fjórum sinnum verið reynt
að kveikja í kaffistofu Lifró og það
sem er dularfyllra að mati Jóhanns;
allar tilraunirnar eru í sama mánuði
ár hvert. Ekki er vitað hver brennu-
vargurinn er eða hvort þeir séu fleiri
en einn.
„Hann hefur notað bensín en síð-
ast notaði hann terpentínu," segir
Jóhann en þá var reynt að kveikja í
kaffistofunni aðfaranótt 3. eða 4. des-
ember. Jóhann segir að árið 2004 hafi
maðurinn komist ansi nálægt því að
kveikja í húsinu þannig af hlytist
stórskaði. Skemmdirnar voru aðal-
lega vegna reyksóts en skipta þurfti
um innbú og reykræsta húsið.
Maðurinn reyndi ekki að kveikja
í árið 2003 en annars reynir hann
ávallt að brenna skúrinn í desember.
Kaffiskúrinn er hluti af þremur sam-
byggðum húsum og að sögn Jóhanns
eru í raun nokkrir sentimetrar í það
næsta. Því er ljóst að um stórskaða
yrði að ræða tækist manninum ætl-
unarverk sitt.
„Það er kannski tilviljun og ansi
skrýtin líka, en ísfélagið brann ní-
unda desember árið 2000,“ segir Jó-
hann og vitnar þar til stórbrunans
sem varð árið 2000. Þá brann ein
stærsta útgerð Vestmannaeyja og
að sögn Jóhanns hefur bæjarfélagið
ekki enn beðið þess bætur. Ekki er
talið að kveikt hafi verið í því.
Jóhann segist ekki reiður vegna
íkveikjutilraunanna og telur sjálfur
að um sjúkan mann sé að ræða.
Hann segir að maðurinn þurfi aug-
ljóslega aðstoð.
Lögreglan í Vestmannaeyjum
segir málið grafalvarlegt og undar-
legt. Varðstjórinn telur ekki að um
bernskubrek sé að ræða enda notast
maðurinn við eldfim efni ásamt því
að endurtaka leikinn ár eftir ár.
Bruninn í Isfélaginu situr einnig
fast í varðstjóranum en hann segir
að það væri hrikalegt að missa Lifró
einnig.
Lögreglan biður alla þá sem
hafa orðið vitni að grunsamlegum
ferðum í kringum Lifró að hafa sam-
band við sig í síma 4811665.
Endurskoðandi Tryggingasjóðs lækna:
Leitað til fjölda matsmanna
„Upp kom pattstaða í rannsókn
málsins þar sem ekkert gekk að
fá dómkvadda endurskoðendur.
Leitað var til fjölda einstaklinga
sem allir höfðu einhverjar ástæður
sem taka þurfti tillit til,“ segir Jón H.
B. Snorrason, yfirmaður efnahags-
brotadeildar ríkislögreglustjóra.
Ekkert gekk að
fá dómkvadda
endurskoðendur
Jón H.B. Snorrason,
yfirmaður efna-
hagsbrotadeildar
ríkislögreglustjóra
Nýlega var rannsókn hætt á
störfum endurskoðanda Trygginga-
sjóðs lækna sem grunaður var um
afglöp í starfi þar sem framkvæmda-
stjóri sjóðsins tók sér sjötíu milljónir
úr honum. Afar erfiðlega gekk að fá
endurskoðendur til að meta störf
hins grunaða ogþví féll rannsóknin
á tíma. Jón telur erfitt fyrir einstak-
linga að meta störf starfsbræðra
þegar um fámenna stétt er að ræða.
Hann segir þessa stöðu afar sjaldan
hafa komið upp við rannsókn mála.
.Dómkvaddir aðilar eru valdir af
dómnum til að geta verið hlutlausir
frá báðum hliðum og gefið álit sitt.
Slíkt álit þarf að vera yfir allan
vafa hafið um að hlutleysis sé gætt,“
segir Jón.