blaðið - 15.12.2006, Síða 10
LOFTHREINSITÆKI
10 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006
blaöiö
15%
Jólaafsláttur
Hreinsar 99,97% agna úr loftinu
Eyðir lykt
Vinnur gegn svifryki
Vinnur gegn ofnœmisvökum
. ís-húsld 566 6000
Leitum að endursöluaðilum um allt land.
UTAN ÚR HEIMI
BANDARÍKIN
Kevorkian iæknir náðaður
Jack Kevorkian, bandaríski meinafræðingurinn sem var
dæmdur í tíu til 25 ára fangelsi í Michigan-ríki fyrir að hafa
hjálpað 130 dauðvona sjúklingum á tíu ára tímabili til að
binda enda á líf sitt, mun fá reynslulausn úr fangelsi i júlí á
næsta ári.
Ráðherra segir af sér
Lars Barfoed, neytendamálaráðherra Danmerkur, sagði
af sér embætti í gær eftir að stuðningsflokkur minni-
hiutastjórnar landsins hafði lýst yfir vantrausti á hann.
Barfoed hefur lengi verið gagnrýndur fyrir slakt matvæla-
eftirlit í Danmörku.
ÍWELEDA
Nytsamar jólagjafir
Krúttleg barnataska
full af barnavörum
Slakandi lavenderolía
og lavenderbað
notaleg gjöf
Handáburður og
fótakrem
nytsöm jólagjöf.
Útsölustaöir:
Heilsuhúsin,
Lyfja, Apótekið, Lyf og
heilsa, Apótekarinn,
Fræió Fjarðarkaupum,
Maður lifandi,
Heisuhornið Akureyri,
Blómaval, Lyfjaval,
Hagkaup, Fífa, Árbæjar
apótek, Rima apótek
og Garðs apótek
Landamærum lokað Þúsundir
stuöningsmanna Hamas flykktust
aö landamærunum til að mótmæla.
Ismail Haniya Forsætis-
ráðherra Palestínumanna
WBLAi
ísraelar lokuðu landamærum Gasa og Egyptalands:
Haniya komst ekki heim
■ Hamas-liðar mótmæla ■ Með milljónir í farteskinu
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
ísraelsk stjórnvöld fyrirskipuðu
að landamærum Egyptalands og
Gasasvæðisins yrði lokað i gær til
að koma í veg fyrir heimkomu Isma-
ils Haniya, forsætisráðherra Pal-
estínumanna. Haniya hefur verið
á ferð um Mið-Austurlönd í tvær
vikur og er talið að hann hafi haft
með sér tugi milljóna Bandaríkja-
dala frá írönskum stjórnvöldum í
skjalatöskum.
Eftir að Palestínumönnum varð
kunnugt um lokunina flykktust um
tvö þúsund stuðningsmenn Hamas-
stjórnarinnar að landamærunum
til að mótmæla. Mótmælendur
skutu úr byssum og reyndu sumir
að sprengja gat í múrinn sem að-
skilur Gasa og Egyptaland.
Amir Peretz, varnarmálaráðherra
Israels, fyrirskipaði lokun landa-
mæranna við Rafah. ísraelar segja
að peningarnir sem Haniya flytur
til landsins fari beint í hryðjuverka-
starfsemi Hamas-hreyfingarinnar
sem beinist að ísraelskum þegnum.
Samkvæmt ísraelskum lögum er
bannað að láta hryðjuverkasam-
tökum fé í hendur og því var tekin
ákvörðun um lokunina.
Áætlað var að Haniya myndi
snúa heim til Palestínu í næstu
viku. Hann ákvað hins vegar að
stytta ferð sína eftir að spenna
jókst mikið milli fylkinga Fatah-
hreyfinarinnar og Hamas-liða í
Palestínu síðustu daga. Þrír synir
háttsetts embættismanns, sem
var nátengdur Abbas forseta, voru
myrtir við grunnskóla sinn fyrr
í vikunni og gruna margir Fatah-
liðar Hamas-liða um ódæðið.
Frá því að Hamas-hreyfingin
fór með sigur af hólmi í kosning-
unum fyrr á árinu hafa fjölmörg
ríki gripið til efnahagsþvingana og
hætt fjárstuðningi við palestínsku
heimastjórnina. Ríkisstjórnin hefur
sökum þessa átt í miklum vand-
ræðum með að greiða tugum þús-
unda starfsmanna laun. BBC hefur
það eftir háttsettum palestínskum
embættismanni að Haniya hafi um
35 milljónir Bandaríkjadala með
í för, og að honum yrði einungis
hleypt inn á Gasasvæðið skilji hann
peningana eftir í Egyptalandi.
Hefurðu fengið desember-
uppbótina þína?
Desemberuppbót á að greiða ekki
seinna en 15. desember.
—
VR KRINGLUNNI 7 103 REYKJAVÍK
S. 510 1700 | F. 510 1717 WWW.VR.IS
Olíufélögin íhuga áfrýjun í skaðabótamáli:
Efast um fordæmisgildi dóms
„Ég tel að aðstæður í máli Reykja-
víkurborgar séu afar sérstakar og
ólíklegt að dómurinn hafi fordæmis-
gildi,“ segir Hörður Felix Harðarson,
lögmaður Skeljungs.
Olíufélögin þrjú, Olíuverslun ís-
lands, Ker og Skeljungur, voru á
miðvikudaginn dæmd í Héraðsdómi
Reykjavíkur til að greiða Reykjavík-
urborg um 79 milljónir í skaðbætur
vegna verðsamráðs.
Haft var eftir Vilhjálmi H. Vil-
hjálmssyni, lögmanni borgarinnar,
eftir að dómurinn lá fyrir að hann
gæti haft eitthvert fordæmisgildi
fyrir önnur skaðabótamál á hendur
olíufélögunum.
ÞátaldiElliðiVignisson.bæjarstjóri
Vestmannaeyjabæjar, niðurstöðu hér-
aðsdóms styrkja skaðabótakröfu bæj-
Mjög líklegt að
málinu verði
áfrýjað.
Höröur Felix Harðarson,
lögmaður Skeljungs
arfélagins áhendur oliufélögunum en
réttað verður í því máli í byrjun næsta
árs.
Hörður segir mál Reykjavíkur-
borgar vera einstakt að því leyti
að þar lá fyrir að olíufélögin hefðu
samið um skiptingu framlegðar afvið-
skiptunum. Olíufélögin hafi þvi verið
neydd til þess að sýna fram á að borgin
hafi ekki tapað á viðskiptunum.
„Sönnunarbyrðinni var velt yfir á ol-
íufélögin. Málið er því afar sérstakt og
Sögulegur dúmut I hétaðsdóml
Borgin fær bætur
■ Um79ma)ðr*nwðyQ>tuBi ■ Lftgniaðui borgadnnar tlltui ■ ÓyttHnrt ítrýpn
óliklegt að sömu kröfur verði gerðar
til olíufélaganna þar sem engin fram-
legðarskipting átti sér stað.“
Þá segir Hörður of snemmt að tala
um fordæmisgildi dómsins þar sem
málinu verði væntanlega áfrýjað til
Hæstaréttar. „Það er mjög liklegt að
þessum dómi verði skotið til Hæsta-
réttar þó endanleg ákvörðun liggi
ekki fyrir af hálfu Skeljungs. Af þeirri
ástæðu er varla tímabært að alhæfa
mikið um fordæmisgildi dómsins."