blaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 12
k
Æ
Skeifunni 6 - Sími: 533 4450 - www.everestis
FOSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006
blaöiö
Blair yfirheyrður
Breska lögreglan yfirheyrði Tony Blair forsætisráðherra í gær vegna
rannsóknar á hneykslismáli um meintar mútugreiðslur til stjórnmála-
flokka fyrir aðalstignir. Blair var kallaður til sem vitni og hefur því ekki
réttarstöðu sakbornings.
Fjölga þarf sjúkraliðum og hjúkrunarfólki:
Erfitt ástand næstu
fjögur árin
■ Útskrifa þarf um 140 sjúkraliða á ári
■ 500 hjúkrunarfræðingar starfa við annað en hjúkrun
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@bladid.net
Fjölga þarf verulega hjúkrunarfræð-
ingum og sjúkraliðum á næstu
árum til að mæta vaxandi þörf fyrir
heilbrigðisstarfsmenn. Þetta kemur
fram í rannsókn sem Hagfræði-
stofnun Háskóla íslands gerði fyrir
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
nev ti sem kynnt var í gær.
I rannsókninni kemur fram að
útskrifa þurfi um 120 til 140 sjúkra-
liða á ári en undanfarin tíu ár hafa
verið útskrifaðir um 90 sjúkraliðar
ár hvert. Einnig þarf að fjölga útskrif-
uðum hjúkrunarfræðingum úr 110 í
140. Skýrsla rannsóknarinnar snýr
að mannaflaspám fyrir heilbrigðis-
stéttirnar og eru þar birtar bæði lág-
marksspár og hámarksspár um þörf
á vinnuafli. Þetta er í fyrsta sinn
sem viðlíka mannaflaspá er gerð á
Islandi.
Samkvæmt spá Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga þarf að fjölga
hjúkrunarfræðingum um 14 prósent
til að fullnægja þörf á vinnuafli. 1
haust var lausum plássum í hjúkr-
Siv Friðleifsdóttir Fjölga þarf bæði
sjúkraliöum og hjúkrunarfræðingum.
unarfræðinámi fjölgað um 35, bæði
við Háskóla Islands en einnig í Há-
skólanum á Akureyri. Á Akureyri
var plássunum fjölgað um tíu en 25
í Reykjavík.
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráð-
herra segir að með því að fjölga
plássum í hjúkrunarfræðinámi verði
þörfinni mætt. „Fjölgunin mun
leysa þennan mannaflaspárvanda
sem við sjáum fyrir okkur en það
verður vandi þangað til þessir nýju
nemar útskrifast sem verður ekki
fyrr en eftir fjögur ár. Þetta verður
vandi um tíma.“
Athygli vekur að um 500 útskrif-
aðir hjúkrunarfræðingar starfa við
annað en hjúkrun og er talið víst að
einhver afföll verði á nýútskrifuðum
hjúkrunarfræðingum. Siv segir að
þetta verði að meta með tímanum
og verði þá athugað hvort fjölga þurfi
plássum í náminu.
í skýrslunni kemur fram að
ástandið hjá sjúkraliðum sé almennt
ekki gott. Siv segir að stuðla þurfi
að fjölgun sjúkraliða og bendir á að
hár meðallaldur sjúkraliða gefi það
til kynna að með tímanum muni
enn meiri skortur verða f þeirri stétt.
Hún segir að nú þegar séu aðgerðir
hafnar til að ná fleira fólki inn í
stéttina. „Það er nú þegar búið að
fara í að undirbúa sjúkraliðabrúna,
þannig að það er verið að reyna að
bregðast við hér líka. En þetta verður
samt vandi á næstunni með sjúkra-
liða.“ Sjúkrabrúin sem Siv vísar til er
áætlun sem gerir ófaglærðu fólki sem
hefur unnið við umönnun sjúklinga
í meira en fimm ár kleift að fá starf
sitt metið inn í sjúkraliðanámið.
GEORG
jENSEN
ÚRSMÍÐAMEISTARI
LAUCAVEGI 1S • SlMI 511 1900
www.sviss.is
Vettvangur glæps Hermað
ur á staðnum þar sem tug-
um manna var rænt í gær.
Óöldin í Irak heldur áfram:
Tugum íraka
rænt í Bagdad
Vopnaðir menn i einkennisbún-
ingum rændu milli tuttugu og þrjá-
tíu frökum í Sanak, iðnaðarhverfi
í miðborg Bagdad, í gærmorgun.
Að sögn írösku lögreglunnar voru
fórnarlömbin bæði sjítar og súnn-
ítar, búðareigendur jafnt sem vegfar-
endur. Vopnuðu mennirnir voru í
tíu bílum sem líktust lögreglubflum.
Vitni segja að skotið hafi verið úr
byssum þegar mönnunum var rænt.
Mohammed Quassim Jassim, sem
starfar í hverfinu, segir í samtali við
BBC að hann hafi heyrt í bílum og
skothvellum þegar mennirnir létu
til skarar skríða. „Svo sáum við
menn í herklæðum neyða fólk í
búðum og á götunni upp í sendi-
ferðabíla og keyra svo í burtu.“
Mannrán eru daglegt brauð í höf-
uðborginni og þau verða sífellt al-
gengari. í síðasta mánuði var til að
mynda tugum starfsmanna íraska
menntamálaráðuneytisins rænt og
enn er óljóst um örlög fjölda þeirra.
Þeir sem er rænt eru oft pyntaðir og
myrtir, á degi hverjum finnast tugir
líka á götum Bagdad.