blaðið - 15.12.2006, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006
blaftiö
Mótmæli brutust út fyrir utan þinghúsið
í Sofíu, höfuðborg Búlgaríu, þegar eldri borg-
arar komu þar saman til að mótmæla frestun
þess að hækka ellilifeyri í landinu.
Upphaflega stóð til að hækkunin tæki gildi
í upphafi næsta árs, en stjórnvöld í landinu
ákváðu að fresta gildistökunni til í. júlí næst-
komandi. Hundruð eldri borgara lögðu leið
sína niður í miðborg höfuðborgarinnar til að
lýsa yfir andstöðu sinni og þurfti fjölda lög-
reglumanna til að hafa hemil á lýðnum.
0'f
Motmæh i Sofiu Eldri
borgarar mótmæltu frest-
un á hækkun ellilífeyris.
Eldri borgarar Búlgariu osat
Motmæla
seinkun
tlt 50
(9 00
(7 50
(MOO
'iana
Kensingtonholl í Lundúnum
Ferðamaður stendur hjá skilti
með mynd af Diönu prinsessu
Welcome to
Kensington Palace
Oi>cnmg timcs
IMMCh- 1000-1*00
Jl OctoöM t*a»l 17-00)
l No*?witK-f - 1000-1700
ÍB fftj'va>y tUU 1*00)
AdmisHion pnccn
Anm\al membcrship
rtod*.ptofC tk* »U<n
*•. nvwiv Iwrtc* at yoo
IruJ.vKluJl 05 00
Jo.rJ ma.viOu.vi £55 00
F*mi»y CMOO
Alternativc cnti’ancc
Fornwc mw'fm.iuon
0870 751 5170
yyww.hrp,Of9.uk
Mario lcslmn
Diana og Dodi ekki myrt
Niðurstöður nýrrar skýrslu
bresku lögreglunnar um dauða
Díönu prinsessu sem lést í bílslysi
i París árið 1997, eru þær að ekk-
ert bendi til þess að hún og Dodi
al-Fayed hafi verið myrt. Stevens
lávarður fór fyrir rannsókninni
og segir að þetta hafi verið hörmu-
legt slys þar sem bílstjórinn Henri
Paul hafi ekið of hratt og verið
undir áhrifum áfengis og lyfja.
Þá segir Stevens jafnframt að Dí-
ana hafi hvorki verið trúlofuð né
barnshafandi þegar hún lést.
Díana, al-Fayed og Paul létust
þegar Mercedes-bíll sem þau voru
í skall á vegg i Pont de l’Alma und-
irgöngunum i Paris i lok ágúst-
mánuðar árið 1997. Mohammed al-
Fayed, faðir Dodis, og fleiri hafa
komið með samsæriskenningar
og haldið því fram að dauði þeirra
hafi ekki verið slys. Rannsóknin
stóð í rúmlega þrjú ár og voru
fleiri hundruð manna yfirheyrð
vegna málsins. Talið er að rann-
sóknin hafi kostað andvirði hálfs
milljarðs króna.