blaðið - 15.12.2006, Page 28
28 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006
blaöið
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Hvernig ætlið þið eiginlega
að verja ykkur?
„Við ætlum að verja okkur með rökræðum. Það er
að minnsta kosti ekki verri leið en stríð."
Róbcrt Ragtiarsson,
bæjarstjóri Voga
FréttavefurVíkurfrétta greinir frá því að sveitarfélagið Vogar á Vatns-
leysuströnd hafi lýst því yfir að það sé kjarnorkuvopnalaust sveitarfélag í
kjölfarárskorunarfrá Samtökum herstöðvaandstæðinga.
Með rjóðar kinnar
í jólagjafainnkaupum
HEYRST HEFUR...
Bæjar-
stjórn
Seltjarnar-
ness gerði
sér glaðan
dag og
skrapp
saman út
að borða
ámið-
vikudags-
kvöldið.
Bæjarstjórnin valdi Sjávar-
kjallarann til að eiga saman
huggulega kvöldstund og gæða
sér á kræsilegum sjávarréttum.
Hvort um var að ræða árlegt
jólahlaðborð stjórnarinnar er
ekki víst en leiða má að því
líkur að reikningurinn hafi
verið kræsilegur lika þar sem
um einn fínasta veitingastað
borgarinnar er að ræða. Bæjar-
stjórnin lét það væntanlega ekki
á sig fá þar sem hún situr í einu
ríkasta bæjarfélagi landsins.
eyrst hefur að hertar reglur
gildi nú um barnaafmæli
í borginni. Börn í ónefndum
skóla hér í borg fengu heim
með sér bréf frá foreldrafélagi
skólans stílað á foreldra um
það sem má og ekki má þegar
haldið er upp á afmæli barn-
anna. Samkvæmt bréfinu er nú
bannað að bjóða upp á sælgæti
í barnaafmælum og það þykir
ekki lengur við hæfi að bjóða
upp á kvikmyndasýningar.
Ráðlagður tími afmælisboða er
samkvæmt bréfinu ein og hálf
klukkustund. Á þessum eina og
hálfa tíma er foreldrum ráðlagt
að bjóða upp á hollustu og
skipulagða leiki... maður spyr
sig hvort allt fútt sé nú farið úr
barnaafmælunum?
loa@bladid.net
Kolbrún Björgólfsdóttir leirlistar-
kona er betur þekkt sem Kogga. Hún
rekur leirlistarverkstæði og verslun
á Vesturgötunni og sér fram á anna-
sama helgi í búðinni þar sem nú fer
í hönd síðasta helgin fyrir jól.
Kogga ætlar að eyða kvöldinu í
kvöld í að búa til jólakort handa
vinum og vandamönnum en hún
vill annars ekki segja frá því hvernig
jólakortin eru. „Þau eiga að koma á
óvart og ég vil ekki eyðileggja það
óvænta fyrir fólkinu mínu.”
Miðbærinn fallegur fyrir jólin
Kogga segir að það sé einstaklega
gaman og jólalegt að reka verslun í
miðbænum enda bærinn skreyttur
hátt og lágt. „Miðbærinn er einfald-
lega fallegastur og nú fyrir jólin
sérstaklega. Mér finnst hluti af
stemningunni vera að versla jóla-
gjafirnar með rjóðar kinnar, trefil
og vettlinga. Ég verð í versluninni
á laugardaginn ásamt systur minni
sem vinnur með mér. Hingað er
gott að koma þar sem brennsluofn-
inn er alltaf í gangi og því hlýtt og
notalegt hér inni.“ segir Kogga og
bætir við að þær standi ekki fyrir
neinum sérstökum uppákomum
þar sem verslunin sé lítil og ekki
mikið pláss fyrir slíka hluti.
„Við systurnar tökum að okkur
að leika jólasveina hér í staðinn og
höldum uppi góðri stemningu, “
segir Kogga og glottir.
Með jólagjafalistann í bæinn
Þegar Kogga er búin að vinna á
laugardaginn ætlar hún að flýta
sér heim og elda góðan mat handa
sér og syni sínum sem er einmitt
að klára síðasta jólaprófið sitt í dag.
.Síðan hef ég hugsað mér að skreyta
svolítið á heimilinu og koma öllu í
jólabúning.“
Kogga segir að hún búi alltaf til
eitthvað sérstakt úr leirnum fyrir
hver jól, hvort sem það eru kerta-
stjakar, lítil ljósker eða jólaskraut til
að hengja í glugga.
„Á sunnudaginn ætla ég síðan að
kaupa jólagjafirnar. Ég er búin að
gera lista og búin að ákveða hvað ég
ætla að gefa hverjum og einum. Ég
er ekki ein af þeim sem eru búnar að
kaupa inn allar jólagjafirnar, enda
finnst mér gaman að fara í búðirnar
þegar allt er skreytt og allir komnir
í jólaskap. Ég ætla að setja upp tref-
ilinn og labba um miðbæinn með
rjóðar kinnar og fá jólin beint í æð.”
Á förnum vegi
Ertu komin/n
í jólaskap?
Álfheiður Jónsdóttir,
húsmóðir
„Já, af því að ég er búin að svo
mörgu.“
Sigríður Unnur Jónsdóttir,
starfsmaður Sláturfélagsins
„Já, ég er komin í mikið jólaskap."
Elín Pilkington, nemi
„Já, alveg eins.“
Erna Aðalheiður Karlsdóttir,
aðstoðarmaður í eldhúsi
„Smá, en það kemur þegar ég er
búin að vinna.“
Valþór Freyr Þráinsson, nemi
„Já, mikið."
SU DOKU talnaþraut
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá i-g lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri linu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
5 2 7 8
1 8 7
4 5 2 3 1
2 1 7
9 3 5 2
4 5 9
7 6 4
8 5 7 3
5 1 8 4
2 7 8
8 7
5 2 3 1
2 1 7
3 5 2
4 5 9
6 4
8 5 7 3
5 1 8 4
eftir Jim Unger
Skilaðu honum heim eftir klukkutíma