blaðið - 15.12.2006, Page 36
36 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006
blaðið
Afdrifaríkt aðflug
Útkall - Leifur Eirtksson brotlendir er bók
eftir Ottar Sveinsson sem Útkall ehf. gefur
út. í nóvembermánuði 1978 brotlenti Flug-
leiðavélin Leifur Eiriksson í skógi þegar hún
var í aðflugi að fugvellinum við Kólombó á
Sri Lanka. Þetta varfjórða stærsta flugslys
sögunnar á þeim tima.
T
Einar Guðlaugsson var 34
ára flugmaður sem átti að
fljúga TF-FLA, Leifi Eiríks-
syni, frá Sri Lanka til Ind-
ónesíu ásamt Dagfinni:
„Fyrr á þessu ári hafði ég verið
flugstjóri hjá Cargolux. Þá flaug ég
þessari sömu vél og nú var að koma.
Við fórum út á flugvöll í rútu. Ég
var með senditæki þar sem ég átti
að kalla í vélina á ákveðinni tíðni,
fá upplýsingar um hvenær þeir
myndu lenda og annað. Hörður
Sigurjónsson flugstjóri, sem var
umsjónarmaður í flughermi i Loft-
leiðabyggingunni, hafði orð á því
áður en við fórum frá Islandi að
það hefði komið tilkynning frá Brit-
ish Airways um að aðflugsgeislinn
í tækjunum á flugvellinum í Kól-
ombó væri skakkur.
Ég vildi reyna að ná sambandi
við vélina okkar núna til að vara
flugmennina við þessu veðri. Við
vorum líka búnir að fá fregnir
af því að aðflugsgeislinn væri of
lágur en ég vissi ekki hvort flug-
mennirnir, sem voru að koma núna,
vissu af þessu. Ég gerði margar til-
raunir til að kalla í vélina en fékk
ekki svar. Það var úrhellisrign-
ing. Maður varð gegndrepa bara
við að ganga nokkra metra inn í
flugstöðvarbygginguna."
Gleðin ríkti
Jónína flugfreyja upplifði gleði
og ánægju um borð þegar styttist í
kndingu:
„Allir íslendingarnir voru svo
kátir og glaðir. Didda og Erna
voru þar fremstar í flokki. Gleðin
ríkti hjá þeim og þær voru svo
samstilltar í öllu sem verið var að
gera. Þær tóku meira að segja lagið
frammi í eldhúsi.
Stuttu fyrir lendinguna gekk ég
á meðal farþeganna og bað þá að
rétta upp stólbökin, festa borðin
upp og spenna beltin.“
V ÍSLANDS MÁLNING
Ný verslun íslandsmálningar í Skútuvogi
Opnunartilbod á innimálningu.
Loftmálning 3L kr. 490
Veggjamálning 3L kr. 490
Veggfóður kr. 590
Veggfóðursborðar kr. 390
íslandsmálning Skútuvogi 13. S. 517 1501
beint á móti Húsasmidjunní
íslandsmálning Sætúni 4. S. 517 1500
Þegar Jónína gekk fram í fremra
eldhúsið var hringt frá flugstjórnar-
klefanum. Hún var beðin að taka
kaffibolla.
„Þegar ég gekk fram í flugstjórn-
arklefann voru flugmennirnir upp-
teknir af aðfluginu og sögðu ekkert
við mig.“
Hlógu og göntuðust
Oddný var framarlega í vélinni
við eldhúsið. Hún var orðin dálítið
þreytt eftir hátt í sex klukkustunda
flug frá Jedda og einnig eftir flugið
frá Aþenu og þangað:
„Mér fannst þetta flug frá Jedda
til Sri Lanka sérstaklega erfitt. Við
skildum ekki alveg Indónesana og
Oddný varframarlega
í vélinni við eldhúsið.
Hún var orðin dálítið
þreytt eftir hátt í sex
klukkustunda flugfrá
Jedda og einnig eftir
flugiðfrá Aþenu og
þangað
það voru þrengsli í eldhúsunum
og alls staðar óvenjutroðið, hvergi
hægt að tylla sér og hvíla sig
aðeins.
Ég sá um fremra eldhúsið með
Diddu Sveins, sem var yfirflug-
freyja, og Jónínu. Þegar líða tók að
lendingu kallaði Þórarinn í mig og
bað mig að fá Ásgeir Pétursson yfir-
flugstjóra til að skipta um sæti við
Ólaf Áxelsson. Ásgeir færi fram í
flugstjórnarklefa til flugmannanna
og Ólafur í sæti sem var við hliðina
á Diddu, fremst í farþegarýminu.
Við Didda höfðum þrifið eld-
húsið hátt og lágt fyrir lendingu.
Við vissum að Guðjón Guðnason
flugþjónn beið okkar í Sri Lanka
og hann átti að taka við af okkur
þar. Hann var örugglega kominn
út á flugvöll og farinn að bíða. Guð-
jón var mikið snyrtimenni og við
Flugfreyjurnar Oddný Bjorgolfsdottir og
Þuríður Vilhjálmsdóttir Þær lifdu siys d af.
4