blaðið - 15.12.2006, Page 37
blaðið
FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006 37
„Þetta hlýtur að vera
misreiknað hjá þeim
(á jörðu niðri)," sagði
annar flugmannanna.
hlógum og göntuðumst með að
hann skyldi nú aldeilis taka við öllu
óaðfinnanlegu frá okkur.
Það var kominn í okkur galsi og
tilhlökkun að koma til Sri Lanka. Ég
fann samt hvað ég var orðin þreytt
og fannst plássleysið í vélinni þrúg-
andi. Það var svartamyrkur úti og
veðrið greinilega ekki gott. Þetta
angraði mig.
Þegar við vorum að fara að lenda
sló Didda Sveins, sem var fyrsta
flugfreyja, á létta strengi. Hún var
alltaf í góðu skapi.“
Þrumuhnoðrar allt í kring
Harald Snæhólm hafði verið á
ferðinni frammi í vélinni:
„Þegar vélin hóf aðflugið, byrj-
aði að lækka sig, kom Asgeir og
settist í sætið frammi í flugstjórn-
arklefanum. Hann hafði skipt við
mig í Jedda. Þegar vélin var komin
niður í sjö þúsund fet var ég enn í
flugstjórnarklefanum og sá þá á rat-
sjánni að það voru þrumuhnoðrar
allt í kring en slíkt var ekkert
óvenjulegt.
Ég gekk áleiðis aftur í þar sem
ég hafði fengið sæti við hlið Ernu.
Mitt sæti var alveg aftast, á prik-
inu eins og kallað var. í stað þess
að sitja fremst í lendingunni eins
og ég hafði ætlað mér var ég nú
kominn þarna aftur í til Ernu. Við
spenntum sætisólarnar og röbb-
uðum saman. Erna var mjög þrifin.
Hún hafði verið að þvo og pússa alls
staðar þar sem sá á einhverju. Við
þetta rými aftur í var salerni fyrir
framan, eldhússkápar og gangur.
Erna spurði mig hvort ég væri
nokkuð smeykur við að sitja þarna
aftast. Hún vissi að ég var ekki
vanur því, heldur sat ég yfirleitt
fremst, í flugstjórnarklefanum.
Hún vissi líka að ílugmenn fljúga
oft í huganum þegar þeir eru ekki
við stjórnvölinn.
Stuttu fyrir lendingu sagði Erna:
„Skiptu við mig um sæti, Halli,
svo að ég geti betur fylgst með
farþegunum.““
„Hlýtur að vera misreiknað"
Rétt um þetta leyti óskuðu ís-
lensku flugmennirnir eftir því við
ratsjárflugumferðarstjórann á Sri
Lanka að hann gæfi þeim lýsingu
á veðurskilyrðum í Madras á Ind-
landi - ef svo færi að þeir mætu
stöðuna þannig að þeir yrðu að
hverfa frá lendingu á Sri Lanka og
millilenda í Madras.
Upplýsingarnar komu um hæl:
logn, skyggni sex kílómetrar,
brotið skýjafar í sex þúsund fetum,
26 stiga hiti og loftþrýstingur 1014
millibör.
Flugmennirnir þökkuðu fyrir
upplýsingarnar. Þeir vissu nú að
öruggt yrði að lenda í Madras ef á
þyrfti að halda en þeir töldu ekki
ástæðu til að breyta áætluninni.
Þeir hugðust lenda á Sri Lanka.
Rúmar sex mínútur voru í lend-
ingu. f flugstjórnarklefanum sagði
Rúnar flugmaður Hauki flugstjóra
að vélin væri að fara yfir radíóvita
(ADF) á jörðu niðri.
„Já, já,“ sagði Haukur.
„Við sjáum niður núna,“ sagði
Rúnar.
„Ég sé líka niður,“ svaraði
Haukur.
„Gefðu mér 12 gráðu flapsa
(vængbörð).“
Ljóst var að vélin átti eftir að
fljúga inn í ský áður en henni yrði
lent þó svo að flugmennirnir hefðu
séð niður. Stuttu síðar bað Haukur
flugmanninn að setja flapsana í
23 gráður. Þá sagði Rúnar að hann
myndi stilla á blindaðflugstækin
(ILS) s(n megin.
Haukur svaraði honum þá að
stefnan væri 78 gráður.
„Þetta hlýtur að vera misreiknað
hjá þeim (á jörðu niðri),“ sagði
annar flugmannanna.
Þegar fimm mínútur voru í áætl-
aða lendingu bað Haukur flugstjóri
Rúnar að deyfa ljósin í stjórnídef-
anum eins og mögulegt væri. Þeir
töluðu um hvort öll öryggi væru
ekki inni. Ragnar flugvélstjóri stað-
festi að þau væru í lagi. Örstuttu
síðar hringdi bjalla í flugturninum
sem gaf til kynna að aðflugsstefnu-
geislinn hefði dottið út. Turnmaður-
inn endurræsti búnaðinn.
(Fyrirsögn og millifyrirsagnir eru Blaðsins)
Prentað
erlendis
46%
54%
Hlutfall
Bókasamband Islands hefur gert könnun á prentstað íslenskra
bóka sem birtust í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda 2006.
Könnunin sýnir að hlutfall prentunar innanlands
hefur minnkað um 5,5% milli ára.
prentunar
á bókum 2006
Sl
Samtök iðnaöaríns
efélag
bókagerðar-
manna