blaðið - 15.12.2006, Síða 52

blaðið - 15.12.2006, Síða 52
52 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006 blaðið Peter Boyle látinn Leikarinn sem lék hinn geðvonda og sérvitra föður Raymonds í Everybody Loves Raymond, lést aðfaranótt miðvikudags úr hjartaslagi. „Þetta er eins og að missa maka sinn,“ segir Doris Roberts sem leikur ráðríka konu hans í þáttunum. J tV-i McDonalds-líkamsrækt McDonalds-keðjan hefur sett af stað litlar líkamsræktarstöðvar fyrir börn inni á völdum stöðum. Þar má finna hlaupabretti og hjól sem 0 eru tengd við tölvuleiki og hindranabrautir. Stöðvarnar eru ætlaðar gestum skyndibitakeðjunnar á aldrinum 4-12 ára. Það tekur 3 klukku- stundir fyrir barn að brenna 200 kaloríu mjólkurhristingi segja næringarfræðingar. 51 i’m lovin’ ifj Orölaus mælir meó Smákökubakstri Það er auðvelt, fljótlegt og jólalegt. Bakstur dregur hug- ann frá amstri dagsins og hvað er svo huggulegra en að setjast niður og gæða sér á eins og tveimur -í._ sortum með heitu kakói í góðra vina hópi. sU Rúskinnshælaskóm Ótrúlega flott ökklastígvél í ýmsum litum. Flott við jólakjólinn, þröngu buxurnar eða leggings. Tilvalið að velja sér eina slíka fyrir jólin. Kinnalit Rjóðar kinnar eru bara svo sætar og gera hvaða konu sem er aðeins hraustlegri. Nú er hægt að fá kinna- liti í öllum stærðum og gerðum og hvaða litum sem er, allt frá Ijósbleikum upp í dökkrauða. Virkilega flott við látlausa förðun. Jólagrautur Trabants Jólatónlist Þá er átt við klassíska jólatónlist en ekki einhverja laglausa jólasveina sem syngja asnaleg lög. á Nasa I Hljómsveitin Trabant verður með tónleika á Nasa annað kvöld en sveitin hefur ekki spilað sam- an síðan síðasta sumar í Danmörku. Húsið verður opnað klukkan 23:00 og er forsala aðgöngumiða í 12 tónum en eins verður hægt að kaupa miða við dyrnar og er miðaverð aðeins 1000 kr. „Þetta verða stórtónleikar á laugardaginn en við erum ekki búnir að spila saman í um hálft ár hérna á lslandi“ segir Gísli Galdur, meðlimur Trabants. „Við ætlum að gera allt vitlaust eins og venjulega og það verður örugglega brjáluð stemn- ing. Það verða þrjú upphitunarbönd og skemmti- leg elektróník en það eru FM Belfast sem eru Árni úr Hairdoktor og kærastan hans Lóa og síðan verða Helmus og Dalli sem voru að gefa út plötu hjá Smekkleysu og Steed Lord sem ég held að séu bara búin að koma fram tvisvar áður en það eru Svala Björgvins og Einar og Elli Egilssynir." Fyrir síðustu jól héldu Trabant-menn einnig tónleika við frábærar undirtektir og bíða því ef- laust margir spenntir eftir tónleikunum annað kvöld. „Þetta er eiginlega framhald af því sem við gerðum í fyrra en þá vorum það við, Hjálmar og Mugison sem héldum tónleika saman og það heppnaðist ótrúlega vel. Við vorum allir saman á sviðinu í lokalaginu þannig að það er aldrei að vita hvað gerist núna. Þetta verður allavega hörkustuð og við í rosagóðu skapi líka og ætlum að frumflytja nýtt efni á tónleikunum en tökum sem sagt gömul og ný lög í bland. Við spiluðum saman síðast í Danmörku í ágúst og síðan þá höf- um við ekkert spilað og erum í raun bara búnir að vera í smá pásu þannig að við hlökkum mikið til. Við vonum bara að sem flestir komi og hvetj- um alla til þess að mæta, það mun enginn sjá eftir því og um að gera að taka sér smá pásu frá jóla- stressi. Svo þarf enginn að hafa áhyggjur af því að við förum að troða upp á fólk jólalögum." fS :■ T:~l 1 Jólamyndum Gamlar og góöar jólamyndir sem hægt er aö horfa á og borða konfekt og smákökur og drekka jólaöl á meðan. Frá 1980 til 1990 var framleiddur fjöldi skemmtilegra jólamynda sem flestir ættu aö kannast við. Þessar láta jóla- andann hellast yfir hvern sem er: A Christmas Story, Die Hard, Ernest Saves Christmas, Lethal Weapon, Na- tional Lampoons Christmas Vacation, Santa Claus: The Movie og Scrooged. KRISTlN GYÐA SIGURÐARDÓTTIR 21 ÁRS 1. Hvað þýðir orðið sko? Áhersla eða byrjun á einhverri setningu 2. Hver skrifaði Sölku Völku? Ég veit það ekki 3. Hvað er Golfstraumurinn? Bíómynd 4. Hvað heitir gjaldmiðillinn i Japan? Veit ekki 5. Úr hverju eru rúsínur framleiddar? Sveskjum GUÐNI PÁLL VIKTORSSON19 ÁRA 1. Hvað þýðir orðið sko? Ég veit það ekki 2. Hver skrifaði Sölku Völku? Ekki hugmynd 3. Hvað er Golfstraumurinn? Þaö er eitthvað í sjónum 4. Hvað heitir gjaldmiðillinn í Japan? Ég veit það ekki 5. Úr hverju eru rúsínur framieiddar? Ég veit það ekki. ERNA MARÍA RAFNSDÓTTIR 17 ÁRA 1. Hvað þýðir orðið sko? Veit það ekki 2. Hver skrifaði Sölku Völku? Veit það ekki 3. Hvað er Golfstraumurinn? Man það ekki 4. Hvað heitir gjaldmiðillinn i Japan? Ég veit það, ég var að læra það um daginn en ég man það ekki 5. Úr hverju eru rúsinur framleiddar? Ég man ekki neitt VÁLUR BRYNJAR JÓNSSON 17 ÁRA 1. Hvað þýðir orðið sko? Ég veit ekki 2. Hver skrifaði Sölku Völku? Ég veit það ekki 3. Hvað er Golfstraumurinn? Það er eitthvað þarna undir einhvers staöar sem kemur á Island eða eitthvað svoleiðis 4. Hvað heitir gjaldmiðillinn i Japan? Yen 5. Úr hverju eru rúsinur framleiddar? Man það ekki MARTIN BILLINSKY18 ÁRA 1. Hvað þýðirorðið sko? Bara eitthvað sem maður segir 2. Hver skrifaði Sölku Völku? Enga hugmynd 3. Hvað er Golfstraumurinn? Straumur sem fer til Islands 4. Hvað heitir gjaldmiðillinn í Japan? Ven 5. Úr hverju eru rúsínur framleiddar? Vínberjum JS .s> •O 03 ö. æ

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.