blaðið - 15.12.2006, Side 56

blaðið - 15.12.2006, Side 56
56 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006 blaðið Eg vissi alveg þegar ég kom til landsins að það sem ég er að gera myndi koma fólki í opna skjöldu,“ seg- ir Birgir Örn Steinarsson, Biggi í Maus. „Tónlistin er svo gjör- samlega frábrugðin Maus. Sumir fíla ekki röddina mína og aðrir vilja bara gítarvegg, læti og pungsvita. Ég er í hljómsveit sem heitir Maus og sem vissa tónlist með þeim. Þegar ég er ekki að gera tónlist með Maus geri ég nákvæmlega það sem mér sýnist.“ Fyrir rúmu ári héldu meðlimir hljómsveitarinnar Maus hver í sína átt, Palli gítarleikari stofnaði hljóm- sveitina Fræ, Danni trommuleikari stofnaði hljómsveitina Sometime, en Biggi hélt til London og hóf vinnu við sína fyrstu sólóplötu, Id, sem kom út í síðasta mánuði. Eins og gefur að skilja ríkti mikil spenna fyrir tónleik- um Bigga á Airwaves, en hann kom fram í Listasafninu ásamt hljómsveit sinni, The Bigital Orchestra. Nafnlaus gagnrýni „Mér finnst gott og blessað að fólk hafi sínar skoðanir, sjálfur hef ég reynslu sem gagnrýnandi og veit þess vegna að þetta er bara skoðun eins manns,“ segir Biggi þegar blaða- maður spyr hvað honum finnist um umfjöllun tímaritsins Sirkus um tón- leika hans á Iceland Airwaves-hátíð- inni í október. Sirkus fór ekki fögrum orðum um Bigga og fullyrti að tónleikar hans hefðu verið vonbrigði hátíðarinnar. ,Það sem mér fannst lélegt var að greinin var skrifuð nafnlaust,“ held- ur Biggi áfram. „Það virkaði frek- ar heigulslegt, en ég tók þessu þó ekki illa vegna þess að ég var búinn að fá góða dóma í þremur blöðum áður. Þetta lyktaði samt hálf furðu- lega, kannski svaf ég hjá kærustu einhvers sem vinnur á Sirkus eða eitthvað?" Sem sagt persónulegt? „Já, en það var kannski það besta - að þetta skyldi vera svona illkvittið," segir Biggi. „Ef gagnrýnin hefði ver- ið svona: „Jaa, hann var ekki alveg að standa sig strákurinn" eða álíka næs, eins og slæmir dómar eru oft á íslandi, þá hefði fólk kannski tekið meira mark á honum.“ Það hlýtur að vera erfitt að koma fram með eigið efni þegar fólk hefur vanist þér með jafn ástkœrri hljóm- sveit ogMaus er, ekki satt? „Jú, það sést líka hvað viðbrögðin hafa verið sterk,“ svarar Biggi. „Eft- ir tónleikana labbaði ég af sviðinu og hitti fólk sem fannst tónleikarnir æðislegir. Svo komu aðrir, litu á mig og spurðu í fullkominni hreinskilni hvort ég væri ekki að grínast. Fólk leit á mig eins og ég hefði misst vit- ið og spurði hvort ég væri ekki í lagi. Ég hef aldrei upplifað svona áður, kannski var ég settur á of stórt svið. Ég hefði átt að spila á stað eins og :. Gauknum, ég sé það núna, en það er . ekkert við því að gera eftir á.“ Sterk viðbrögð Biggi segir viðbrögðin við tónlist sinni hafa komið sér mikið á óvart þar sem hún sé alls ekki á brún þess sem vanalega hristir upp í fólk. Þvert á móti segir hann tónlist sina frekar mjúka og rólega en bætir við að fólk erlendis taki sér öðruvísi -en íslendingar. „Viðbrögðin úti eru ; ekki svona geðveik," segir Biggi en ? bætir við að frábært sé að fá sterk viðbrögð við tónlist sinni. „Það .... er akkúrat það sem ég vil. Ég hef : verið umdeildur frá því ég byrjaði að syngja. Fólk hefur alltaf sagt: „Hann er ömurlegur söngvari“ eða: „Hann er frábær söngvari". Ég er orð- inn vanur þessu. Þegar ég byrjaði að syngja hafði ég ekki hugmynd um r að það væri eitthvað skrítið. Mig . langaði bara að syngja.“ Félagar Bigga úr Maus hafa ekki vakið nærri því jafn sterk og blend- in viðbrögð hjá almenningi með sínum sveitum. Plata hljómsveitar- innar Fræ sigldi hálfpartinn und- ir radarinn þegar hún kom út, en sveitin náði þó töluverðum vinsæld- um. Þá hefur hljómsveitin Somet- ime lítið gert, en töluverðar vænt- ingar eru innan tónlistarbransans til frumburðar sveitarinnar. - . 1. •. '‘r ''‘ý' •• * > (miðjunni í Maus „Ég var Émiðjunni i Maus,“ útskýr- ir Biggi. „Eg vil samt taka fram að ég er bara eirtn fjórði af þeirri frábæru hljómsveit. Þegar ég geri eitthvað er eðlilegt að það fái aðeins meiri athygli og veki meiri viðbrögð. Mér finnst stökkið sem ég tók með tón- list minni til dæmis mun stærra en Fræ. Ég ákvað að fara eins langt frá Maus og ég kæmist bara til að sjá hvort ég gæti það. Mér finnst ekk- ert skrítið að tónlistin mín veki upp sterkar tilfinningar hjá fólki. Ég er náttúrlega gæi sem hefur fengið borgað fyrir að segja það sem hon- um finnst í blöðin síðustu fimm ár. Það hafa allir sínar skoðanir á þann- ig fólki.“ Biggi segist hafa fengið góð við- brögð við plötunni sinni frá þeim sem hafa hlustað á hana. „Það er einmitt málið, að fá fólk til að hlusta á hana," segir Big’gi': „Það er búið að vera svolítið erfitt." Mœtti hún seljast meira? „Jájá, en salan er samt enginn skandall. Hún er aðallega hugsuð fyrir útgáfu erlendis. Það er byrjað að dreifa henni í Danmörku, svo fara 12 tónar vonandi almennilega í að dreifa henni um restina af Skand- inavíu eftir áramót. Við erum að tala við fólk í Bretlandi, Þýskalandi og Japan. Það getur allt gerst I þeim efnum.“ Dreifing um allan heim? „Ég ætla að reyna að koma henni í búðir á sem flestum stöðum," seg- ir Biggi að lokum. „Ég er að berjast, ef ég meika húsaleiguna er ég að meika það.“ atli@bladid.net UTSALA - UTSALA 40-80% verðlækkun Nú er hægt að gera góð kaup Dæmi um verð: Kjóll Leöurjakki Túnika íþróttagalli Buxur Peysa Bolir Hvít úlpa Mikið úrval af eldri fatnaði á kr.990 Áður Nú 6.800 3.990 14.900 4.990 5.500 1.100 5.500 2.900 6.500 2.900 6.900 3.500 4.500 1.900 7.700 2.900 'j$8m Opnunartími fyrir jól Virka daga fró kl. 10.00 -18.00 Laugardaga frá kl. 10.00-16.00 www.friendtex.is dfex Síðumúla 13 108 Reykjavík Sími 568 2870 viðtal

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.