blaðið - 03.03.2007, Side 2
2 LAUGARDAGUR 3. MARS 2007
blaöiö
VEÐRIÐ I DAG
Urkoma
Rigning eða slydda sunnan- og aust-
anlands, en él eða dálítil snjókoma
norðvestantil. Hægt hlýnandi veður
og hiti 0 til 5 stig.
ÁMORGUN
Skýjað
Suðlæg átt, 3 til 8 m/s og
skýjað með köflum, en skúrir
eða slydduél vestanlands. Hiti
0 til 5 stig við ströndina, en
annars vægt frost.
VlÐA UM HEIM |
Algarve 16
Amsterdam 7
Barcelona 20
Berlín 6
Chicago 6
Dublin 8
Frankfurt 9
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Montreal
7 New York
S Orlando
-1 Osló
4 Palma
11 París
16 Stokkhólmur
-7 Þórshöfn
12
22
s
20
11
2
3
Á FÖRNUM VEGI
HVAÐÁAÐGERA UM
HELGINA?
Alda Ýr Guðmundsdóttir, nemi
Ég er að fara á SAMFÉS í kvöld.
Ingvar Óli Eymundsson, nemi
Ég ætla að djamma með bróður
mínum. Hann á afmæli.
Steinunn Hákonardóttir, nemi
Ég ætla að vinna og læra alla
helgina.
Emelía Heimisdóttir, nemi
Ég er að fara í bústað í
Munaðarnesi.
Eva Alfreðsdóttir, nemi
Ég ætla að vera heima og
slappa af.
Grunur um samráð Einn þeirra staða sem S
Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá var
Terra Nova en forsvarsmenn fyrirtækisins
vísa því alfarið á bug að hafa átt þátt í óiög-
mætri starfsemi.
Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá ferðaskrifstofum:
Grunaðar um
ólöglegt samráð
11 Kom algjörlega upp úr þurru ■ Vísa ásökunum alfarið á bug
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson
magnus@bladid.net
„Við erum bara rétt að átta okkur
á þessu enda kom húsleitin algjör-
lega upp úr þurru,“ segir Þorleifur
Jónsson, hagfræðingur Samtaka
ferðaþjónustunnar. Starfsmenn
Samkeppniseftirlitsins gerðu í
gærmorgun húsleit á skrifstofum
samtakanna auk tveggja ferða-
skrifstofa innan þeirra. Ástæðan
er grunur um að ólöglegt samráð
hafi átt sér stað milli ferðaskrifstof-
anna sem hafi haft hamlandi áhrif
á samkeppni.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, staðfesti í
samtali við Blaðið í gær að húsleit
hefði verið gerð á þremur stöðum,
hjá Samtökum ferðaþjónustunnar,
Ferðaskrifstofu íslands sem meðal
annars rekur Úrval-Útsýn og Plús-
ferðir og Heimsferðum og Terra
Nova. Páll sagði að athugunin hafi
verið gerð vegna gruns um ólöglegt
samráð en vildi að öðru leyti ekki
tjá sig frekar um efni rannsóknar-
innar á þessu stigi. Hann segir að
farið verði yfir gögn málsins og
ákvörðun um framhaldið verði
tekin í kjölfarið.
Þorleifur segir að starfsmenn á
vegum Samkeppniseftirlitsins hafi
komið um níuleytið í gærmorgun,
um það bil sem skrifstofur samtak-
anna voru opnaðar.
„Þeir komu með dómsúrskurð og
leitarheimild og eru búnir að taka af-
rit úr öllum tölvum og fara í gegnum
alla pappíra. Þeir eru komnir ansi aft-
arlega í sögu Sambands veitinga- og
gistihúsa sem stofnað var 1945.“ Þor-
leifur furðar sig á rökstuðningi Sam-
keppniseftirlitsins sem hann segir
vera byggðan á misskilningi. „Þeir
telja að þeir hafi fundið vísbendingar
um ólöglegt samráð, meðal annars
með því að við höfum setið í vinnu-
hópum á vegum samgönguráðuneyt-
isins þar sem samræmdir leiguskil-
málar bílaleiga voru gerðir. Síðan
kölluðum við ferðaskrifstofur saman
til fundar til að ræða hugmyndir
Neytendastofu um hvað hægt væri
að gera til að koma skýrar fram með
gengisbreytingar sem voru umræðu-
efni í fyrra. Þar að auki sendum við
ferðaskrifstofum lítið reikniforrit
til að hjálpa til við að reikna út verð-
HAthugunin var
gerð vegna
gruns um ólög-
legtsamráð
Páll Gunnar
Pálsson, forstjóri
Samkeppnlseftirlltsins
Þetta kom al-
gjörlega upp úr
þurru
Þorleifur Jónsson,
hagfræðingur Samtaka
ferðaþjónustunnar
breytingar vegna breytinga á virð-
isaukaskatti. Það er náttúrlega graf-
alvarlegt mál að við séum að hjálpa
okkar félagsmönnum að reikna rétt.“
Heimsferðir og Terra Nova sendu
í gær frá sér tilkynningu þar sem
öllum ákökunum um ólögmæta
háttsemi er vísað alfarið á bug. Segir
þar jafnframt að starfsfólk fyrirtækj-
anna hafi reynt eftir fremsta megni
að aðstoða starfsólk Samkeppniseft-
irlitsins við rannsóknina. Ekki náð-
ist í forsvarsmenn Ferðaskrifstofu
Islands í gær.
Helmingi fleiri
nauðungarsölur
Nauðungarsölum á fast-
eignum í Reykjavík hefur fjölgað
um fimmtíu og þrjú prósent.
Það sem af er árinu eru þær þrjá-
tíu talsins en á sama tíma í fyrra
voru þær sextán, samkvæmt
Feldísi Óskarsdóttur, aðstoðar-
deildarstjóra fullnustudeildar
hjá sýslumanninum í Reykjavík.
Þrjátíu og fimm af þeim
hundrað og tuttugu einstak-
lingum sem voru á lista lögreglu
yfir þá sem hafa hunsað boðanir
sýslumanns vegna fjárnáms
höfðu komið til embættisins
seinnipartinn i gær. Á sama
tíma á fimmtudag voru það tutt-
Réðust inn í
Liechtenstein
Um 170 manna herdeild í sviss-
neska hernum marseraði óvart
inn í nágrannjm'kið Liechten-
stein fyrr í vikunni. Herdeildin
var við æfing|r í myrkri og hafði
marserað rúrnan kílómetra inn
í smáríkið áður en mistökin
uppgötvuðust og snúið var
aftur heim. Hermennirnir voru
vopnaðir árásarrifflum, en án
skotfæra.
Talsmaður innanríkisráðu-
neytis Liechtenstein segir að ekk-
ert verði athafst vegna málsins.
„Það er ekki eins og þeir hafi
ruðst inn með þyrlur og skrið-
dreka. ‘ Um 34 þúsund manns
búa í smáríkinu, sem er um 160
ferkílómetrar að stærð.
búkollubás
settu kassaveigarnar
íverðugan búning!
Einstök gjafavara.
Falleg stílhrein hönnun, danskt hugvit.
Fœst í svörtu, rauðu og hvítu.
Húsgagnahöllin
Tékk Kristall
Kringlunni
Fœst einnig í helstu
gjafavöruverslunum
um land allt.
HEILDSÖLUDREIFING
ZANEX ehf
Fyrriim kennari á Akranesi í níu mánaða fangelsi:
Er háður barnaklámi
Héraðsdómur Vesturlands dæmdi
í gær karlmann á sextugsaldri í 9
mánaða fangelsi fyrir vörslu á barna-
klámi. Maðurinn játaði sök og hafði
ekki gerst brotlegur við lög áður, en
fullnustu 6 mánaða af refsingunni
var frestað og fellur niður haldi
hann almennt skilorð.
1 dómnum kemur fram að maður-
inn hafi leitað til sálfræðings vegna
sjúklegrar klám-
fíknar en hins
vegar var mann-
inum virt til refsi-
þyngingar það
gríðarlega magn
af myndefni
sem hann hafði
í fórum sínum,
en í vörslu hans
mmzL
íú,íz- vpfl f}i fífí y, -
Kennarinn er farinn
burt af Skaganum
Blaðið 26. október 2006
fundust alls 11.382 ljósmyndir og 10
hrey fimyndir sem sýndu börn á kyn-
ferðislegan og klámfenginn hátt.
Maðurinn var kennari í Brekku-
bæjarskóla á Akranesi um 27 ára
skeið og var af flestum vel liðinn í
samfélaginu. Það var samkennari
hans sem kom auga á myndirnar
og tilkynnti skólayfirvöldum. I
kjölfarið gerði lögregla húsleit hjá
honum þar sem myndirnar fundust
og var hann handtekinn í skólanum
eftir að venjulegum skólatíma lauk.
I viðtali við Blaðið þann 26. október
síðastliðinn sagði maðurinn að
hann hefði aldrei gert börnunum
mein heldur hafi þetta dvalið í höfð-
inu og tölvunni. Hann kvaðst vera
háður barnaklámi og hugðist leita
sér meðferðar.