blaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 23
Atvinnuauglýsingar
Auglýsingasíminn er
510 3728
Veitingahúsið
Lækjarbrekka
Lækjarbrekka óskar eftir aðstoðafólki í veitingasal
um kvöld og helgar. Reynsla er kostur en ekki
skilyrði.
Kennsla í framkomu og vinnubrögðum fyrir óvana.
Allar upplýsingar eru veittar á staðnum á milli
klukkan 14:00 - 17:00 eða í síma 551-4430.
mmggm
---*———-
Námskeið í gerð áhættumats
Vinnueftirlitið býður upp á námskeið í gerð áhættumats
Á námskeiðinu verður farið yfir gerð skriflegrar áætlunar um
öryggi og heilbrigði á vinnustað skv. reglugerð nr. 920/2006 og
kennd aðferð sem nýtist við verkið.
Námskeiðið er fyrir atvinnurekendur, öryggisnefndir og aðra sem
hafa áhuga á að fræðast um gerð áhættumats.
Námskeiðið ertvö skipti með viku millibili, þrír tímar í senn.
Sjá nánar á heimasíðu Vinnueftirlitsins www.vinnueftirlit.is
Ví
VINNUEFTIRLITIÐ
Eykt óskar eftir
verkefnastióra
Hjá Eykt eru mörg fjölbreytt verkefni framundan. Má þar nefna uppbyggingu
Höfðatorgs, byggingu fjölbýlishúss að Helluvaði og við Norðurbakka.
Orkuver 6 í Svartsengi og flutningur Strætó er einnig á döfinni að ógleymdri
nýbygging Kaupþings í Borgartúni og stækkun Hótel Cabin.
Starfssvið
• Stjórnun og eftirlit með framkvæmdum Eyktar
• Samningagerð og innkaup
• Kostnaðareftirlit og uppgjör
• Samskipti við viðskiptavini Eyktar
Menntunar- og hæfniskröfur
• Byggingaverk- eða tæknifræði
• Góðir samskiptahæfileikar
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Eyktar að Lynghálsi 4,110 Reykjavík.
Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu fyrirtækisins, www. eykt.is
Allar upplýsingar gefur Páll Daníel Sigurðsson,
sviðsstjóri framkvæmdarsviðs Eyktar, palld@eykt.is eða í síma 822-4422.
Eykt ehf. Lynghálsi 4 110 Reykjavík
Sími: 595 4400 ■ Fax: 595 4499
Netfang: eykt@eykt,is www.eykt.is
EYKT.
ÞEKKINGARFYRIRTÆKI í BYGGINGARIÐNAÐI
Skemmtilegasta fólk
í heimi leitar að starfsfélaga
Starfið felst í að vera skemmtileg/ur
og hress allan daginn og fá fyrir hað
himinhá lann
Umsóknir sendist á vesteinn@dagskra.is
__________________________
SJÁVARRANNSÓKNAR5ETURVIÐ BREIÐAFJÖRÐ
Marine Research Centerat Breiðafjörður
LÍFFRÆDINGUR
VÖR Sjávarrannsóknarsetur við Breiðafjörð auglýsir eftir
líffræðingi eða starfsmanni með sambærilega menntun til
starfa við rannsóknarverkefnið:
"Vöktun umhverfísþátta
og framvindu svifþörunga í Breiðafirði."
Vinnan er aðallega fólgin í sýnatöku á svifþörungum, greiningu
og talningu svifþörunga sem og gagnaúrvinnslu.Viðkomandi
tekur þátt í sýnatökuleiðöngrum í náttúruperlunni Breiðafirði,
á öllum árstímum. Starfið er nákvæmnisvinna og krefst
þolinmæði. Um er að ræða fullt starf til þriggja ára og æskilegt
er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Allar nánari upplýsingar gefur Erla Björk Örnólfsdóttir í síma
436-6926 eða 897-4356.
Umsóknarfrestur er 15. mars, 2007.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fýrri störf berist
VÖR Sjávarrannsóknarsetri við Breiðafjörð, Norðurtanga,
355 Ölafsvík eða í netpósti: erla@sjavarrannsoknir.is
VÖR leggur áherslu á rannsóknir á vistkerfi Breiðaf|arðar.Vöktun
umhverfisþátta og framvindu svifþörunga leggur grunn að rannsóknum
á flæði orku um faeðuvef vistkerfisins. Athygli nýbakaðra doktora I
sjávarlíffræði og skyldum greinum er vakin áVÖR sem gestgjafastofnun
fyrir þá sem vilja tengja rannsóknir sinar við vöktunarverkefni Varar.
Líffræðingar sem áhuga hafa á vistfræðilegri nálgun rannsókna á dýrasvifi,
svifþörungum, bakteríum, veirum, botndýrum, fiskivistfræði, samspili botns
og vatnsbols eða áhrifum strauma á llfrlkið eru hvattir til að hafa samband
við Erlu Björk.
www.sjavarrannsoknir.is