blaðið

Ulloq

blaðið - 03.03.2007, Qupperneq 29

blaðið - 03.03.2007, Qupperneq 29
blaðið LAUGARDAGUR 3. MARS 2007 29> Þegar klámumræðan spratt upp nú fyrir - skömmu, eins og hún gerir alltaf með reglulegu millibili, þá slökkti ég á útvarpi og sjónvarpi. Á sínum tíma reyndi ég að gera mitt til að koma þessari umræðu á vitrænt plan og árangurinn af því er minni en enginn. Forpokunin og forræð- ishyggjan hefur aldrei verið meiri en nú. Okkur hefur farið aftur ef eitthvað er," segir Davíð Þór Jóns- son, þýðandi, leikari, rithöfundur og dómari í Gettu betur. Davíð var ritstjóri tímaritsins Bleikt og blátt í fjögur ár, frá 1997-2001. „Þegar ég ritstýrði Bleiku og bláu þurfti ég að sverja það af mér að vera hlynntur vændi og barnaklámi. Ég tók alla þessa umræðu. Nú finnst mér gott að geta slökkt á útvarpi og sagt: „Þetta kemur mér ekki við“. Fólk má velta sér upp úr þessari forpokuðu umræðu eins og svín í flagi, ef því finnst það svona afskaplega gaman. Ég hef annað við líf mitt að gera.“ hafa frumkvæði að kynlífi og njóta þess, þær rísi upp gegn kúgandi kyn- ímyndum og siðgæðishugmyndum feðraveldisins. Þar er líka sterkt afl sem heldur því fram að bann við vændi sé enn ein aðferð feðraveldis- ins til að kúga þá sem minnst mega sín, því verið sé að taka afverst stöddu konunum þaðeinasemþærgeta hugs- anlega gert sér til lífsviðurværis og þær gerðar að glæpamönnum fyrir það. Ástralskir femínistar tala oft um formæður sínar. Ástralía var fanganý- lenda og fyrir hvaða glæp voru konur sendar þangað? Það var að sjálfsögðu vændi. Þessar konur voru að stórum hluta hórur sem fína fólkinu á Eng- landi þótti vont að hafa fyrir framan nefið á sér. Tvískinnungurinn í þessum málum er mikill og ég segi bara: Sá yðar sem syndlaus er... Hver sá karlmaður sem einhvern tíma hefur skoðað mynd af allsberri konu eða farið inn á vafasama síðu á Netinu hefur lagt sitt af mörkum til við- gangs kynlífsbransans. Það sama á við um konur. Ef þú ætlar að segja mér að allir þeir karlmenn og allar þær konur sem höfðu hæst í tilefni af þessum fundi hafi aldrei gerst sek um neitt slíkt þá þykir mér það afar ósennilegt. Ég held að hver einasti þokkalega náttúraður karlmaður hafi einhvern tíma á ævinni skoðað mynd af allsberri konu sér til ánægju. Ég get ekki talað fyrir konur en eftir að hafa talað við vinkonur mínar veit ég ekki um nokkra stelpu sem átti Barbí og Ken á sínum tíma og lét þau ekki einhvern tíma lifa kynlífi." Heigulsháttur og popúlismi Vinstri grœnir töluðu nokkuð einum rómi í þessu máli. Styður þú ekki þann flokk? „Þrátt fyrir þá móðursýki sem grasseraði vegna klámumræðunnar og Vinstri grænir tóku þátt í þá tel ég mig tilheyra þeim flokki. Afstaða til umhverfismála og utanríkismála ræður mínu atkvæði. 1 raun og veru eru allir flokkar jafn sekir um heimsku í umræðunni um klámið og stjórnmálamenn sýndu af sér heiguls- hátt og popúlisma. Reyndar hafði gáf- aða fólkið í Vinstri grænum vit á því að þegja, láta ekki hafa neitt eftir sér því það vildi ekki láta bendla sig við þessa heimsku. Ég nefni engin nöfn. Það er áhugavert að eftir því sem fleira fólk kemur saman þeim mun heimskara verður það. Eitt kvöldið í vikunni horfði ég á fræðslumynd um amerískan kúltúr, beat-kynslóðina og hippana sem börðust fyrir frelsi, frjálsum ástum, frjálsri hugsun og frjálsri sköpun. Hver var árangur- inn? George Bush! Láttu drauminn rœtast Hugsanalögregla og ritskoðun eru allt í einu orðin helstu baráttu- mál gömlu pönkaranna. Það er eins og allar tilraunir til að mjaka þjóðfélaginu eitt skref í rétta átt skili því að farin eru tvö skref í ranga. Þjóðfélagið er eins og asni sem gerir allt þveröfugt við það sem reynt er að fá hann til að gera. Það eina jákvæða sem hefur gerst á breiðum skala í íslensku þjóðfé- lagi undanfarin ár eru viðbrögðin við Le Pen-isma Frjálslyndra. Það er eina skiptið sem myndast hefur breið þverpólitísk samstaða sem var vitræns eðlis. Samstaða sem byggði á mannúð en ekki forpok- aðri forræðishyggju. Af hverju? Af því að það var þveröfugt við það sem reynt var að ná fram.“ Framhald á næstu síðu Reglur réttarríkisins Hópifólks var meinað að koma til landsins vegna þess að það tengist klámiðnaði. Hver erskoðun þín áþví oghvernigfannstþér umræðan? „Þegar fréttist að klámlið væri að koma til íslands til að hittast þá brást fólk við með gaggi og fjaðra- foki, það er eins og minkur hafi komist í hæsnakofann. Öllum er svo mikið í mun að það sjáist að þeir séu á móti klámi að.þeir tyggja upp að klám sé ógeðslegt og að það eigi að banna það. Fólk gleymir að það býr í réttarríki og þar gilda ákveðnar reglur. Einstaklingar njóta ferða- frelsis, óháð þyí hversu geðfellt okkur finnst starf þeirra. Það gleym- ist að skerðing á tjáningarfrelsi, prentfrelsi, fundafrelsi og ferðafrelsi hefur aldrei hjálpað málstað kúgaðs hóps eða minnihlutahóps heldur að- eins hjálpað harðstjórum. Engum öðrum. Ef við viljum búa í þjóðfélagi þar sem ákveðið frelsi er við lýði þá verðum við að sætta okkur við það með kostum þess og göllum. Það á að stöðva eftirlýsta ofbeldismenn og eiturlyfjasala svo ég vísi til dönsku mótorhjólabullnanna sem ætluðu sér að koma hingáð til lands. Annað á við um fólk sem er að vinna við störf sem eru lðgleg í nágranna- löndum okkar. Þessum ákveðna hópi var meinað að koma til lands- ins vegna þess að hann tengist kyn- lífsiðnaði. Við getum eins bannað fólki sem vinnur í Vegagerðinni að hittast vegna þess að börn eru í þrælkunarvinnu við vegalagningu á Indlandi. Við viljum bera okkur saman við Vestur-Evrópu og Norðurlöndin í pólitískri umræðu, nema þegar þegar mál eins og þetta kemur upp. Þá er eins og ekki sé hægt að sækja nein viðmið þangað. Svo er öllum viðbjóðnum blandað inn í umræð- una, barnaklámi og kynlífsþrælkun. Fólk sem getur ekki hugsað um myndir af fólki í samförum öðruvísi en að upp í huga þess komi barna- klám og kynlífsþrælkun á náttúr- lega bara bágt. Svo er haldið fram gamla lygaþvættingnum, sem er margbúið að afsanna, að fylgni sé á milli ofbeldis gagnvart konum og að- gengis að klámi. Hvar er aðgangur að klámi bestur? Á Vesturlöndum og í Japan. Hvar er aðgangur að klámi erfiðastur og verstur? Það er í Sádi-Arabíu og Afganistan." Forpokaður forræðishyggjufemínismi Nú er sagt að klám einkennist af kvenfyrirlitningu. „Það eru alls ekki allir á einu máli um það. Það er eins og tslendingar hafi bara fengið forpokaða forræð- ishyggjufemínismann til sín. Úti í hinum stóra heimi eru starfandi fem- ínistasamtök sem eru hlynnt klámi og líta á klámdrottningar sem fyrir- myndir. Þær séu ekki fórnarlömb í kynlífi heldur gerendur, þær þori að frábcer fermingartilboö á rúmum & svefnssófum Doris 1 20 x 200cm Verð. 39.900,- áöur 61.800,- Rafmagnsrúm verð áður 101.600 Suprima 90x200cm 33.280,- áður 41.600,- 1 20x200cm 42.400,- áður 53.000 1 40x200cm 49.360,- áður 61.700 5 svæða pokagormadýna og botn Electai20x200 60.570 áður 67.300 - Opið virka daga laugadaga 10 til 18 11 til 16 HÚSGAGNAVERSLUN TOSCANA SMIÐJUVEGI 2. KOP S 587 6090 HÚSGOGNIN FA'St ElNNIG / HUSGAGNAVAL, HÖFN S 478 2535

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.