blaðið - 24.03.2007, Side 16
16
LAUGARDAGUR 24. MARS 2007
blaðið
Danmörk
Holland
Slóvakía
Ungverjaland
Portúgal
Króatia
2004 1 Malta
Makedónía
Kýpur
EVRÓPUSAMBANDIÐ:
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Ðuftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Fimmtíu ár Evrópusambandsins
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Þess verður minnst á Sunnudag að
fimmtíu ár eru liðin frá staðfestingu
Rómarsáttmálans, en hann markaði
upphafið að því Evrópusambandi
sem við þekkjum í dag. Leiðtogar að-
ildarrikja munu koma saman i Berlín,
höfuðborg Þýskalands, til að minnast
afmælisins, en Þjóðverjar eru nú í
forsæti sambandsins. Leiðtogar aðild-
arríkjanna munu skrifa undir yfirlýs-
ingu þar sem helstu afreka sambands-
ins er minnst og markmið sett fyrir
framtíðina.
Formleg hátíðahöld vegna afmælis-
ins hófust í Róm á Ítalíu í gær.
fose Manuel Barroso,
forseti framkvæmda-
stjórnar Evrópu-
sambandsins, og
Romano Prodi,
forsætisráðherra
ftalíu, ávörp-
uðu ítalskan
þingheim af
því tilefni og
sagði Barroso
í hátíðarræðu
sinni að Evrópa þurfi sýn og mark-
mið til að veita íbúum sambandsins
innblástur næstu fimmtíu árin. „Við
verðum að sannfæra íbúa álfunnar
um að Evrópusambandið sé besta
svarið við þeim verkefnum sem við
stöndum frammi fyrir, eins og á
sviði alþjóðavæðingar, sjálf-
bærs vaxtar og samkeppni.
Við getum ekki skilið
árangur síðustu fimm ára-
tuga frá verkefnum fram-
tíðarinnar, því allt er þetta
samofið.“
f yfirlýsingunni sem verður
undirrituð um helgina verður ekki
minnst á hin umdeildu drög að stjórn-
arskrá sambandsins. A fréttavef
BBC segir að þar verði minnst
á „að endurnýja þann grunn
sem sambandið byggist á,
áður en gengið verður til
kosninga til Evrópuþings-
ins árið 2009.“ Prodi
sagði í viðtali í gær að
án stjórnarskrárinnar
muni Evrópusambandið
líða undir lok. Stjórnvöld
í Bretlandi og nokkrum
aðildarríkjum til viðbótar
hafna hins vegar þessu við-
horfi ítalska forsætis-
ráðherrans.
Stjórnarskrár-
drögin hafa
þegar verið stað-
fest í sextán af 27
aðildarríkjum
sambandsins.en
Frakkar og Hol-
lendingar höfn-
uðu stjórnarskránni þegar hún var
borin undir þjóðaratkvæði árið 2005.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands,
segir í samtali við þýska dagblaðið
Bild að hið stækkaða Evrópusamband
þurfi á stjórnarskrá að halda til þess
að straumlínulaga ákvarðanatöku
innan sámbandsins.
Hátíðahöldin í Berlínar-
borg hófust í dag og munu
standa yfir í tvo daga. Boðið
verður upp á ókeypis pylsur
og bjór, auk þess að enginn
aðgangseyrir verður inn á
söfn borgarinnar. Þá verður
boðið upp á sérstakan aðgangspassa
inn á 35 skemmtistaði í borginni á
andvirði þúsund króna, en passinn
er niðurgreiddur af Evrópusamband-
inu. Margir telja það mjög táknrænt
að halda upp á einingu Evrópubúa og
minnast fimmtíu ára sögu sambands-
ins í Berlín, borg sem áður var stríðs-
hrjáð og klofin með múr.
Með undirritun Rómarsáttmálans
árið 1957 settu Frakkar, Vestur-Þjóð-
verjar, ftalir, Hollendingar, Belgar og
Lúxemborgarar Efnahagsbandalag
Evrópu á laggirnar, sem varð siðar að
Evrópusambandinu með samþykkt
Maastichtsáttmálans árið 1992.
Barroso segir í viðtali við Deutche
Welle að eitt helsta afrek Evrópusam-
ESB
bandsins vera að með stofnun þess
hafi tekist að koma á friði milli rikja
í álfunni sem lengi höfðu barist sin
á milli. „Upphaflega var það ætlun
helstu hugmyndafræðinga sambands-
ins að koma á varanlegum friði í álf-
unni og gera stríð óhugsandi innan
álfunnar. Við megum ekki gleyma að
Evrópusambandið var stofnað eftir
síðari heimsstyrjöld og lagði grunn-
inn að sáttum í Evrópu."
Sverrir Einarsson
Hermann Jónasson
Geir Harðarson
Bryndís Valbjamardóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Evrópusambandið heldur um helgina upp á að fimmtíu ár eru liðin frá staðfestingu
Rómarsáttmálans, sem markaði upphaf Evrópusambandsins. Óvissa ríkir um framtíð ]
stjórnarskrár sambandsins vegna biðstöðu í staðfestingarferli hennar, en
stjórnarskrá hefði lagt grunninn að enn frekari stækkun sambandsins.
□ Aðildarriki ESB og
ártal inngöngu
■ Hafa sótt um ESB aðild
Finnland
M9951
Lettland
|2004 1
Lithaen
2004
s 2004
AFSTAÐA
EINSTAKRA RÍKJA
'Vinlr
stjórnarskrárinnar"
Átján ríki sem
þegar hafa staðfest
stjórnarskrána, auk
Irlands og Portúgal
sem styðja að ieitast
verði eftir því að
ndurlífguð stjómarskrá
verði samþykkt.
"Félagsieg Evrópa"
Hópur ríkja undir
ðsögn Frakka sem
styrkja félagslega
i stjórnarskrárinnar,
til að draga úr ótta
við alþjóðavæðingu.
akkar og Hollendingar
ifnuðu stjórnarskránni i
íjóðaratkvæðagreiðslum
árið 2005.
Efasemdarrfkin"
Hópur rfkja,
i.a. Bretar og Danir,
sem frestuðu
staðfestingarferlínu
vilja enga eða styðja
:ki eins umfangsmikla
stjórnarskrá.
10 GRAPHIC NEWS
ESB 1 hálfa öld Hátiðahöld i tilefni af hálfrar aldar
afmæli ESB standa um helgina og þykir það
táknrænt að mðja hátiðahaldanna sé í Berlín
Aðlldarríki: 27
Landsvæði: 4.324.782 km2
fbúar: 497 milljónir
Stofnað: 25. mars 1957 (Rómarsáttmálinn) 7. febrúar 1992 (Maastrictsáttmálinn)
Forseti framkvæmdastjórnarinnar:
Juan Manuel Barroso (Portúgal)