blaðið - 24.03.2007, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007
blaöiö
Við altanð brutu þjofarmr upp treskap
þar sem geymdur var járnskápur með
sakramentum og silfurkaleik.
iFNAS
)G Im
Þjófaflokkur handsamaður
Árið 1935 voru fjórir piltar æði
athafnasamir við þjófnað og inn-
brot. í janúarmánuði brutust þeir
inn í Landakotskirkju. Framarlega
í kirkjunni var peningasöfnunar-
kassi sem þjófarnir brutu upp. Eng-
ir peningar voru í kassanum því
hann hafði verið tæmdur helgina
áður. Við altarið brutu þjófarnir
upp tréskáp þar sem geymdur var
járnskápur með sakramentum og
silfurkaleik. Þjófarnir báru skáp-
inn út á tún og brutu hann upp með
eldskörungi sem þeir fundu í kirkj-
unni. Þjófarnir stálu ekki kaleikn-
um og snertu ekki sakramentin.
Stálu frá Sjálfstæðisflokknum
Þremur vikum seinna ákváðu
tveir ungir menn úr hópnum, 18
og 19 ára, að brjótast inn í mann-
lausa íbúð á Þórsgötu. Þar stálu
þeir 30 krónum, keyptu sér brenni-
vínsflösku og héldu áfram inn-
brotum. Þeir fóru að bensínsölu
Zimsen, brutu upp hurð og rúðu
en stálu engu. Næst héldu þeir í
Varðarhúsið, brutu upp hurð að
skrifstofu happdrættis sem þar
var til húsa og brutu upp allar
hirslur fyrir utan eldtraustan skáp
sem þeir gátu ekki haggað. Síðan
fóru þeir á skrifstofu miðstjórnar
Sjálfstæðisflokksins, brutu þar
upp hirslur og stálu frímerkjum
fyrir 100 krónur. Uppi á lofti var
skrifstofa Heimdalls, félags ungra
sjálfstæðismanna. Þar brutu þeir
einnig upp allar hirslur en fundu
engin verðmæti.
Næst ná leiðin í Hressingar-
skálann. Þeir klifruðu yfir port-
ið á bak við hann, brutu rúðu á
bakhlið hússins, reyndu að opna
peningakassa en tókst það ekki.
Þeir stálu vindlum og sígarett-
um. I sömu hillu var pakki með
smápeningum en þeim félögum
sást yfir hann. 0r garðinum bak
við Hressingarskálann fóru þeir
inn í skóbúð Gunnars Jónssonar í
Austurstræti og stálu þar pening-
um en ekki var það umtalsverð
upphæð.
Tvö Ijós hár
Úr portinu bak við hús Nathans
og Olsens fóru þeir upp á þakið á
Noramagasin. A þakinu var turn
með riðum og fjórir metrar úr
niður á gólf. Piltarnir brutu eina
rúðu, náðu í stiga sem var á þak-
inu, komust eftir honum niður
á búðarborðið og tóku með sér
fimm krónur í peningum. Eftir
það reyndu þeir að brjótast inn
í veiðafæraverslunina Geysi en
tókst það ekki.
Á einum innbrotsstaðnum
fann lögregla bláa alpahúfu og
voru á henni tvö ljós hár. Lög-
reglumenn á vakt höfðu séð um
nóttina mann á ferð um bæinn
sem þeim þótti eftir á að hefði
verið grunsamlegur. Hann var
kallaður fyrir rétt og eftir nokk-
urt þref játaði hann að hafa fram-
ið innbrotin ásamt félaga sínum.
Þeir sögðu síðan til hinna félaga
sinna tveggja. Allir fengu menn-
irnir fangelsisdóm.
.
Netreikningur SPK
ri 14,60%
Tryggðu sparifé þínu topp ávöxtun
Sæktu um á www.spk.is
* M.v. vaxtatöflu SPK 21. 03. 2007