blaðið - 24.03.2007, Qupperneq 45
blaöið
LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 45
Hönnuður vikunnar // Aquascutum
Vorlína fyrir komandi vor Rykfrakkanum
bregður fyrir og Ijósir litir eru í hávegum.
Tískumerkið Aquascutum hefur
verið til svo lengi sem elstu menn
muna og það er jafnsamofið
breskum lífsstíl eins og tebolli og
Margaret Thatcher.
Aquascutum var stofnað 1851 af
John Emary sem opnaði búð á
Regent Street í London. Emary
gerði ýmsar tilraunir með það
að markmiði að búa til ullarefni
sem hrinti frá sér vatni. Nafnið
Aquascutum þýðir einmitt
vatnsskjöldur og má geta þess
að Edmund Hillary, fyrsti Evr-
ópumaðurinn til að klífa Everest,
klæddist fatnaði frá Aquascutum.
Fyrirtækið hannaði föt fyrir breska
herinn og árið 1917 framleiddi það
rykfrakka fyrir hermenn. Síðan þá
hefur fyrirtækið haldið merkjum
Nýjasta lína Aquascutum fyrir vetur 2007-2008 vor Hug-
myndirnar fyrir línuna voru sóttar aftur til Krimstríðsins. Her-
mannalegir jakkar og leikið sér af rykfrakkanum.
rykfrakkans á lofti sem orðin er
einskonar einkennisflík fyrirtæk-
isins. Frægir einstaklingar eins og
Peter Sellers, Winston Churc-
hill, Humphrey Bogart og Greta
Garbo hafa öll klæðst rykfrökkum
frá þessu fyrirtæki. Einnig er það
þekkt fyrir blá og brúnköflótt efni
og hefur verið það síðan efnið
kom fyrst á markað í kringum
1970 og telst það í dag orðið að
klassik.
Lúxustíska og Pierce Brosnan
Á undanförnum árum hefur Aqu-
ascutum farið í gegnum mikla and-
litslyftingu. Hönnunin heldur enn
fast í ræturnar fötin eiga enn við
breska veðráttu en stefnan hefur
verið tekin á að gera Aquascutum
að lúxus-tískumerki.
Heimurirjn í
svart/hvitu
Það heitasta í dag er svart/hvíta
tískan og þannig kjólar eru áber-
andi. Hvort sem það eru kjólar með
röndum eða blómamynstur í svart/
hvítu eða buxur við jakkafatajakka
í þessum litum þá eru stjörnurnar
að missa sig yfir þessu og birtast
hvar sem er klæddar með þessum
klassíska hætti.
OMV
DKr
Charlize Theron fangar stílinn
Smart í svart/hvíta jakkafatastílnum
Sienna Miller aldrei langt undan
Sienna er sennilega upphafskona
svart/hvita-stílsins sem er svo áber-
andi
Sarah Jessica Parker
Afslöppuð í svart/hvítum kjól
iCHOli
VtY NlCHOt
HARVEV I
(OIUi H A
Röndótt býfluga
Thandie Newton er alltaf fín
Nýjar og sjóðheitar bækur um íslenskt samfélag
AÐ VERA EÐA SÝNAST
Afskaplega merkileg bók um sýnd og reynd í stjórnmálum og þjóðlífinu
og viðskiptalífinu.
Egill Helgason í Silfri Egils á Stöð2
Stuttir hnitmiðaðir kaflar.... Þetta ætti eiginlega að vera skyldulesning
fyrir alla sem fylgjast með þjóðmálum.
Jóhann Hauksson á Útvarpi Sögu
Það er ljóst að hér er á ferðinni beittur fræðimaður með brýnan
boðskap sem á ekki síst erindi nú í aðdraganda þingkosninga.
Þormóður Dagsson í Lesbók Mbl.
Bókin fór beint á toppinn
yfir handbækur og fræðirit
hjá Eymundsson.
OPIÐ LAND
STAÐA ÍSLANDS í SAMFÉLAGI ÞJÓÐANNA
Þessi nýja bók eftir Eirík Bergmann Einarsson fjallar um tengsl íslands við
umheiminn í víðu samhengi. Dregnir eru upp megindrættir í utanríkisstefnu
íslands, m.a. fjallað um hnattvæðinguna, innflytjendur, Evrópusambandið
samskiptin við Bandaríkin og almennt um afstöðu íslendinga til umheimsins.
Nauðsynleg öllum sem vilja þekkja til
íslenskra utanríkismála!
KOMIN AFTUR!
Bjargvætturinn í grasinu er ein af þessum bókum
sem hver kynslóðin af annarri gleypir í sig.
Óviðjafnanlegt meistaraverk í
frábærri þýðingu Flosa Ólafssonar.
KOMIN í KILJU!
Á ég að gæta systur minnar? er virkilega áhrifarík saga... Bók sem
erfitt er að leggja frá sér eftir að lestur er einu sinni hafinn.
- Súsanna Svavarsdóttir, Fbl. 26. nóv. 2006
J. D. Salinger
Bókin á erindi við nútímann, hún er um efni sem skiptir máli
og sem geta komið upp í náinni framtíð. Þýðing Ingunnar
Ásdísardóttur er til fyrirmyndar. Hörkugóð bók sem ég mæli
hiklaust með.
- Gunnar Hersveinn, Lesbók Mbl. 2. des. 2006
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 -101 Reykjavík
skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is