blaðið - 24.03.2007, Side 59
LAUGARD,
blaöiö
ttARS 2007
43
Hljómsveitin Coldplay hefur ráðið bandaríska hip
hopp-mógúlinn Timbaland til þess að taka upp nýj-
ustu plötu þeirra en Timbaland segist afar spenntur
og ekki eiga von á öðru en skemmtilegri samvinnu.
Stjörnustælar
Fyrirtækið Starbucks hefur hætt við að fá Idolkeppandann og óskarsverðlauna-
hafann Jennifer Hudson til þess að koma fram á ársfundi fyrirtækisins í Seattle.
Ástæðan ku vera sú að Hudson setti fram fáránlegar kröfur eins og fimm bíla,
grillaða kjúklingavængi í morgunmat og sérstaka öryggisgæslu.
HÉGÓMINN...
Cruise í trúboði
Leikarinn Tom Cruise leggur sig
nú allan fram við að reyna að sann-
færa bresku fótboltahjónin, David
og Viktoríu Beckham um að
ganga í Vísindakirkjuna en hann
skildi eftir 18 skilaboð einn og
sama daginn í þessum tilgangi.
„Viktoría er orðin svolítið þreytt á
Tom varðandi allt þetta Vísinda-
kirkjumál," segir vinkona fótbolta-
frúarinnar. „Viktoría er gamaldags
Breti sem trúir á guð og hefur
engan áhuga á að skipta um trú
og þegar hún er búin að taka
ákvörðun þá er það þannig og
mjög erfitt að sann-
færa hana um
annað. Það skiptir
þvf engu hversu
oft Tom hringir."
Ekki nóg með að
leikarinn hafi verið
iðinn við að hringja
heldur hefur kona
hans slegist í lið
með honum og
reynir nú einnig
að fá Viktoríu á
þeirra band.
Föt Madonnu
á Netinu
Föt úr fatalínu sem Madonna
hannaði fyrir H&M og komu í búð-
irnar í vikunni er þegar hægt að
kaupa á uppboðsvefnum E-bay.
Vinsælustu flíkurnar úr línunni
eins og rykfrakkar, sólgleraugu,
silki-kímonóar og capribuxur eru
heitar „online" og seljast jafnvel á
mun hærra verði en þær eru seldar
á í H&M-verslunum. Sérstakar línur
þar sem fyrirtækið fær til liðs við
sig þekkta einstaklinga hafa flogið
út úr versluninni og til að mynda
seldist lína sem Stella McCartney
gerði upp á nokkrum klukku-
stundum í sumum útibúum sænsku
keðjunnar. Hingað til hafa þekktir
fatahönnuðir eins og Karl Lagerfi-
eld, fyrrnefnd Stella og Victor og
Rolf verið fengnir í samstarf en
nú hafa söngkonur fengið að þróa
hönnunarhæfileikana innra með
sér og í sumar mun ný sundfatalína
vera kynnt f samstarfi við Kylie
Minogue. Forsvarsmenn H&M
segjast ekki ætla að
gera neitt við
uppboðssöluáföt-
unum sem fram
fer á netinu og
íslenskar konur
gleðjast vænt-
anlega yfir því
þar sem þær
geta komist
yfir góssið án
þess að fljúga
yfir hafið í
þeim tilgangi.
Britney vinnur
málsókn
Britney Spears hefur fengið
lögbann á manneskju sem lak
fréttum af söngkonunni meðan
hún var í meðferð en fréttirnar birt-
ust á síðum breskra slúðurblaða.
Britney er einnig að undirbúa mál
gegn þessum ónafn-
greinda heimildar-
manni um að frétt-
irnar sem hann lak
hafi verið rangar.
Britney krefst þess
að bresku
slúðurblöðin
fletti ofan
af heimild-
armanninum
þannig að hún
geti farið með
málið alla leið
innan réttarkerf-
isins.
Veikur fyrir tam
Hinn sérstaki Tommy Lee segist
vera óður í tær en hann hefur sagt
frá því í viðtali að hann sé haldinn
fótablæti. Tommy Lee segist þræða
skóbúðir reglulega vegna þessarar
þráhyggju í þeirri von um að sjá
ókunnugar kvenmannstær.
Nú síðast tókst trommaranum að
hneyksla tónleikagesti i Seattle þeg-
ar hann sneri sér að tám félaga síns,
Lucas Rossi sem sló Magna út í Rock
StanSupernova í fyrra. „Tommy
var að gera sér dælt við fót einnar
grúppíunnar þegar hann skyndi-
lega ákveður að snúa sér að Lucas
sem tók greinilega vel í það og fór
úr skóm og sokkum svo að Tommy
gæti látið vel að tám hans,“ segir að-
dáandi sem staddur var á tónleikum
sveitarinnar.
paO SW,pW
Le99ðu 30.000 Vr.eM
0re9il> v«(Wt»'
uacBook fartöWu e(
Landsbankinn
é