blaðið - 26.05.2007, Síða 4
4 LAUGARDAGUR26. MAÍ 2007
blaðið
HAGSTOFAN
Háhraðatenging algeng
INNLENT
84% heimila geta tengst Netinu. Nærri níu af hverjum
tíu nettengdum nota háhraðanettengingu á heimilum.
Þetta kemurfram í niðurstöðum rannsóknar Hagstof-
unnar á notkun heimila og einstaklinga á tæknibúnaði
og Internetinu sem gerð var fyrr á þessu ári.
NORRÆNT SAMSTARF
Ossur samstarfsráðherra Norðurlanda
Össur Skarphéðinsson hefur tekið við embætti sam-
starfsráðherra Norðurlanda, en hann var í fyrradag
skipaður iðnaðarráðherra. Hlutverk samstarfsráðherra
Norðurlanda er að rækta og efla samstarf við Norður-
lönd, meðal annars á vettvangi Norðurlandaráðs.
HREINDÝRAVEIÐAR
Mega sækja bráð á vélknúnum ökutækjum
Umhverfisráðuneytið hefur veitt leiðsögumönnum með
hreindýraveiðum heimild til að sækja bráðina á léttum
vélknúnum ökutækjum að lágmarki með sex hjólum, ef
leiðsögumaður metur það svo að ekki sé hætta á náttúru-
spjöllum. Óheimilt er að nýta ökutækið til að elta dýrið uppi.
Ástralía:
Stóri bróðir
veldur reiði
Raunveruleikaþátturinn Big
Brother í Ástralíu hefur sætt
mikilli gagnrýni almennings
eftir að framleiðendur þátt-
anna ákváðu að segja einum
þátttakandanum ekki frá því
að faðir hennar væri látinn.
Þátttakendur eru látnir
búa saman í einangrun og
fylgst er náið með dagleg-
um samskiptum þeirra.
Faðir konunnar lést úr krabba-
meini í síðustu viku. Framleið-
endurnir verja ákvörðun sína
og hafa birt bréf frá bróður
konunnar sem segir að hún
hafi sjálf tekið þessa ákvörðun
áður en upptökur hófust.
f fyrra voru tveir karlar
reknir úr þáttunum fyrir að
áreita konu kynferðislega.
Rússland:
Eldur í sjón-
varpsturni
Eldur kom upp í Ostankino-
sjónvarpsturninum í Moskvu í
gær. Klukku-
tíma tók að
ráða niðurlög-
um eldsins og
engan sakaði.
Turninn er
eitt helsta
kennileiti
Moskvuborgar
og er hann
nærri tvöfalt hærri en Eiffel-
turninn i París. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem eldur brýst út í
turninum, en miklar skemmdir
urðu á honum í eldi árið 2000.
Þrír létu lífið í þeim eldsvoða.
Eftir Þórð Snæ Júliusson
thordur@bladid.net
Bandaríski verðbréfamarkaðurinn
Nasdaq lagði í gærmorgun fram yfir-
tökutilboð í OMX Group, sem meðal
annars rekur Kauphöll Islands. Kaup-
verðið er 3,67 milljarðar Bandaríkja-
dollara, eða tæplega 230 milljarðar
íslenskra króna.
OMX Group rekur kauphallir í
öllum norrænu ríkjunum og Eystra-
saltslöndunum að Noregi undan-
skildum. Um 800 fyrirtæki eru skráð
í kauphöllum fyrirtækisins, þar af
eru 25 frá íslandi. Hið sameinaða
fyrirtæki verður um 4000 milljarða
króna virði.
Nasdaq er einn stærsti verðbréfa-
markaður í heimi með um 3200 fyr-
irtæki á skrá. Þau verða því um 4000
eftir sameininguna og frá 39 mis-
munandi löndum. Samanlagt virði
þeirra fyrirtækja verður eftir samein-
inguna um 350 trilljónir króna.
Þórður Friðjónsson, forstjóri OMX
kauphallarinnar á fslandi, segir yf-
irtökuna mikið fagnaðarefni. „Eg
held að það sé gæfuspor að fara inn
í þessa samstæðu. Þegar ég hef verið
spurður um það á síðustu árum
hvernig ég hef talið að best væri fyrir
okkur að þróast hef ég alltaf sagt að
sú framtíðarsýn sem mér hugnaðist
best væri að sameinast fyrst OMX,
líkt og gerðist í september í fyrra,
og fara síðan yfir Atlantshafið til að
sameinast annaðhvort Nasdaq eða
New York Stock Exchange."
Þórður telur yfirtökuna breyta
heilmiklu fyrir þátttakendur á ís-
lenskum hlutabréfamarkaði. „Sýni-
leiki fyrirtækja og stórra aðila á
markaðinum stóreykst og aðgangur
fjárfesta að honum verður mun
greiðari. Við erum einfaldlega að
verða hluti af einni stærstu kauphöll
í heiminum með mikla starfsemi
beggja vegna Atlantshafsins. Mark-
aðurinn hér verður hluti af þessari
heild og það felur í sér að sóknar-
tækifærin verða stórum betri en
áður.“
Hann telur að kaupin muni leiða
til aukins áhuga erlendra fjárfesta á
íslenskum hlutabréfamarkaði. „Það
er einfaldlega þannig að það verður
miklu auðveldara og betra fyrir fyr-
irtæki að koma því sem þau eru að
gera á framfæri og vekja þannig á sér
athygli. íslensk fyritæki hafa verið
að ná gríðarlegum árangri á undan-
förnum árum og hafa spennandi
sögu að segja.“
Þórður hræðist ekki að Nasdaq
verði of stór leikvöllur fyrir íslensku
jjgmK „Okkur finnst
mjöggottað
leika á stórum
velll."
Þóröur Friðjónsson,
forstjóri OMX kauphall-
arinnará Islandi.
fyrirtækin. „Það er auðvitað þannig
að þegar markaður stækkar þá
þurfa menn að vera með þeim mun
öflugri framsetningu á sínu fyrir-
tæki og skýra vel frá því til að ná
athygli. Það er stórt verkefni en ís-
lensk fyrirtæki hafa einfaldlega náð
mjög góðum árangri í þeim efnum
á undanförnum árum. Ég hef því
ekki áhyggjur af því að Islendingar
verði allt í einu fyrirferðarlitlir og
gangi með veggjum, heldur finnist
okkur þvert á móti mjög gott að
leika á stórum velli.“
Kauphöll íslands Alls verða um 4000
fyrirtæki frá 39 iöndum á skrá ísamein-
uðu kauphöllinni. Samanlagt virði þeirra
fyrirtækja verður um 350 trilljónir króna.
Mynil/Kristinn Ingmsson
Nasdaq kaupir OMX sem rekur Kauphöll íslands:
ór< leikvöííur be
— _____ _______ 1ÉÉI
Gæfuspor segir forstjóri Kauphallarmnar Kaupverð er urti 230 milljarðar
.Gott í garðinn
o
o
• Góður alhliða áburður.
• Hentarvel í öll blómabeð, fyrir
matjurtír, skrautrunna og tré.
• Inniheldur öll helstu næringar-
og snefilefni.
• Berið á 3-4 sinnum yfir vaxtar-
tímann frá maí fram í míðjan júlí
O
Áburdoruerksmidjon
www.aburdur.is
v Fæst í óllum helstu garðyrkju- og byggingavöruverslunum landsins y
Valgerður Sverrisdóttir vill verða varaformaður Framsóknarflokks:
Sterkur leikur í stöðunni
Valgerður Sverrisdóttir mun sækj-
ast eftir embætti varaformanns
Framsóknarflokksins á miðstjórn-
arfundi sem verður haldinn í næsta
mánuði.
Á blaðamannafundi sem Val-
gerður hélt í húsi Framsóknarflokks-
ins sagði hún: „Ég tel að við þær að-
stæður sem nú eru í þjóðfélaginu og
í flokknum sé það sterkur leikur að
bjóða mig fram og ég vona að ég nái
kjöri.“
Valgerður talaði um að nú væri ný
staða komin upp í íslenskum stjórn-
málum. „Það var talað um tvo póla
í íslenskum stjórnmálum en með
samstarfi Sjálfstæðisflokks og Sam-
fylkingar þá heyrir þetta sögunni
til,“ sagði Valgerður og bætti við:
„Við erum því á fullri ferð aftur inn í
fjórflokkakerfið sem er Framsóknar-
flokknum mjög hagstætt." Hún nýtti
einnig tækifærið til þess að höggva í
hina nýju ríkisstjórn. „Framsóknar-
flokkurinn hefur frá upphafi verið
frjálslyndur umbótaflokkur eins og
stefnuyfirlýsingar í gegnum tíðina
bera með sér, en það er mjög athygl-
isvert að sú ríkisstjórn sem tók við
völdum í gær þurfti að sækja í smiðju
Framsóknarflokksins til þess að
skilgreina sig og kalla sig frjálslynda
umbótastjórn. Það er mikill munur á
frjálslyndi og frjálshyggju.“
Valgerður var fyrst kjörin á þing
árið 1987 og varð þá fyrsta þingkona
Framsóknarflokksins í meira en 30
ár. Síðan þá hefur mikið vatn runnið
til sjávar því að Framsóknarflokkur-
inn var sá flokkur sem hafði jöfnust
kynjahlutföll á fraboðslista sínum
fyrir nýafstaðnar alþingiskosningar.
Dagsetning miðstjórnarfundar-
ins hefur enn eklci verið ákveðin en
það verður gert í næstu viku. Líklegt
þykir að hann verði í fyrri hluta mán-
aðarins. Valgerður er enn sem komið
er ein í framboði.