blaðið - 26.05.2007, Side 25

blaðið - 26.05.2007, Side 25
Atvinnuauglýsingar Auglýsingasíminn er 510 3728 Fjallabyggð LAUS STORF I FJALLABYGGÐ Eftirtaldar stöður eru lausartil umsóknar. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Fræðslu- og menningarfulltrúi i Ólafsfirði eða á Siglufirði Fræðslu- og menningarfulltrúi hefur umsjón með fræðslu- og menningarmálum Fjallabyggðar og sinnir stjórnsýsluverkefnum sem varða þessa málaflokka. Hann er starfsmaður fræðslunefndar og menningarnefndar sveitarfélag- sins, vinnur með þeim að stefnumótun í viðkomandi málaflokki og framfylgir ákvörðunum þeirra. Fræðslu- og menningarfulltrúi hefur yfirumsjón með sérfræðiráðgjöf og sérfræðiaðstoð fyrir/við fræðslustofnanir og hefur eftirlit með að skólastarf sé í samræmi við lög, reglugerðir og stefnu sveitar- félagsins. Hann er fræðslu- og menningarstofn- unum sveitarfélagsins til ráðgjafar um rekstur og hefur umsjón með þjónustusamningum vegna aðkeyptrar þjónustu. Fræðslu- og menningarfulltrúi hefur umsjón með menningartengdum viðburðum á vegum sveitarfélagsins og stýrir verkefnum sem varða samræmingu og samþættingu á milli stofnana Fjallabyggðar á sviði fræðslu og mennin- gar. Hann hefur auk þess frumkvæði að nýsköpun og þróun í þessum málaflokkum og tekur þátt í ýmsum þverfaglegum verkefnum sveitarfélagsins, t.d. forvarnarstarfi. Menntunar- og hæfniskröfur: • Kennaramenntun eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Áhugi og þekking á menningarmálum. • Færni í mannlegum samskiptum • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi • Sérkennsluréttindi eru æskileg. • Reynsla af sambærilegu starfi eða skólastjórnun er æskileg • Reynsla af starfi í stjórnsýslu er æskileg. Umsóknarfrestur er til 10. júní n.k. Tengiliðir: Þórir Kr. Þórisson, bæjarstjóri, thorir@fjallabyggd.is, s. 464 9100 og Jón Hrói Finnsson, þróunarstjóri, jonhroi@fjallabyggd.is, s. 464 9200. Grunnskólakennarar við Grunnskóla Ólafsfjarðar Umsjónarkennara vantar á yngsta og miðstig og i almenna kennslu á mið- og unglingastigi í Grunnskóla Ólafsfjarðar. Grunnskóli Ólafsfjarðar starfar á tveimur kennslustöðum þar sem eru yngri og eldri deild. í skólanum eru um 140 nemendur í 1. -10. bekk. Á bilinu 15-20 nemendur eru í bekkjardeildum. Öll húsnæðisaðstaða er mjög góð svo og tækja- kostur. Grunnskólinn er Olweus-skóli og unnið er að ýmsum þróunarverkefnum s.s auknu vali, námsmati og fl. Umsóknarfrestur er til 10. júní n.k. Tengiliðir: Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir, skólastjóri, threyk@olf.is, s. 464 9220 / 864 5997 og Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir, aðstoðar- skólastjóri, vhedins@ismennt.is, s.464 9230 / 895-2571. Umhverfisfulltrúi í Ólafsfirði eða á Siglufirði Fjallabyggð leitar að áhugasömum og framsæknum einstaklingi til að sinna starfi umhverfisfulltrúa. Umhverfisfulltrúi hefur meðal annars umsjón með skipulagningu og hirðingu opinna svæða, sorphirðu og endurvinnslu, skipulagi umhverfismála og gerð umhverfisáætlana. Hann hefur einnig umsjón með umhverfisverkefnum tengdum staðardagskrá 21. Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun og/eða starfsreynsla á sviði garðyrkju og umhverfismála. • Víðtæk tölvuþekking • Færni í að vinna með skipulagsgögn og teikningar. • Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar. • Sjálfstæði í vinnubrögðum. • Skipulagshæfileikar og frumkvæði við lausn verkefna. • Stjórnunarreynsla er æskileg. Umsóknarfrestur er til 31. maí. Tengiliður: Sigurður Hlöðversson, bæjartæknifræðingur, sihl@siglo.is, s. 464 9100. Starfsmaður í áhaldahúsi Fjallabyggðar í Ólafsfirði Reyndur vélamaður með vinnuvéla- réttindi 2 óskast til starfa í áhaldahúsi Fjallabyggðar í Ólafsfirði. Starfið felur í sér vélavinnu vegna snjómoksturs og framkvæmda á vegum sveitarfélag- sins, auk annarra verkefna áhaldahúss. Viðkomandi þarf að geta tekið þátt í viðhaldi vinnuvéla og tækja. Umsóknarfrestur er til 30. maí n.k. Tengiliður: Sigurður Hlöðversson, bæjartæknifræðingur, sihl@siglo.is, s. 464 9100. Grunnskólakennarar við Grunnskóla Siglufjarðar Á Siglufirði vantar nokkra menntaða kennara til starfa fyrir næsta skólaár. Meðal kennslugreina eru: Almenn kennsla, dans, heimilis- fræði, íþróttir, sérkennsla, textílmennt, upplýsinga- mennt og tæknimennt. Einnig vantar kennara í ensku og samfélagsfræði á unglingastigi. Grunnskóli Siglufjarðar starfar á tveimur kennslustöðum þar sem eru yngri og eldri deild. í skólanum eru um 190 nemendur í 1. - 10. bekk. Á bilinu 15-20 nemendur eru í bekkjardeildum. Unnið er að markvissri upp- byggingu á skólastarfinu. Unnið er gegn einelti skv. Olweus-áætlun, auk þess sem unnið er að Græn- fána. Upplýsingar um skólann er að finna á www.sigloskoli.is. Umsóknarfrestur er til 10. júní n.k. Tengiliður: Jónína Magnúsdóttir, skólastjóri, skolastjori@sigloskoli.is, s. 464 9150 / 845 0467. Fjallabyggð Gránugötu 24, 580 Siglufirði, s. 464 9100, f. 464 9101 Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði s. 464 9200, f. 464 9201 www.fjallabyggd.is Sveitarfélagið Fjallabyggð er nyrst á Tröllaskaga og varð til við sameiningu Ólafsfjarðar og Siglufjarðar áriö 2006. Þar búa urn 2.400 manns. Bæirnir tveir eru afar fjölskylduvænir og þaðan er stutt i góða útivistarmöguleika jafnt að sumri sem vetri. Fjölbreytt þjónusta er í bæjunum og mannlíf gott og liflegt. Tæknifulltrúi í Ólafsfirði eða á Siglufirði Tæknifulltrúi starfar með með bæjartæknifræðingi að verkefnum á sviði byggingar-, tækni- og umhverf- ismála og hefur umsjón með tímabundnum verk- efnum varðandi þessa málaflokka. Starfið felur í sér áætlun og eftirlit vegna framkvæmda á vegum sveitarfélagsins, auk þátttöku í eftirliti með leyfis- skyldum framkvæmdum í Fjallabyggð. Menntunar- og hæfniskröfur: • Tæknimenntun sem nýtist í starfi • Reynsla úr sambærilegu starfi er æskileg • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi • Færni í notkun almenns skrifstofuhugbúnaðar er mikilvæg • Reynsla og kunnátta í notkun teikniforrita er æskileg Umsóknarfrestur er til 10. júní n.k. Tengiliður: Sigurður Hlöðversson, bæjartækni- fræðingur, sihl@siglo.is, s. 464 9100. Markaðs- og kynningarfulltrúi í Ólafsfirði eða í Siglufirði (50%) Ný staða markaðs- og kynningar- fulltrúa Fjallabyggðar er laus til umsóknar. Markaðs- og kynningarfulltrúi er umsjónarmaður ímyndarmála Fjallabyggðar. Hann hefur umsjón með markaðs- setningu sveitarfélagsins og kynningu þess út á við. Hann er tengiliður þess við fjölmiðla og fulltrúi sveitarfélagsins í samstarfi um markaðssetningu og kynningu. Markaðs- og kynningarfulltrúi vinnur með sveitarstjórn og stjórnendum að kynningu á þjónustu sveitarfélagsins og er umsjónarmönnum viðburða á vegum sveitarfélagsins til ráðleggingar um markaðs- setningu. Markaðs- og kynningarfulltrúi hefur frumkvæði að verkefnum á sviði markaðs- og kynn- ingarmála og og vinnur að samstarfsverkefnum á þessum sviðum með aðilum innan sem utan sveitar- félagsins. Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun og/eða reynsla á sviði markaðsmála • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi • Hugmyndaauðgi í úrlausn verkefna • Góð tölvu- og islenskukunnátta Umsóknarfrestur er til 10. júní n.k. Tengiliðir: Þórir Kr. Þórisson, bæjarstjóri, thorir@fjallabyggd.is, s. 464 9100 og Jón Hrói Finnsson, þróunarstjóri, jonhroi@fjallabyggd.is, s. 464 9200. Ráðgjafi í félagsþjónustu á Siglufirði Laus er staða ráðgjafa við félagsþjónustu Fjalla- byggðar með starfsstöð á Siglufirði. I starfinu felst meðal annars ráðgjöf og stuðningur við börn, unglinga og foreldra, umsjón með þjónustu við fatlaða, félagsleg ráðgjöf og þverfaglegt starf í Fjallabyggð. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun á sviði félagsmála • Þekking og yfirsýn varðandi málefni fatlaðra • Þekking og reynsla í starfi með fjölskyldum • Reynsla af stjórnun og rekstri • Frumkvæði og sjálfstæði í verki. • Hæfni í samskiptum og samstarfi • Skipulagshæfileikar Umsóknarfrestur er til 30. maí n.k Tengiliður: Hjörtur Hjartarson, félagsmálastjóri, hh@siglo.is, s. 464 9100. Fjöldi starfa í boði www.radning.is RAÐNINGAR ÞJÓNUSTAN Persónuleg og fagleg þjónusta Krókháls 5a • 110 Reykjavík • Sími: 588 7700

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.