blaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 25
Atvinnuauglýsingar
Auglýsingasíminn er 510 3728
Fjallabyggð
LAUS STORF I FJALLABYGGÐ
Eftirtaldar stöður eru lausartil umsóknar.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Fræðslu- og menningarfulltrúi i Ólafsfirði
eða á Siglufirði Fræðslu- og menningarfulltrúi
hefur umsjón með fræðslu- og menningarmálum
Fjallabyggðar og sinnir stjórnsýsluverkefnum sem
varða þessa málaflokka. Hann er starfsmaður
fræðslunefndar og menningarnefndar sveitarfélag-
sins, vinnur með þeim að stefnumótun í viðkomandi
málaflokki og framfylgir ákvörðunum þeirra.
Fræðslu- og menningarfulltrúi hefur yfirumsjón
með sérfræðiráðgjöf og sérfræðiaðstoð fyrir/við
fræðslustofnanir og hefur eftirlit með að skólastarf
sé í samræmi við lög, reglugerðir og stefnu sveitar-
félagsins. Hann er fræðslu- og menningarstofn-
unum sveitarfélagsins til ráðgjafar um rekstur og
hefur umsjón með þjónustusamningum vegna
aðkeyptrar þjónustu. Fræðslu- og menningarfulltrúi
hefur umsjón með menningartengdum viðburðum
á vegum sveitarfélagsins og stýrir verkefnum sem
varða samræmingu og samþættingu á milli
stofnana Fjallabyggðar á sviði fræðslu og mennin-
gar. Hann hefur auk þess frumkvæði að nýsköpun
og þróun í þessum málaflokkum og tekur þátt í
ýmsum þverfaglegum verkefnum sveitarfélagsins,
t.d. forvarnarstarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Kennaramenntun eða önnur háskólamenntun
sem nýtist í starfi.
• Áhugi og þekking á menningarmálum.
• Færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Sérkennsluréttindi eru æskileg.
• Reynsla af sambærilegu starfi eða skólastjórnun
er æskileg
• Reynsla af starfi í stjórnsýslu er æskileg.
Umsóknarfrestur er til 10. júní n.k.
Tengiliðir: Þórir Kr. Þórisson, bæjarstjóri,
thorir@fjallabyggd.is, s. 464 9100 og Jón Hrói
Finnsson, þróunarstjóri, jonhroi@fjallabyggd.is,
s. 464 9200.
Grunnskólakennarar við Grunnskóla
Ólafsfjarðar Umsjónarkennara vantar á
yngsta og miðstig og i almenna kennslu á mið-
og unglingastigi í Grunnskóla Ólafsfjarðar.
Grunnskóli Ólafsfjarðar starfar á tveimur
kennslustöðum þar sem eru yngri og eldri deild.
í skólanum eru um 140 nemendur í 1. -10. bekk.
Á bilinu 15-20 nemendur eru í bekkjardeildum.
Öll húsnæðisaðstaða er mjög góð svo og tækja-
kostur. Grunnskólinn er Olweus-skóli og unnið
er að ýmsum þróunarverkefnum s.s auknu vali,
námsmati og fl.
Umsóknarfrestur er til 10. júní n.k.
Tengiliðir: Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir,
skólastjóri, threyk@olf.is, s. 464 9220 / 864 5997
og Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir, aðstoðar-
skólastjóri, vhedins@ismennt.is, s.464 9230 /
895-2571.
Umhverfisfulltrúi í Ólafsfirði eða á Siglufirði
Fjallabyggð leitar að áhugasömum og framsæknum
einstaklingi til að sinna starfi umhverfisfulltrúa.
Umhverfisfulltrúi hefur meðal annars umsjón með
skipulagningu og hirðingu opinna svæða, sorphirðu
og endurvinnslu, skipulagi umhverfismála og gerð
umhverfisáætlana. Hann hefur einnig umsjón með
umhverfisverkefnum tengdum staðardagskrá 21.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun og/eða starfsreynsla á sviði garðyrkju og
umhverfismála.
• Víðtæk tölvuþekking
• Færni í að vinna með skipulagsgögn og
teikningar.
• Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar.
• Sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Skipulagshæfileikar og frumkvæði við lausn
verkefna.
• Stjórnunarreynsla er æskileg.
Umsóknarfrestur er til 31. maí.
Tengiliður: Sigurður Hlöðversson,
bæjartæknifræðingur, sihl@siglo.is, s. 464 9100.
Starfsmaður í áhaldahúsi Fjallabyggðar í
Ólafsfirði Reyndur vélamaður með vinnuvéla-
réttindi 2 óskast til starfa í áhaldahúsi Fjallabyggðar
í Ólafsfirði. Starfið felur í sér vélavinnu vegna
snjómoksturs og framkvæmda á vegum sveitarfélag-
sins, auk annarra verkefna áhaldahúss. Viðkomandi
þarf að geta tekið þátt í viðhaldi vinnuvéla og
tækja.
Umsóknarfrestur er til 30. maí n.k.
Tengiliður: Sigurður Hlöðversson,
bæjartæknifræðingur, sihl@siglo.is, s. 464 9100.
Grunnskólakennarar við Grunnskóla
Siglufjarðar Á Siglufirði vantar nokkra menntaða
kennara til starfa fyrir næsta skólaár. Meðal
kennslugreina eru: Almenn kennsla, dans, heimilis-
fræði, íþróttir, sérkennsla, textílmennt, upplýsinga-
mennt og tæknimennt. Einnig vantar kennara í
ensku og samfélagsfræði á unglingastigi.
Grunnskóli Siglufjarðar starfar á tveimur
kennslustöðum þar sem eru yngri og eldri deild. í
skólanum eru um 190 nemendur í
1. - 10. bekk. Á bilinu 15-20 nemendur eru í
bekkjardeildum. Unnið er að markvissri upp-
byggingu á skólastarfinu. Unnið er gegn einelti skv.
Olweus-áætlun, auk þess sem unnið er að Græn-
fána.
Upplýsingar um skólann er að finna á
www.sigloskoli.is.
Umsóknarfrestur er til 10. júní n.k.
Tengiliður: Jónína Magnúsdóttir, skólastjóri,
skolastjori@sigloskoli.is, s. 464 9150 / 845 0467.
Fjallabyggð Gránugötu 24, 580 Siglufirði, s. 464 9100, f. 464 9101 Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði s. 464 9200, f. 464 9201 www.fjallabyggd.is Sveitarfélagið Fjallabyggð er nyrst á Tröllaskaga og varð til við sameiningu Ólafsfjarðar og Siglufjarðar áriö 2006. Þar búa urn 2.400 manns. Bæirnir tveir eru afar fjölskylduvænir og þaðan er stutt i góða útivistarmöguleika jafnt að sumri sem vetri. Fjölbreytt þjónusta er í bæjunum og mannlíf gott og liflegt.
Tæknifulltrúi í Ólafsfirði eða á Siglufirði
Tæknifulltrúi starfar með með bæjartæknifræðingi
að verkefnum á sviði byggingar-, tækni- og umhverf-
ismála og hefur umsjón með tímabundnum verk-
efnum varðandi þessa málaflokka. Starfið felur í sér
áætlun og eftirlit vegna framkvæmda á vegum
sveitarfélagsins, auk þátttöku í eftirliti með leyfis-
skyldum framkvæmdum í Fjallabyggð.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Tæknimenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla úr sambærilegu starfi er æskileg
• Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
• Færni í notkun almenns skrifstofuhugbúnaðar er
mikilvæg
• Reynsla og kunnátta í notkun teikniforrita er
æskileg
Umsóknarfrestur er til 10. júní n.k.
Tengiliður: Sigurður Hlöðversson, bæjartækni-
fræðingur, sihl@siglo.is, s. 464 9100.
Markaðs- og kynningarfulltrúi í Ólafsfirði eða
í Siglufirði (50%) Ný staða markaðs- og kynningar-
fulltrúa Fjallabyggðar er laus til umsóknar. Markaðs-
og kynningarfulltrúi er umsjónarmaður ímyndarmála
Fjallabyggðar. Hann hefur umsjón með markaðs-
setningu sveitarfélagsins og kynningu þess út á við.
Hann er tengiliður þess við fjölmiðla og fulltrúi
sveitarfélagsins í samstarfi um markaðssetningu og
kynningu. Markaðs- og kynningarfulltrúi vinnur með
sveitarstjórn og stjórnendum að kynningu á þjónustu
sveitarfélagsins og er umsjónarmönnum viðburða á
vegum sveitarfélagsins til ráðleggingar um markaðs-
setningu. Markaðs- og kynningarfulltrúi hefur
frumkvæði að verkefnum á sviði markaðs- og kynn-
ingarmála og og vinnur að samstarfsverkefnum á
þessum sviðum með aðilum innan sem utan sveitar-
félagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun og/eða reynsla á sviði markaðsmála
• Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
• Hugmyndaauðgi í úrlausn verkefna
• Góð tölvu- og islenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til 10. júní n.k.
Tengiliðir: Þórir Kr. Þórisson, bæjarstjóri,
thorir@fjallabyggd.is, s. 464 9100 og Jón Hrói
Finnsson, þróunarstjóri, jonhroi@fjallabyggd.is,
s. 464 9200.
Ráðgjafi í félagsþjónustu á Siglufirði
Laus er staða ráðgjafa við félagsþjónustu Fjalla-
byggðar með starfsstöð á Siglufirði. I starfinu felst
meðal annars ráðgjöf og stuðningur við börn,
unglinga og foreldra, umsjón með þjónustu við
fatlaða, félagsleg ráðgjöf og þverfaglegt starf í
Fjallabyggð.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði félagsmála
• Þekking og yfirsýn varðandi málefni fatlaðra
• Þekking og reynsla í starfi með fjölskyldum
• Reynsla af stjórnun og rekstri
• Frumkvæði og sjálfstæði í verki.
• Hæfni í samskiptum og samstarfi
• Skipulagshæfileikar
Umsóknarfrestur er til 30. maí n.k
Tengiliður: Hjörtur Hjartarson, félagsmálastjóri,
hh@siglo.is, s. 464 9100.
Fjöldi starfa í boði
www.radning.is
RAÐNINGAR
ÞJÓNUSTAN
Persónuleg og fagleg þjónusta
Krókháls 5a • 110 Reykjavík • Sími: 588 7700