blaðið - 26.05.2007, Síða 36
36 LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007
blaðiö
„Það getur veJ verið að
einhverjum þx/ki ég ekki
nógu auðsveip kona en
þannig er bara ekki mitt
geðslag. Ég verð bara að
búa viðþað og hinir Jíka
„Það er ekki gott fyrir SjáJfstæðisflokkinn að það verði hið viðtekna viðhorfað hann
nagi aUa samstarfsflokka inn að beini. Þá verður samstarfvið SjáJfstæðisflokk víti tiJ að
varast. Það er mikiJvægt að það séjafnræði ogjafnvægi miJJi þessara flokka og að annar
flokkurinn gjaJdi ekki samstarfsins við hinn."
Hvernig heldurðu að verði að
vinna með Birni Bjarnasyni eftir
allt sem á undan hefur gengið t
ykkar samskiptum?
„Ég treysti því að okkar samstarf
geti orðið gott og að við lærum að
meta kosti hvort annars og horfum
framhjá göllunum. Stundum geta
deilur orðið svo illskeyttar að þær
setja mark sitt á samskiptin. Ég lít
ekki svo á að það eigi við um okkur
Björn þótt við höfum eldað grátt
silfur saman í borgarstjórn Reykja-
víkur. Við Guðlaugur Þór höfum
nú líka heldur betur tekist á þar. En
það eru engin eftirmál af slíku. Við
vorum að gegna pólitísku hlutverki
okkar. Svo geta menn haft gaman
af svona pólitískum skylmingum.
Það er alvara í þessu en þetta er
líka ákveðin íþrótt. Það sem skiptir
öllu er að höggva ekki í persónu
andstæðingsins.“
Tekurþú gagnrýni ncerri þér?
„Það fer eftir því hvernig hún er
sett fram. Ef hún er mjög ómálefna-
leg eða beinist að karakter mínum
þá reiðist ég frekar en að taka það
pærri mér.“
Við val á ráðherrum Samfylk-
ingar lagðir þú höfuðáherslu á
jafna kynjaskiptingu. Afhverju?
„Ef pólitískir flokkar vilja endur-
spegla samfélagið sæmilega vel þá
ber þeim skylda til þess, mínum
flokki eins og öðrum, að reyna
að finna leið til þess að hafa sem
mest jafnræði á milli kynja. Ennþá
vantar talsvert upp á þetta. Á
landsbyggðinni virðist prófkjörsað-
ferðin til dæmis ekki fleyta nógu
mörgum konum inn á lista. Á höf-
uðborgarsvæðinu er eins og menn
séu í ríkari mæli búnir að stilla það
inn í forritið að það eigi að gæta
þessa jafnræðis þegar valið er í
prófkjörum.
í flestum flokksstofnunum og
í flokksstarfinu eru karlar ennþá
meira áberandi en konur og oft
fleiri en þær. Það segir manni
kannski líka það að flokkarnir
þurfa að velta fyrir sér hvort ekki
þurfi að breyta einhverju í flokks-
starfinu og flokkskúltúrnum til
að laða konur frekar að. Ég held
að þjóðin hafi ekkert á móti þvi að
velja konur til starfa, flokksstofnan-
irnar eru oft erfiðari.“
Erfið en dýrmæt reynsla
Tími þinn sem formaður Sam-
fylkingar hefur örugglega stundum
verið erfiður. Varstu aldrei við að
gefast upp?
„Síðustu fjögur ár hafa ekki verið
dans á rósum. Þetta hefur verið erf-
iður tími sem hefur reynt mikið á
mig. Gamalt máltæki segir að það
sem ekki drepi mann herði mann.
Ég held að það sé alveg rétt. Ég held
að ég sé miklu betri stjórnmála-
maður og skynsamari núna en ég
var fyrir fjórum árum. Þessi erfiða
en dýrmæta reynsla gerði líka að
verkum að þrátt fyrir að illa gengi
eftir áramót og fylgið væri komið
niður í átján prósent í skoðanakönn-
unum þá missti ég aldrei svefn.
Þetta var óþægilegt, eins og að fá
vatnsgusu yfir sig, en ég hristi þetta
af mér og hélt mínu striki. Ég var
staðráðin i því að gefast ekki upp.“
Hvað með vangaveltur á blogg-
síðum eða slúðursíðum fyrir kosn-
ingar um að þinn pólitískiferill vceri
í stórhœttu?
„Undanfarin fjögur ár hefur mér
oft verið spáð pólitískum dauða.
Þessu var spáð þegar Björn Bjarna-
son fór í framboð gegn mér í borg-
inni en gekk ekki eftir. Þegar ég
komst ekki inn á þing í síðustu
kosningum var sagt að nú væri
tíma mínum í pólitík lokið. Það
reyndist ekki rétt. Fyrir formanns-
kjör í Samfylkingunni sögðu blogg-
ararnir að minn tími væri liðinn,
sem ekki reyndist heldur raunin.
Auðvitað kemur að því að mínum
tíma ljúki en maður má hvorki láta
blogg né skoðanakannanir stjórna
sinni vegferð."
Þú hefur lagt áherslu á það í
pólitík að menn verði að fara vel
með vald sitt. Það hlýtur að skipta
þig miklu máli að þitt ráðherralið
standi sig.
„Já, ég vil að ráðherrar Samfylking-
arinnar vandi sig í embættisverkum
sínum og fari vel með vald sitt. Þeir
eiga að vera faglegir í ákvörðunum
sínum og láta hæfni þess fólks sem
þeir starfa með ráða för en ekki fyr-
irgreiðslu. Mér finnst þetta skipta
gríðarlega miklu máli.“
kolbrun@bladid.net