blaðið - 12.07.2007, Page 15
blaöiö
FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2007
FRETTIR
15
verið um 750 í fyrra. Því virðist lít-
ill hluti 14.641 íbúa miðborgarinnar
nýta sér kortin.
Borgarráð samþykkti í haust
að koma upp gjaldskyldum bíla-
stæðum í fleiri íbúðagötum í mið-
borginni. Þetta var gert eftir ábend-
ingar Bílastæðasjóðs og sagt eiga að
stýra notkun bílastæða með áhrifa-
meiri hætti svo að íbúar ættu ekki í
erfiðleikum með að finna bílastæði
nærri heimilum sínum.
Gjaldtaka fyrir stæði í miðborg-
inni stendur yfir frá klukkan tíu
til klukkan sex á virkum dögum.
Henni lýkur klukkan tvö á laug-
ardögum og engin gjaldskylda er
á sunnudögum. Því nýtist réttur
handhafa íbúakortanna einungis á
þessum tímum.
Háar upphæðir
Gjald vegna stöðubrots er nú 2.500
krónur. Hinum brotlegu gefst færi á
staðgreiðsluafslætti sem lækkar upp-
hæðina um 550 krónur. Sé gjaldið
ógreitt að tveimur vikum liðnum
hækkar upphæðin um 1.250 krónur.
Ef vikurnar verða fjórar verður að
greiða 5.000 krónur. í starfsáætlun
Bílastæðasjóðs fyrir árið 2006 eru
tekjur vegna stöðubrotsgjalda áætl-
aðar 57,2 milljónir króna.
Ef áætlaðar tekjur vegna stöðu-
brota eru yfirfærðar á fjölda álagn-
inga í hverju póstnúmeri fyrir sig
kemur í ljós að kostnaður hvers íbúa
í 101 vegna þeirra er 3.243 krónur.
í Grafarvogi, sem er í póstnúm-
eri 112, var kostnaður hvers íbúa
vegna stöðubrotsgjalda tæplega tíu
krónur.
Rúmlega 70 prósent þeirra 570
milljóna króna sem Bílastæða-
sjóður hafði í tekjur í fyrra komu í
kassann vegna gjaldskyldra stæða
og stöðumælasekta. { starfsáætlun
sjóðsins segir að allur hagnaður af
rekstri hans undir tíu prósentum
sé óviðunandi og að hagnaðarstig
sjóðsins eigi að vera á bilinu 20 til 35
prósent. Þó er ekkert í starfslýsingu
Bílastæðasjóðs um að hann eigi að
skila hagnaði.
Af hverju er þetta svona?
I þróunaráætlun fyrir miðborg-
ina sem er í gildi segir að stefna borg-
arinnar sé að „þeir sem sæki þjón-
ustu sína í miðborgina hafi greiðan
aðgang að skammtímastæðum og
að íbúar á miðborgarsvæðinu hafi
eðlilegan aðgang að bílastæðum í
nágrenni við heimili sín“. Á öðrum
stað stendur að gert sé „ráð fyrir því
að íbúum á svæðum sem skilgreind
hafa verið sem íbúðasvæði verði
veittur forgangur að stæðum nærri
heimilum sínum“. Miðað við þann
fjölda stöðvunarbrotasekta sem
lagður er á bifreiðar á miðborgar-
svæðinu verður að teljast líklegt að
einhver hluti þeirra bifreiða tilheyri
íbúum miðbæjarins. Því virðist
stefna borgarinnar hvorki vera sú
að tryggja miðbæjaríbúum eðlilegt
aðgengi né forgang að bílastæðum
heldur þvert á móti að leggja auknar
álögur á þá bifreiðareigendur sem
kjósa að búa í miðbænum.
FLEST STÖÐUBROTSGJÖLD
Gata fjöldi gjalda
1. Reykjavegur (við Laugardal) 2.415
2. Laugavegur 1.092
3. Hverfisgata 932
4. Tryggvagata 1.088
5. Grettisgata 852
TILGANGUR
BÍLASTÆÐASJÓÐS
Megintilgangurinn með rekstri
sjóðsins er að stýra nýtingu
bílastæða í þvi skyni að útvega
gestum og viðskiptavinum vel
staðsett skammtímastæði þarsem
nauðsyn krefur. Bílastæðasjóður
fer jafnframt með eftirlit með bif-
reiðastöðu I þvl skyni að greiða fyrir
umferð gangandi jafnt sem akandi
vegfarenda.
Bilastæðasjóður var stofnsettur í
núverandi mynd árið 1988. Hann
á að annast rekstur gjaldskyldra
bílastæða, almennt eftilrit með bif-
reiðastöðu í borginni, álagningu og
innheimtu stöðvunarbrotagjalda.
Sólveig S. Hannam, íbúi á Óðinsgötu
Föst á bak við skafl
en samt sektuð
„Bílum sem er lagt hérna hefur fjölgað mikið
á síðustu mánuðum," segir Sólveig S. Hannam,
íbúi á Óðinsgötu, en í fyrrahaust voru sett upp
g'aldskyld stæði í nokkrum götum sem liggja að
ðinsgötu.
„Ég heyri það frá mörgu fólki sem býr hérna í
Þingholtunum og er búið í vinnunni eftir klukkan
sex að það geti ekki fundið stæði í námunda við
heimili sín. Það er búið að sækja börnin í leikskól-
ann, er með innkaupapokana en getur ekki lagt
í götunni sem það býr í. Þá leggur það þar sem
bílinn kemst fyrir en er þá oft sektað.“
Sólveig hefur sjálf lent í útistöðum við Bílastæða-
sjóð. „Einn veturinn kom ég heim eftir vinnu
klukkan korter yfir sex og lagði uppi á gangstétt
þar sem engin stæði voru laus. Daginn eftir átti ég
að mæta í vinnu klukkan hálfsjö að morgni til en
þá var búið að skafa snjóinn af götunni og bíllinn
grafinn fastur inni. Það hafði rignt um nóttina
og skaflinn frosið. Ég kom ekki bílnum í burtu
vegna skaflsins í þrjá daga og fékk 2.500 króna
sekt á hverjum einasta degi meðan á þessu stóð.“
Hún er ekki ánægð með ástandið eins og það
er. „Það er alveg fáránlegt að þú getir ekki komið
heim til þín eftir vinnu og lagt í götunni þinni án
þess að fá sekt.“
• ■ 4r~ ®
Trie^ncirex
UTSALA
Friendtex 2007
Lokum vegna sumarleyfa mánudaginn 16 júlí
opnum aftur 1. ágúst.
Komið og gerið frábær kaup
einnig mikið úrval af eldri
fatnaði á kr 990.
2 fyrir 1
(Á einungis við um eldri fatnað)
Hörjakki
Hörbuxur
Gallabuxur
Kjóll
Herrapeysa
Pils
Hnébuxur
Herraskyrta
Sandalar
Áður
6.500
5.200
8.800
5.400
6.000
6.400
8.800
5.400
5.500
Nú
2.990
1.900
3.900
2.000
2.900
2.900
3.900
2.500
1.990
Faxafen 10 • Sími 568 2870 • www.friendtex.is
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10.00 - 18.00
Lokað á laugardögum