Orðlaus - 01.07.2005, Page 10

Orðlaus - 01.07.2005, Page 10
Brenndalokan Um daginn var ég stödd í annars manns stofu vestur í bæ. Úr græj- unum ómaði söngur einhvers sen- sitive póníteil tónlistarmanns sem söng um fegurð ástarinnar í takt við blaktandi loga kertaljósanna. Við hlið mér sat maður sem get- ur verið pirrandi á köflum en yfir heildina þá dái ég hann. Hann hélt um fótinn á mér og kitlaði á mér tærnar og mér fannst hann frekar adorable svona áfastur við ilina á mér. Þetta var þetta fullkomna augnablik sem einhverjar óræð- ar tilfinningar sem erfitt er að út- skýra fara af stað og mann langar helst til að breyta ekki neinu það sem eftirlifir... eða allavega þang- að til manni fer að leiðast. En um það bil sem ég ætlaði að fara að opna munninn til að segja manninum, sem enn var fastur með varirnar við fótinn á mér, hvað mér fyndist hann meistara- lega vel heppnaður þá var eins og það lokaðist fyrir eitthvað í hálsin- um á mér. Það sem gerði vart við sig í hálsinum á mér var það sem ég vil kalla brenndulokuna. Þetta er loka, svona eins og vatns- loka, sem myndast þegar ein sál brennir aðra. Lokan verður svo alltaf stærri og stærri eftir því sem brunaútköllin verða fleiri og svo þegar kemur að því að tjá til- finningar, sýna væntumþykju eða leyfa sér að slappa af og líða vel, þá skynjar brenndalokan það, herðir fyrir málpípuna og fram- kvæmdagleðina og við hvorki segj- um né gerum neitt. Tökum enga sénsa að gefinni reynslu. Stöndum Oft þegar við tjáum tilfinningar okkar þá gerum við það með þeirri kröfu um að fá það sama til baka. Segi ekki neitt við neinn sem segir ekki neitt við neinn. Við ætlumst til að allir dóli sér á sama hraða og maður sjálfur og allir séu í hrifnir í takt og skotnir á sömu móment- um. Við þjáumst greinilega enn „Við ætlumst til að allir dóli sér á sama hraða og maður sjálf- ur og allir séu í hrifnir í takt og skotnir á sömu mómentum" bara og störum og minnumst tíma þegar við hlupum á okkur í þess- um efnum og hverju það skilaði okkur. Málið var að ég vildi ekki segja honum neitt því ég var svo hrædd um að hann hefði ekki það sama að segja, eða að ég myndi segja - mér finnst þú frábær - og þá segði hann bara - já, ég veit... eða ... - takk. Og við vitum öll að það versta sem hægt er að heyra þegar maður játarástartengdartil- finningar er... takk. Og hvað segir maður þá... verði þér að góðu (og kannski éttu það sem úti frýs). af samfósyndrominu síðan í sjö ára bekk ... fer ekki skólann nema vera samfó Dísu ... segi ekki hvern- ig mér líður nema þú sért samfó og liði þannig líka. Ekki frekar en við vildum labba ein í skólann í sjö ára bekk, sem bæ ðe vei var algjör- lega ömó, viljum við ekki vera eini aðilinn í tveggja manna sambandi semdeilirtilfinningumeðatjáirað- dáunsína. Svo fara þessar ósögðu tilfinningar að brjótast út í afbrýð- isemi og óöryggi og maður fer að fríka út... - HVAÐA STELPA VAR ÞETTA SEM ÞÚ VARST AÐ TALA VIÐ?! - - Eeeemm, pulsusalinn - JÁ, ER ÞAÐ JÁ? ÞÚ GETUR BARA ÁTT ÞIGI- Og þar með er það samband bú- ið. Þetta hugsaði ég allt saman á meðan maðurinn í stofunni vestur í bæ kyssti á mér ilina, brenndalok- an var að gegna sínu óumbeðna hlutverki og ég sagði ekki neitt við neinn sem sagði ekki neitt við mig. Síðan ákvað ég bara að gefa skít í þetta. Opnaði fyrir lokuna og lét vaða. Og viti menn, það var bara alls ekkert svo slæmt. Ég var bara sátt við að hafa sagt mitt og á þeim tímapunkti var mér í raun sama um hvort hann væri sam- mála mér eða ekki. Ég var bara svo ánægð að hafa opnað fyrir lokuna. Stundum verður maður að taka áhættu og prófa að lifa og njóta. Maður græðir ekkert á lífinu ef maður ætiar sér alltaf að vera varkár. Jóhanna WO «-30 <S) > VINNA Vinna er áhugamál sem flest- ir stunda átta tíma á dag. Þú skalt vinrva eins og þú þurfir ekki á peningunum að halda. Enginn er atvinnulaus með- an þvottakarfan er full. KYNLÍF Það sem þú vilt að aðrir gjöri yður, það skalt þú gjöra svo vel og biðja aðra um. Kynlíf er smáatriði sem kemur að fjölgun mannkyns. Hver er aftur tilgangur lífsins? Að tjá sig um kynlíf við fjölmiðla er eins og að skilja útidyrahurð- ina opna handa þjófum. MATUR Þú lifir ekki til að borða, þú borðartil að lifa. Góðir kokkar hafa ekkert í makann þinn þegar hann fer að sjóða vatn. Laugardagar eru nammidagar. MANNLEG SAMSKIPTI Eyddu orku þinni í fólk sem gef- urþéreitthvaðtil baka. Það sem þú vilt að aðrir gjöri yð- ur... blablabla, þú veist. Sá sem á mest dót þegar hann deyr - vinnur. PENINGAR Það er dýrt að skulda en það er betra en að eiga ekki neitt. Líttu á peninga sem lán og peningaleysi sem - lán. Þú skalt vinna eins og þú þurfir ekki á peningunum að halda. (Sjá vinna.) Hljómsveitin Gubbrass hefur sent frá sér lag á rokk.is sem heitir Fuckface. Það vakti for- vitni okkar að vita hverjir væru á bak við þetta lag og því slóg- um við á þráðinn og komumst að því að það eru tveir Orma- bræður sem standa fyrir Gubb- rassi. Hverjir skipa Gubbrass? Við erum tveir strákar sem erum reyndar í öðrum hljómsveitum. Ég heiti Halli, er 18 ára og er í Lödu Sport, og síðan er Rafnar sem er í Tony the pony. Hvernig varð Fuckface til? Við erum búnir að vera mjög góðir vinir lengi og vorum bara að leika okkur eina helgi og sömdum þetta eina lag og hentum því inn á rokk. is. Hvenær eru fyrstu tón- leikarnir planaðir? Það er í rauninni ekkert planað. Við búum hvor í sínum landshlut- GUBBRASS anum þannig að það er mjög erfitt að æfa. En við þyrftum I rauninni tvo í viðbót með okkur til að geta spilað live, einn á bassa og einn á hljómborð. Hver spilar á hvað? Ég Halli spila á trommur, hljóm- borð, tunnur, bumbur og síðan syng ég og gef frá mér stunur. Rafnar spilar á gítar, bassa, hljóm- borð og syngur. Nú er textinn í laginu frekar grófur. Hvað- an kemur hann? Þetta er nú bara eitthvert flipp. Við vorum bara að leika okkur og langaði að gera eitthvað öðruvísi. Hvort kom á undan, textinn eða lagið? Lagið kom á undan. Þið skilgreinið ykkur á rokk.is sem klám- myndarokk. Er það eitthvert djók eða...? Já, bæði og... maður hefði nú ekk- ert á móti því að heyra lagið í ís- lenskri klámmynd. Hvaðan kom nafn- ið Gubbrass? Við vissum ekkert hvað við áttum að láta hljómsveitina heita en síð- an vorum við að skrifa eitthvað og það kom stafsetningarvilla í text- ann og út úr því kom Gubbrass. Eruð þið búnir að vera lengi í hljómsveitum? Já, við erum búnir að vera það. Ég (Halli) er búinn að vera í Lödu Sport í um það bil þrjú ár og Rafn- ar er búinn að vera í Tony the pony í svipað langan tíma. Er eitthvað sem þér finnst virkilega vanta í íslenskt tónlistarlíf? Nei, mér finnst bara að það vanti meiri metnað í tónlistarsækjend- ur, en þeir mættu alveg vera dug- legri að mæta á tónleika.

x

Orðlaus

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.