Orðlaus - 01.07.2005, Síða 35
Sundrung sveitanna
Björn Bragi Arnarsson og Þórunn Elisabet Bogadóttir
Bitlarnir, ABBA, Take That og Spice Girls eru óumdeilanlega með allra þekktustu popphljómsveitum 20.
aldarinnar. Sögur þessara hljómsveita eru á sinn hátt hver skrautlegar og skemmtilegar, þó fólk muni að
sjálfsögðu alltaf deila um gæði tónlistar þeirra. Þessar fjórar hljómsveitir eiga það sameiginlegt að hafa,
þrátt fyrir stjarnfræðilegar vinsældir, allar lagt upp laupana og aldrei komið saman aftur. Hörðustu aðda-
endurnir hafa enn ekki náð sér og eru jafnvel enn að bíða eftir endurkomu. Hvað veldur því að skærustu
stjörnurnar í poppheiminum brenna út?
Bítlarnir 11970
Árið 1966
voru Bítlarnir
orðnir vinsæl-
asta hljóm-
sveit heims og
andlit þeirra
einhver þau
þekktustuíver-
öldinni. 5tjarnfræðilegar vinsældir
þeirra höfðu þó neikvæðar hliðar og
það ár ákváðu þeir að hætta að spila
opinberlega fyrir almenning svo þeir
gætu einbeitt sér að tónlistarsköp-
un sinni. í ágústmánuði 1967 dó um-
boðsmaður þeirra, Brian Epstein, af
of stórum eiturlyfjaskammti og sama
ár gáfu þeir út kvikmyndina Magical
Mistery Tour, sem fékk háðulega út-
reið í fjölmiðlum.
Á hinu stórkostlega Hvíta albúmi
Bítlanna hafði fyrirkomulagið við
lagasmíðar breyst verulega og hljóm-
sveitarmeðlimir unnu stöðugt meira
í sitthvoru lagi og hættu að semja
lögin í sameiningu. Bítlarnir áttu
eftir að gefa út tvær frábærar plöt-
ur áður en yfir lauk, Abbey Road og
Let it be. Þá hafði mikið vatn runn-
ið til sjávar, t.a.m. innanborðs deilur
um hver ætti að vera umboðsmaður
sveitarinnar og þá var John Lennon
orðinn afar upptekinn að nýrri unn-
ustu sinni, Yoko Ono. Þá vildi Paul
McCartney að Bítlarnir færu aftur
að spila opinberlega en sá vilji hans
mætti ekki góðum undirtektum með-
al hinna meðlima hljómsveitarinnar.
Árið 1970 voru allir Bítlarnir farnir
að sinna öðrum verkefnum og höfðu
ekkert tekið upp í sameiningu síðan
í ágúst 1969. Það kom samt sem áður
sem reiðarslag yfir ungmenni heims-
byggðarinnar þegar Paul McCartney
gaf út yfirlýsingu, 10. ágúst 1970,
þess efnis að hann væri að yfirgefa
Bítlana. Allir héldu þeir áfram í tón-
listinni en náðu aldrei viðlíka hæð-
um og þeir höfðu gert í sameiningu
sem Bítlarnir.
ABBA 11982
Árið 1974tóku
þauBennyAnd-
erson, Björn
Ulveáus, Ag-
netha Faltskog
og Anni-Frid
Lyngstad þátt í
Eurovisionund-
irformerkjum ABBAog komu, sáu og
sigruðu með laginu Waterloo. Fólk
um gervalla heimsbyggðina tók ást-
fóstri við ABBA og í kjölfar Waterloo
fylgdu fjölmargir slagarar sem topp-
uðu vinsældalista um allan heim.
Björn og Agnetha höfðu gift sig
árið 1971 og sjö árum síðar, árið
1978, gengu Benny og Anni-Frid í
það heilaga. Frægðin, vinsældirnar
og hið mikla áreiti sem því fylgdi
reyndi mjög á hjónaböndin og að-
eins nokkrum mánuðum eftir að
Benny og Anni-Frid giftu sig skildi
hitt parið. Ári seinna kom út platan
Voulez-Vous og var efniviður margra
laga þeirrar plötu ástarþjáningar og
eftirsjá. ABBA var þó ekki alveg hætt
og árið 1980 gáfu þau út plötuna
Super Trouper, sem innihélt m.a. hið
Ijúfsára lag The Winner Takes It All,
sem samið var af Birni en sungið af
fyrrverandi konu hans, Agnethu. Eft-
ir útgáfu Super Trouper skildu Benny
og Anni-Frid og allur þróttur var end-
anlega úr hljómsveitinni. Árið 1982
tilkynnti hún formlega að hún væri
hætt störfum.
Eftir að ABBA lagði upp laupana
gáfu Agnetha og Anni-Frid út sól-
óplötur en Benny og Björn fóru m.a.
að vinna að söngleikjum. Margir
hafa eflaust séð söngleikinn Mamma
Mia í London, sem byggður er á lög-
um ABBA. Þrátt fyrir að hljómsveit-
armeðlimum hafi verið heitið gíg-
antískum upphæðum fyrir að spila
aftur saman á tónleikum hafa þau
þvertekið fyrir það og segjast aldrei
munu sjást saman á ný undir merkj-
um ABBA.
Take That 11996
I upphafi 10.
áratugarins
var Take That
vinsælasta ung-
lingahljómsveit
Bretlands um
árabil og seldi
sveitin fleiri
plötur en nokkur annar siðan Bítl-
arnir voru og hétu. í flestum mynd-
böndum þeirra mátti greina samkyn-
hneigða undirtóna og áttu þeir að
höfða til ungra stúlkna og samkyn-
hneigðra karlmanna. Take That var
skipuð fimm ungum strákum, þeim
Gary Barlow, Mark Owen, Robbie
Williams, Jason Orange og Howard
Donald.
Þegar Take That hófu undirbúning
að þriðju plötu sinni, um miðjan 10.
áratuginn, var tónlistarsmekkurinn
í Bretlandi að breytast og svokallað-
ar Brit-pop hljómsveitir, líkt og Blur,
Pulp og Oasis, voru farnar að ryðja
sér til rúms. Á þeim tíma var Ijóst að
Barlow var að fjarlægjast hljómsveit-
ina. Hann var þó ekki sá eini um það
því Robbie Williams styggði hina
meðlimi Take That með því að eltast
við hina ódælu Oasisbræður.
Það kom því fáum á óvart þegar
Williams yfirgaf hljómsveitina árið
1995 og sagðist ætla að vinna að eig-
in efni og hljómsveitin hætti störfum
ári síðar. Gary Barlow, aðalsprautan
i hljómsveitinni og sá líklegasti til
frekari vinsælda, náði aldrei sama
flugi og með Take That og sömu
sögu er að segja af Mark Owen. Öll-
um að óvörum sló vondi strákurinn í
hljómsveitinni, Robbie Williams, hins
vegar rækilega í gegn og er í dag
einn þekktasti og dáðasti tónlistar-
maður heims.
Spice Girls 12000
Kryddpíurnar
komu saman
I árið 1993 eftir
i að hafa svarað
) auglýsingu þar
I semleitaðvar
eftir fimm lífleg-
um stúlkum í
hljómsveit. Þær sögðu þó fljótlega
skilið við umboðsmanninn sem stofn-
aði sveitina og Emma Bunton, Geri
Halliwell, Victoria Adams, Mel B og
Mel C fóru að leita að plötusamn-
ingi sjálfar. Þær fengu á endanum
samning við Virgin-plötuútgáfuna
og umboðsmanninn Simon Fuller. Ár-
ið 1996 kom út smáskifan Wannabe
sem í lok ársins hafði náð toppnum
i 21 landi. Þær fylgdu þessum vin-
sældum vel eftir og urðu gríðarlega
vinsælar um alla Evrópu. Arið 1997
réðust þær síðan á Bandaríkjamark-
að og slógu einnig í gegn þar. Góð
markaðssetning átti ekki síst stóran
þátt í vinsældum Kryddpíanna.
i miðri tónleikaferð um Evrópu, árið
1998, ákvað Geri Halliwell að hætta
í bandinu án þess að nokkrar ástæð-
ur væru gefnar. Orðrómur hafði þó
lengi verið á kreiki um að henni semdi
illa við aðra meðlimi sveitarinnar og
þá sérstaklega hina skapstóru Mel B.
Spice Girls héldu þó ótrauðar áfram
og gáfu út lagið Goodbye og fylgdu
því svo eftir með síðustu plötu sinni,
sem fékk hið skemmtilega og viðeig-
andi nafn: Forever. Eftir að hljóm-
sveitin lagði upp laupana reyndu
allar Kryddpíurnar að koma af stað
eigin ferli, með litlum árangri. Það
var einkum Geri Halliwell, sem var
síst vinsælasta kryddið þegar Spice
Girls voru og hétu, sem náði vinsæld-
um. Mel C átti nokkur lög sem náðu
vinsældum en ferill hinna varð hvorki
fugl né fiskur.
UM HVAÐ ER TEXTINN?
Láttu mig vera með 200.000 Naglbítum
Textinn var saminn árið 2002 eða 2003 ég man það ekki nákvæmlega en
textinn var á plötunni Hjartagull sem kom út 2003.
. -
Hann var örugqlega saminn í einhverju æfingarhúsnæði og á kaffihúsi.
Það er bara orðið svo langt síðan að ég man það ekki alveg.
Það verður fólk að ákveða sjálft og er bara fyrir mig að vita. Ég hef samt
heyrt mjög margar skemmtileqar samsæriskenningar um þennan texta.
En eitthvað er nann um dauðann og ástina... eins og allt sem maður
gerir. Textinn er samt ekki um eitthvert eitt ákveðið atvik. Þetta er einn
af mínum uppáhalds textum, hann er svo djúpur að það verður eitthvað
"Mayhem" pegar einhver ræður úr honum.
Ég skýst út úr lífinu og hvíli mig smá.
Kem svo til baka og þá muntu sjá hver ég er.
f* L >
ER TEXTINN UM GUÐ?
Já, sumir hafa sagt það.
Ja ... hann er um eitthvað.
ER TEXTINN UM DÓP?
"an" Í*ur Þér'
a"k
%?/• '9, L *'}/,
**?*'>'> f**/*'^.
■
/: 11 i /i „ a i^._ "
Nei ... eða hvað veit égf hann er a.m.k um eitthvað.
ERHANN UM DAUÐANN?
Já, það er eitthvað um dauðann í laginu.
”“v „ - -t
a,*eiSpMf.t
Vilhelm Anton Jónsson.
Mvnd: Npto
Já mjög, hver einn og einasti, þeir segja alltaf einhverja sögu. Mér finnst
mjög gaman að semja texta og geri það alltaf frá hjartanu en það er
mjög lélegt þegar tónlistarmenn klúðra textanum því maður er í raun-
inni að klúðra laginu ef maður er ekki með góðan texta.
Úfff, erfið spurning... „Hjartagull" finnst mér vera góður og síðan eru
margir súrrealískir og skemmtilegir á Neondýrunum, sem er fyrsta platan
okkar. Síðan er ég ánægður með„Skerðu myrkrið burt" og „Lítil börn".
Nei, þá hefði ég ekki samið hann.