Orðlaus - 01.07.2005, Qupperneq 39
Klíkurnar fara að
spretta upp
Svokallaðir Teddy Boys voru eitt
dæmi unglingagengja sem byrj-
aði að mótast í Bretlandi á sjötta
áratugnum. Þetta voru í upphafi
verkamannastrákar sem hlustuðu
á rokk og ról, klæddust fínum föt-
um, hvítri skyrtu og bindi, söfn-
uðu börtum og formuðu hárið
með brilljantíni. Stelpurnar gengu
um í stórum og víðum pilsum með
tagl í hárinu og dönsuðu jive við
strákana. Kvikmyndin West Side
Story lýsir þessu tímabili vel og
sýnir hvernig unglingunum var
full alvara með klíkurnarsem þeir
tilheyrðu.
Teddy Boys voru þó ekki einir
um að móta unglingatískuna því
bóhemarnir sem reyndu fyrir sér
með skrifum og listum fóru að
mótast í klíku sem kallaðist Be-
atniks. Þeir voru á móti ríkjandi
háttum og gengu helst i öllu
svörtu. Þeir hafa komið fram í fjöl-
mörgum kvikmyndum og þáttum,
meðal annrars myndinni The Beat
Generation frá árinu 1959.
Samfélagið varð sífellt frjálslegra
og unglingarnir urðu draumur
markaðssetningarmannsins. Þeir
höfðu meiri peninga á milli hand-
anna en foreldrar þeirra höfðu
haft á sama aldri og fylgdust vel
með því sem var að gerast. Sú
breyting, sem hafði átt sér stað
síðustu tiu árin, var bara byrjunin
á unglingabylgju sem átti eftir að
einkenna það sem eftir var aldar-
innar.
Steinunn Jakobsdóttir
idáirt r m vi|
Herbergi 405
Línurnar gegna hlutverki
bláæða sem tengja saman alla
hluta herbergis ástralska hópsins
Pandarosa. Auk þess tákna
línurnar þá margbrotni tengingu
sem er á milli mismunandi lífvera
í náttúrunni. Pandarosa hópurinn
hefur unnið við Ijósmyndun,
prentlist, vefsíðugerð og sett upp
margs konar sýningar í gegnum
tíðina.
Herbergi 115
„Herbergi 115 er undir áhrifum
frá því sem ég sé og heyri út
um gluggan á herberginu mínu
í Caracas" segir Masa, grafískur
hönnuður frá Venesúela. Græni
liturinn er þar allsráðandi en
hún býr í steinsteyptu húsi sem
er umkringt af skógi og grænum
hlíðum.
Hún vildi því gera dvöl gestanna
afslappandi og færa þá inn í
náttúruna þegar þeir koma inn úr
asa stórborgarinnar.
Herbergi 407
Brasilíski hönnuðurinn Speto
gerði allar myndskreytingarnar
sjálfur og klæddi húsgögnin með
mjúku leðri. Hann segir sjálfur
að list sín sé fremur barnaleg en
að verkið í herberginu eigi að
sera nokkurs konar háðsdeila og
blandar saman sögu, stjórnmálum
og lífsbaráttu við áberandi liti og
mynstur.
39