Orðlaus - 01.09.2005, Blaðsíða 40
fD
X
on
r+
fD
5’
c
3
3
OJ
7T
o
cr
Q.
O-
Hippatískan sem var áberandi
undir lok sjöunda áratugarins
einkenndi einnig byrjun þess
áttunda þar sem litadýrð, sítt
hár og blómamunstur réðu
ríkjum. Víetnamstríðið var enn
í fullum gangi, skærur áttur
sér stað um allan heiminn
og margar af þeim róttæku
hugmyndum sem spruttu upp
áratuginn á undan fengu nú
enn meiri hljómgrunn. Það
leið þó ekki á löngu þar til
nýjir straumar tóku yfir þó að
sömu baráttumálin væru enn í
brennidepli.
Reglurnar brotnar
Á þessum tíma tók heimurinn að
skreppa saman sökum auðveldari
samgangna og samskiptaleiða og
áhrifa þess tók að gæta í tískunni
sem varð mun þjóðlegri en áður.
Athyglin fór auk þess að beinast
meira að yngri hönnuðum eins
og Yves St. Laurent, Mary Quant,
Calvin Klein, Ralph Lauren og
Kenzo sem snéri tískunni við með
óstöðugum línum og óvenjulegu
munstri. Allar reglur voru brotnar
og konurnar gengu bara í því sem
þeim þótti flottast og þægilegast
hverju sinni. Pilsasídd kvennanna
sýndi þá þróun greinilega, en á
þessum árum voru mínípils, millisíð
og ökklasíð pils öll í tísku.
Þær stelpur sem vildu bera
leggina klæddust einnig
svokölluðum „hot pants", sem
voru mjög stuttar stuttbuxur.
Hnéhá stígvél úr gervileðri eða
þykkbotna klossar og síðar kápur
eða síðar prjónaðar peysur voru
vinsælar við. Einkennandi voru
auk þess hekluð vesti, húfur, sjöl,
sígaunapils, stórir skyrtukragar,
buxnadragtirog útvíðarbuxursem
voru oft það víðar að þær náðu að
fela skóna alveg. Gleraugu urðu
auk þess tískuvara og þótti flott að
hafa þau með stórum og áberandi
umgjörðum.
Diskóæði ríður yfir
Tónlistin á þessum tíma var algjör
Iffstfll. Þetta var áratugurinn
sem Janis Joplin, Jimi Hendrix og
Elvis Prestley dóu, The Rolling
Stones voru stærri en þá hefði
getað dreymt um, Abba var svöl
hljómsveit og Led Zeppelin voru
sannkallaðir rokkguðir. Það sem
hafði þó hvað mest áhrif á tískuna
þennan áratuginn var diskósenan.
Unga fólkið fylgdist með
diskókúlunniBowieísækadelískum
múnderingum, horfðu á John
Travolta í Saturday Night Fever og
dönsuðu undir strobe-ljósunum á
diskóklúbbunum I diksógöllunum
sem voru yfirleitt „hot pants",
spandex-topparogsatinjakkar.Allt
heila dressið var síðan stíliserað frá
toppi til táar.
Miklar sveiflur einkenndu þó
áratuginn og eftir því sem leið
á fór litagleðin minnkandi og
náttúrulegir litir urðu meira
áberandi. Nýr lífstíll átti eftir
að tröllríða öllu, lífstíll sem var
gjörólíkur gleði diskósins.
Pönkið
Undir lokin var diksóið að detta
út og pönkið varð áberandi, en
það sótti áhrif sín að miklu leyti I
götutískuna. Vivienne Westwood
og Malcolm MacLaren voru
leiðandi I pönktískunni og seldu
hönnun sína I versluninni Sex á
Kings Road I London. (stað litríkra
diskógallanna sáust ungmennin nú
í þröngum og rifnum gallabuxum,
leðurjökkum með hanakamba,
göt í eyrum og nefi og mikla
andlitsmálningu, og gjarnan með
einhver slagorð sem sýndu andúð
á samfélaginu krotuð einhvers
staðar á sig. Hljómsveitir á borð
við The Ramones, Sex Pistols og
The Clash ýttu undir breyttan
lífsstílinn og tengdust tískunni
órjúfanlegum böndum. Bylgja
sem byrjaði sem lítil sjokkerandi
hreyfing í London fór að breiðast
út um allan heim.