Orðlaus - 01.09.2005, Blaðsíða 45
þeim forsendum að þig langi til
að vera með honum. Ekki vegna
þess að þér gekk ekkert í síðasta
sambandinu sem þú varst í. Hann
þarf reyndar líka að langa til að
vera með þér og hvernig þú átt
að fá hann til þess geturðu lesið
um í öðrum greinum en eitt mjög
sterkt hint er að gefa honum und-
ir fótinn en láta hann eltast við
þig í dágóðan tíma. Komum að því
í öðru blaði.
Lélegur bissness
Maðuráekki aðgerasérsambönd
"að góðu". Ekki vinasambönd og
ekkiástarsambönd.Einusambönd-
in sem maður verður að sætta sig
við á þennan hátt er sambandið
við fjölskylduna af því maður vel-
ur sér víst ekki ættingja. En vini og
maka á maður að geta valið sér og
valið frá sér. Það er engum hollt að
sætta sig við samband sem tekur
miklu meira en það gefur af sér.
Það er hreinlega kallaður lélegur
bissness og lélegur bissness fer allt-
af á hausinn á endanum.
Betra er autt ból
en illa skipað
"Betra er autt ból en illa skipað"
var sagt á sjónum í gamla daga og
þetta á maður að heimfæra upp
á sambönd. Leiðinlegur skipverji
sem vann illa gat rústað stemm-
ingunni um borð. Og þegar menn
voru saman á sjó, dag og nótt, þá
var eins gott að skilja þennan öm-
urlega bara eftir í landi þegar mað-
ur loksins komst í land. Láta hann
vera leiðinlegan innan um aðra.
Sigla í burtu og vera laus við hann.
Helv... fíbblið!
Það er svo sannarlega betra að
vera ein, frjáls og óháð í stað þess
að vera bundin í sambandi sem
eykur ekki sjálfsvirðingu þína.
Sambandi sem dregur ekki fram
þínar bestu hliðar og gerir þig að
nöldrandi leiðindaskjóðu. Lítilli
kvartandi kjéllingu (a.t.h. stelpur
mega kalla hvor aðra kjéllingu líkt
og blökkufólk kallar hvort annað
niggah). Til hvers að hanga með
manni til að sanna það fyrir sjálfri
þér að þú getir haldið þetta út? Er
ekki eitthvað sjúkt við það?
Rugl og rusl
Fólk sem heldur of lengi í sam-
bönd ætti að ganga í tólfspora
samtök sem heita á ensku Clutt-
erers anonymous eða Nafnlausir
Ruslarar svona lauslega þýtt yfir
á ilhýra.
Ruslarar er svona fólk sem get-
ur aldrei hent neinu. Allt í drasli
heima hjá þeim. Fullt af hlutum
sem það getur ekki hent af því
það "tengist þessum hlutum til-
finningalega". Cosby show peysur
í stórum stöflum uppi í skáp. Jakk-
inn sem Kjartan gaf mér þegar ég
var sautján ára. Amma gaf mér
þessa styttu. Amma átti þessa
styttu. Amma átti þetta kerti. Nei,
ég get ekki hent þessum dúk, syst-
ir mín prjónaði hann.... os.frv. Þú
veist. Fáránlegt.
Ekki reyna að Ijúga
Stelpur sem halda í gömul vina-
sambönd, eða "ástarsambönd",
eins og Ijótar peysur sem þær tíma
ekki að henda "af því þær hafa átt
hana svo lengi" enda með algera
óreiðu í lífinu og tilverunni.
Óreiðan verður til af því að ef það
er alltaf allt fullt af gömlu dóti þá
hættir þú að geta hugsað skýrt.
Maður verður að henda! Þú verð-
ur að losa þig við það sem veldur
þér leiða og gefur ekkert af sér.
Gerir ekkert nema taka upp pláss.
Þláss sem gæti farið í eitthvað
annað. Til dæmis ný föt sem sam-
ræmast betur þeim smekk sem þú
hefur í dag. Föt sem passa betur
við hvernig þú VILT vera í dag. Föt
sem ÞÉR finnast flott í dag, draga
fram það besta við útlit þitt og tjá
um leið hvar þú vilt staðsetja þig í
flóru mannlífsins.
Þú átt líka að velja þér kærasta
samkvæmt þessum lögmálum.
ÞÉR þarf að finnast hann æði og
ef þérfinnst hann bara pííííínu hall-
ærislegur, eða bara pííínu ósexý,
eða bara pínulítið glataður þegar
hann er að reyna að vera fyndinn,
þá máttu sko hengja þig upp á að
þér á eftir að finnast þetta áfram
og alveg sama hvað þú reynir að
sannfæra þig um hvað hann sé
nú frábær, þá á það ekki eftir að
ganga. Það er hægt að Ijúga að
hausnum en ekki hjartanu.
Vertu heiðarleg
við sjálfa þig
Taktu þig nú saman í andlitinu
stelpa og hægðu á þér. Þó að þú
sért nýkominn út úr sambandi sem
gekk ekki. Sambandi númer þrjú,
fjögur, fimm eða sex þá þýðir það
ekkert að þú sért eitthvað glötuð
eða ómöguleg. Það þýðir bara að
þú ert ekki búin að vera samkvæm
sjálfri þér. Hefur ekki hitt þann
rétta ennþá. Þarft að taka því að-
eins rólega. Láta ekki stjórnast
af viðhorfum annarra. Staðalhug-
myndum um hvernig og hvenær
fólk á að ganga út. Fylla upp í ein-
manaleikann öðruvísi en að byrja
með einhverjum bara til þess að
byrja með honum. Vera í sambandi
bara til að vera í sambandi.
1. Hver ert þú? 2.
Hver er hann?
Héðan í frá, eða eftir að þú lest
síðasta orðið í þessari grein, skaltu
byrja að forgangsraða rétt. Þú
skalt taka því rólega. Bíddu bara.
Andaðu.
Notaðu tímann til þess að kynn-
ast sjálfri þér. Byrjaðu að finna út
hvað þú fílar og hvað þér finnst
lummó, púkó og leim. Skrifaðu
lista af því sem þér finnst gaman
og skrifaðu líka lista af því sem þér
finnst leiðinlegt. Hafðu þetta allt
á hreinu. Notaðu svo líka tímann í
sjálfa þig. Gerðu þig sæta. Grenntu
þig eða fitaðu eftir því sem þú
þarft. Keyptu ný föt. Farðu til sál-
fræðings. í nudd. Syntu. Gerðu
allt þetta sem er gott fyrir þig og
hjálpar þér að blómstra. Hentu
dasli úr skúffum og skápum. Farðu
í klippingu. Æfðu þig í að ganga á
hælum. Borðaðu hollt.
Þegar þú ert búin að kynnast
sjálfri þér vel, veist hvað þér finnst
gaman og veist hvað þér finnst
leiðinlegt, og orðin sæt og hress,
sátt við fortíðina og búin að fyr-
irgefa þér eigin mistök, sestu þá
niður og skrifaðu uppskriftina að
draumadrengnum.
Hvernig er strákurinn ÞINN. Horf-
ir hann mikið á fótbolta? Er hann
rómó? Úlpa eða tjokkó? Uppi eða
hippi? Feministi? Góður gamal-
dags kall? Hvað gerir hann? Skiptir
það máli? Er hann metnaðargjarn?
Einfari? Hópsál? Finnst honum
gaman að djamma? Fílar hann
útivist? Er hann hégómlegur? Er
hann jarðbundinn og rólegur eða
líflegur og dreyminn? Trúir hann á
Guð? Trúir þú á Guð? Kraftaverk
jafnvel? Eða ást við fyrsta sleik?
Talaðu við strákana vel og lengi
og reyndu að kynnast þeim. Vertu
heiðarleg. Opin. Taktu allann
þann tíma sem þú þarft. Ekki flýta
þér. EKKI FLÝTA ÞÉR.
Þú skiptir mestu máli
Þú verður að trúa því að þú ert
ekki neitt lélegri pappír þó þú hafir
ekki bara verið í tveimur nokkurra
ára samböndum og enn í þessu
seinna. Allt hefur sínar ástæður
og þú ert svo sannarlega ekki eina
stelpan sem hefur verið í þessari
stöðu. Trúðu mér. Margar, margar,
margar stelpur sitja uppi með þá
hugmynd að þær séu vonlausar í
samböndum og hafa móral yfir til-
raunastarfsemi fortíðarinnar. Það
er óþarfi að vera með móral. Þetta
er allt á uppleið núna.
Þegar öllu er á botninn hvolft þá
verður það alltaf ein manneskja
sem skiptir mestu máli í þínu lífi.
Manneskja sem er mikilvægari en
börnin þín af því svo lengi sem
þessi manneskja er í lagi þá verða
börnin í lagi. Þetta er manneskja
sem verður með þér fram á síðasta
dag. Manneskja sem fer þangað
sem þú ferð og gerir það sem þú
gerir. Gættu hennar nú vel og
sjáðu til þess að hún sé ekki í hall-
ærislegum fötum og fari á sjóinn
með einhverju fífli sem er leiðin-
legt við hana eða fer i taugarnar
á henni. Hún á betra skilið. Hún á
allt það besta skilið. Hún er þú.
Hannes Þór
Halldórsson - 21 árs
Hver er oddviti Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavíkurborg?
Ég skýt á Gísla Martein til að segja eitt-
hvað.
Hvað heitir forseti Frakklands?
Jacques Chirac
Hvað er tiðarhringur kvenna langur?
28 dagar
Hvað hafa verið margir forsetar á ís-
landi?
Fimm
HvervarDirty Harry?
Clintarinn
Allan Sigurðsson -19 ára
Hver er oddviti Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavíkurborg?
Veit það ekki.
Hvað heitir forseti Frakklands?
Veit það ekki.
Hvað er tíðarhringur kvenna langur?
Veit það ekki. Vika eða eitthvað. Nei, ég
veit það ekki.
Hvað hafa verið margir forsetar á fs-
landi?
Tíu. Nei, ég veit það ekki maður.
Hver var Dirty Harry?
Það var Clint Eastwood!
Svör:
1. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
2. Jacques Chirac
3. 28 dagar að meðaltali
4. Fimm
5. Clint Eastwood