Orðlaus - 01.09.2005, Qupperneq 44
Atli Sævarsson - 19 ára
Hver er oddviti Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavíkurborg?
Er það ekki bara vinalegi gæinn? Eða er
það Geir H. Haarde? Allavega ekki Gísli
Marteinn.
Hvað heitir forseti Frakklands?
Það er ekki Jaqcues Chirac, hann er forsæt-
isráðherra. Pass.
Hvað er tíðarhringur kvenna langur?
28-30 dagar.
Hvað hafa verið margir forsetar á fslandi?
Þeir eru fimm.
Hver var Dirty Harry?
Clint Eastwood.
Sonja Sófusdóttir -16 ára
Hver er oddviti Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavíkurborg?
Ég veit það ekki. Ég skal segja þér það eft-
ir svona mánuð, þá verð ég búin að læra
það.
Hvað heitir forseti Frakklands?
Ég vissi það kannski fyrir þremur árum, en
ekki núna.Ó mæ god.
Hvað er tíðarhringur kvenna langur?
Ég veit það ekki. Hann er svo misjafn. Ok,
30 dagar. Hann er ekkert alveg eins hjá öll-
um!
Hvað hafa verið margir forsetar á íslandi?
Fimm
Hver var Dirty Harry?
Ég veit það ekki. Ég veit ekki einu sinni
hver það er.
Ómar Örn Bjarnþórs-
son - 24 ára
Hver er oddviti Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavíkurborg?
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Hvaö heitir forseti Frakklands?
Jacques Chirac
Hvað er tíðarhringur kvenna langur?
28 dagar. Skiptist á milli gulbúsfasa og egg-
búsfasa. Svo eru blæðingar þar á milli.
Hvað hafa verið margir forsetar á íslandi?
Fimm
Hver var Dirty Harry?
Clint Eastwood
"Það er eitthvað að mér stelpur, Ég tolli aldrei í samböndum!"
ERU SAMBÖND
LÉLEGUR
BISSNESS?
Við annaðhvort erum þessi stelpa eða eigum vinkonu sem er svona. Hún virðist vera í stöðugu stappi með þetta og um leið og
samband númer "átján" lognast útaf fer hún á bömmer eina ferðina enn. Ekki af því sambandið er búið. Nei. Hún er fegin því.
Hún fer á bömmer af því hennar kenning er sú að hún tolli ekki í samböndum. Gæti það verið að það sé eitthvað að henni?
Kannski? Kannski ekki? Ekkert endilega.
Texti: Margrét Hugrún
Ást vex með
vana... eða ekki
Segjum að þú sért ein af þessum
stelpum sem hefur verið í fleiri
en tveimur og fleiri en þremur al-
vöru samböndum þrátt fyrir að
vera kannski ekki nema tuttugu
og fimm ára? Kannastu við það að
hafa byrjað með strák, (til dæmis
af því hann var svo hrifinn af þér)
og af því þú "ert svo ómöguleg"
og hefur hætt svo oft í sambönd-
um, þá ætlaðirðu svo sannarlega
ekki að láta þetta gerast eina ferð-
ina enn!
Þúsættirþigviðgallanahans.Leið-
ir það hjá þér að þegar þið voruð
búin að vera saman í mánuð hætti
hann stundum að svara þér þegar
þú talaðir við hann. Leiðir það hjá
þér að hann situr með fjarstýring-
una upp í sófa og gónir á boltann
þegar þú vilt gera dodo. Leiðir það
hjá þér að þér finnst hann í raun
ekkert geðveikslega hott. Leiðir
það hjá þér að þið hafið ekki sömu
áhugamál, skoðanir né stefnu í líf-
inu. Leiðir það hjá þér að hann vill
spila tölvuleiki fram eftir nóttu.
Nennir aldrei að nudda þig. Eld-
ar ekki. Étur aðallega junk food.
Hefur aldrei farið til útlanda. Leið-
ir það hjá þér að hann sé enn að
tala við stelpuna sem hann var að
reyna við áður enn hann fór að
reyna við þig. Leiðir það hjá þér að
þér finnst vinir hans glataðir. Leið-
ir það hjá þér að þú ert í raun ekk-
ert svo rosalega hrifin af honum.
Segir við sjálfa þig: Enginn er full-
kominn. Þetta hlýtur að koma...
Ást vex með vana og allt það... en
auðvitað ekki, svo aftur og eina
ferðina enn slitnar upp úr þessu
hjá ykkur og þú ert ein, aftur og
eina ferðina enn. Tekur stóran
smók af Salem og segir á innsog-
inu við stelpurnar "Djííísusss. Það
er eitthvað að mér stelpur. Ég tolli
aldrei í samböndum!"
Hlustaðu á þína
innri konu
Gæti verið að þú sért kannski ekki
búin að vera að velja rétt hingað
til? Gæti verið að þú hafir ekki
tollað í samböndum vegna þess
að þú varst aldrei samkvæm sjálfri
þér? Kommon. Viðurkenndu það!
Þegar þú varst að kynnast síðasta
stráknum sem þú hættir með, þá
kom eitthvað upp sem lét þig efast.
Strax í upphafi. Þér fannst hann
í hallærislegum skóm. Þér fannst
glatað að hann væri 27 ára, enn
að reykja hass og reyna að meika
það í rokkinu. Þér fannst hann
sætur, jú ókei. Hann hafði byrjað
í háskólanum einhverntíma. Gæti
kannski klárað seinna. Virkilega
góður strákur og það sem mestu
skipti. Hrifinn af þér!
Allt til helvítis
Þið könnuðust við hvort annað.
Fóruð heim eina nóttina eftir
djamm. Senduð sms næsta dag.
Fóruð í bíó. Hittust á hverjum
degi alla næstu viku. Gerðuð það
á hverju kvöldi og eftir mánuð var
hann fluttur inn. Þið voruð hvort
eð er alltaf saman og auðvitað er
ódýrara að vera tvö saman en að
búa ein. Ha?
Svo fór þetta að fara niður á við.
Hann fór að sýna sinn innri mann
sem var oftar en ekki fúll á móti.
Fór að setja út á þig. Skoða klám
á netinu. Haaannnggga í tölvunni.
Gleyma að hringja. Þú byrjaðir að
fríka út. Nöldra. Reyna að stjórna.
Kvarta og kveina og öskra en svo
gafstu upp og þetta fór smátt og
smátt til helvítis þar til annað ykk-
ar tók af skarið og sagði -What
the fuck!*..%# I will survive.
Og þú situr á Prikinu. Tekur stór-
an smók af Salem og segir við stelp-
urnar á innsoginu "Djísuss. Það er
eitthvað að mér stelpur. Ég tolli
aldrei í samböndum!"
Hlustaðu á innsæi þitt
Það eru góð vísindi að hlusta á
sinn innri mann/sína innri konu.
Sérstaklega þegar það kemur að
því að velja sér maka. Ef það er
eitthvað inni í þér sem segir þér
að þú eigir ekki eftir að verða hrif-
inn af einhverjum strák, þá máttu
bóka að það stendur. Þú átt ekki
að gera þér einhvern náunga að
góðu af því þú heldur að hann sé
svo hrifinn af þér. Þú átt ekki að
fara í samband af því allar vinkon-
ur þínar eru í samböndum og þjóð-
félagið er þannig hannað að fólk
á að para sig. Af því þig langar svo
til að "giftast". Af því brúðkaups-
þátturinn JÁ er svo skemmtilegur.
Af því það er svo leiðinlegt að vera
ein að horfa á vídeó. Af því, af því,
af því... Þú átt að vera með strák
af því þú laðast að honum kynferð-
islega, þú berð virðingu fyrir hon-
um og þér finnst hann fyndinn og
skemmtilegur!
Átt betra skilið
Þú átt það skilið að vera með
manni sem ÞÚ ert hrifin af. Það
verður að vera neisti sem brakar
í. Það verður að vera þessi svokall-
aða kemistría. Þig þarf að langa
til þess að vera í sambandinu á
„Það er engum hollt aó sætta sig við
samband sem tekur miklu meira en það
gefur af sér. Það er hreinlega kallað-
ur lélegur bissness og lélegur bissness
fer alltaf á hausinn á endanum."