Orðlaus

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Orðlaus - 01.12.2005, Qupperneq 41

Orðlaus - 01.12.2005, Qupperneq 41
Allt fyrir dömuna Skemmtileg gjafaaskja frá LUSH er tilvalin jólagjöf. Boxið sem einnig er hægt að nota sem hattabox er fullt af allskyns góðgæti en þar er að finna sjampó og hárnæringu, girnilegan varasalva, mýkjandi sápu og sturtugel, handáburð, ýmis konar freyðiböð sem lykta frábærlega, mjúka og ilmandi nuddsápu ásamt mjög girnilegri hunangs og karamellu jólasápu. Jólagjöf sem klikkar ekki. Verð: 6.950 kr. Lush, Kringlunni. Leðurjakki Leðurjakki úrGallabuxnabúðinni ergóðgjöf handa öllum stelpum. Fæst í svörtu, brúnu og koníaksbrúnu og er á góðu verði þannig að aliir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Mikið úrval er af allskyns fatnaði í Gallabuxnabúðinni þannig að það er um að gera að kíkja inn. Verð: 10.900 kr. Gallabuxnabúðin, Kringlunni. I Flex á Laugaveginum finnur þú ýmislegt fallegt handa konunni í lífi þínu. Gefðu henni fallega handtösku, hálsmen og armband í stíl. hún verður ekki fyrir vonbrigðum með þessa gjöf. Verð: Taska 8.100 kr. Armband 2.550 kr. Löng hálsfesti 5.550 Stutt hálsfesti 4.650 kr. Flex Bankastræti 11 Puma Allar stelpur þurfa að eiga þægilega skó sem að sjálfsögðu þurfa að vera flottir. Puma skórnir hjá Maraþon eru fyrirtaks jólagjöf sem gleður stelpuhjartað. Nettir og kvenlegir skór sem fara vel á hvaða stelpu sem er. í Maraþon er að finna mikið úrval af allskyns skóm í öllum litum. Verð: 11.990 kr. Maraþon, Kringlunni. Skór Þessir loðskór eru algjör snilld fyrir stelpur í kuldanum. Þeir eru þægilegir og hlýjir og halda hita á fótunum í frostinu. Verð: 2.490 kr. Topshop, Smáralind. Gjafakort Þjóðleikhússins Að fara í leikhús er góð skemmtun sem ekki er hægt að gera of mikið af. Gjafakort í Þjóðleikhúsið er tilvalin gjöf fyrir hvern sem er, hvort sem þú gefur maka þínum, foreldrum eða ömmu og afa. Verð:2.700 kr. stk. Þjóðleikhúsið Peysa Þægileg og flott peysa með nælu, fæst í 5 litum. Það er alltaf gott að eiga svona peysu sem bæði er hægt að vera í einni sér og yfir flotta boli. Eitthvað sem klæðir allar stelpur og er á mjög góðu verði. Verð: 2.950 kr. Gallabuxnabúðin, Kringlunni. Kanínutrefill Rosalega rosalega kúl jólagjöf. Kærastan þín mun elska þig út af lífinu ef þú gefur henni kanínutrefil úr Bútík. Hún verður ekki aðeins ótrúlega smart með svona trefil heldur verður henni einnig mjög hlýtt. Hugsaðu vel um konuna þína og gefðu henni trefil sem hún getur vafið um sig. Treflarnir fást líka í brúnu, svörtu og hvítu (14.800 kr. í þeim litum). Verð (treflar á mynd): 16.800 kr. Bútík, Bankastræti 14 Náttföt Bleik og stelpuleg náttföt. Náttbuxur og hlýrabolur er tilvalin jólagjöf fyrir stelpur á öllum aldri. Gjöf sem klikkar ekki. Verð: 3.990 kr. Topshop, Smáralind.

x

Orðlaus

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.