Bændablaðið - 08.02.2005, Page 2
2 Þriðjudagur 8. febrúar 2005
Kjötmjölsverksmiðjunni hefur
verið breytt úr verksmiðju sem
framleiðir kjötmjöl til sölu á mark-
aði og í verksmiðju sem framleiðir
kjötmjöl til eyðingar. Það þýðir að
verksmiðjan getur ekki lengur selt
afurðir sínar heldur þarf að borga
fyrir urðun þeirra á sorpförgunar-
stað, nú í Kirkjuferjuhjáleigu í Ölf-
usi, hjá Sorpstöð Suðurlands. Þar
er aðeins tekið við hitameðhöndl-
uðum úrgangi og að sögn Guð-
mundar Tryggva Ólafssonar, fram-
kvæmdastjóra Sorpstöðvarinnar,
hefur ekki komið til tals að þeim
reglum verði breytt. „Ástæður fyr-
ir því eru fleiri en ein,“ segir
Tryggvi, „og fyrst að telja að sam-
kvæmt starfsleyfi ber okkur að
vinna að lágmarks áhættu vegna
útbreiðslu smitefna. Hitameð-
höndlunin minnkar líka umfang
úrgangsins og vatnsinnihald hans.
Eftir að hætt var að taka við sorpi
af höfuðborgarsvæðinu, er rúmmál
annars sorps sem þarf til að hylja
sláturúrganginn of lítið, aðallega í
sláturtíð. Ómeðhöndlaður sláturúr-
gangur er mjög blautur og þarf
mikið af þurrefni til að hægt sé að
vinna á urðunarsvæðinu.“
„Það eru ýmsar leiðir til við
förgun sláturúrgangs á viðunandi
hátt,“ segir Cornelis Meyles, sér-
fræðingur hjá Umhverfisstofnun.
„Það er samt ljóst að ein leið er alls
ekki viðunandi og það er urðun
ómeðhöndlaðs sláturúrgangs.“
Á Norðurlandi er unnið að
verkefni um jarðgerð sláturúr-
gangs, en þar eru ekki notaðar
sauðfjárafurðir, vegna hættu á
riðusmiti. Hjá SS er þróun í gangi
um notkun á hakkavél sem enn-
fremur síar vökva úr og síðan eru
þurrefnin urðuð. Slíkt lækkar
flutningskostnað á úrganginum um
40%. Cornelis segir hökkunina
breyta miklu, því órofnar himnur á
líffærunum verji þau fyrir rotnun
og reynslan sýni að sláturúrgangur
rotni jafnvel ekki eftir áratugi á
urðunarstað. „Þetta þarf að skoða
betur,“ segir hann, „og til greina
kemur líka að blanda saman hökk-
uðum og pressuðum sláturúrgangi
og garðaúrgangi til að jarðgera og
stuðla þannig að minnkun úrgangs
til urðunar.“
„Markaðslegar forsendur kjöt-
mjölsverksmiðjunnar breyttust við
kúariðuna,“ segir Torfi, „og síðan
þá hefur verið ljóst að móta þyrfti
nýja stefnu. Það verður hins vegar
ekki gert nema ráðuneyti landbún-
aðar og umhverfismála geri það og
þar á bæjum hafa málin dregist úr
öllu viti. Ég tel lang skynsamlegast
að eyða sláturúrgangi í svona verk-
smiðju, þar eru allir hlutar hans
meðhöndlaðir, þurrefnin, fitan og
vökvinn. Sumt af þessum afurðum
má nýta í skepnufóður eða land-
græðslu og kannski þarf að með-
höndla sauðfjárafurðir sér. Þetta
mál þarf að leysa. KB-banki leysir
það ekki, hann bara lokar ef ráð-
herrar halda áfram að snúa sér und-
an.“ - fía.
Myndlist á
Búnaðarþingi
Ákveðið hefur verið að efna til
myndlistarsamkeppni meðal
grunnskólabarna í tengslum við
næsta Búnaðarþing. Myndirnar
þurfa á einn eða annan hátt að
sýna lífið í íslenskum sveitum.
Myndum á að skila á A4 blöð-
um og á bakhlið þeirra verður
að koma fram nafn, heimili og
sími. Einnig væri gott að fá net-
fang ef um það er að ræða.
Veitt verða þrenn verðlaun í
upphafi Búnaðarþings 6. mars.
Verðlaunamyndirnar verða einnig
birtar í Bændablaðinu. Öll inn-
send listaverk verða hengd upp í
fundarsölum Búnaðarþings.
Börn eru hvött til að taka þátt í
samkeppninni. Myndlistarkennar-
ar eru einnig beðnir um að segja
nemendum sínum frá þessari sam-
keppni. Myndirnar þurfa að hafa
borist til Bændasamtakanna eigi
síðar en 23. febrúar. Nánari upp-
lýsingar gefur Vilborg Stefáns-
dóttir hjá Bændasamtökum Ís-
lands. Síminn er 563 0300.
Minnt á skil fjárbóka
fyrir árið 2004
Eins og fram kom í síðasta blaði
eru skil á fjárbókum frá haust-
inu 2004 þegar mikil. Rétt er
samt að minna á það að loka-
frestur til að skila skýrsluhald-
inu fyrir þá sem eru þátttakend-
ur í gæðastýringu í sauðfjár-
rækt er fyrir 1. mars.
Stærstur hluti fjárbúa í land-
inu er skráður til þátttöku í gæða-
stýringunni þannig að þó að mjög
stór hópur hafi þegar lokið sínum
skilum eru samt fjölmargir sem
þurfa á þeim tæpa mánuði sem
enn er til stefnu að ganga frá sín-
um málum. Á það skal bent að
þeir sem ekki hafa skilað skýrsl-
um fyrir 1. mars og eru skráðir
þátttakendur í gæðastýringu missa
rétt sinn til álagsgreiðslna vegna
gæðastýringar fyrir framleiðsluna
árið 2005.
Stofnað hefur verið á Blönduósi
fyrirtækið Matgæði ehf. Fyrir-
tækinu er ætlað að vera ráðgef-
andi á sviði vöruþróunar, rann-
sókna- og markaðsstarfs hjá fyr-
irtækjum í matvælaiðnaði. Hlut-
verk þess er að stuðla að þróun,
frumkvöðlastarfi og nýsköpun.
Stofnendur eru Blönduósbær,
Sölufélag Austur-Húnvetninga,
Rannsóknarþjónustan Sýni ehf.,
Mjólkursamlag Húnvetninga,
Norðurós ehf., Húnakaup ehf. og
Frumherji hf. - matvælasvið.
Soffía M. Gústafsdóttir, verk-
efnastjóri Matgæða ehf., segir að
byrjað verði á því að ræða við fyr-
irtæki í matvælaiðnaði á Norður-
landi og kanna hvort þau vilja nýta
sér þjónustu fyrirtækisins. Þar er
um að ræða ráðgjöf varðandi vöru-
þróun og markaðsmál sem og
rannsóknavinnu í samstarfi við
rannsóknastofuna Sýni.
Fyrirtækið var stofnað í kjölfar
stefnumótunar í atvinnumálum
sem Blönduósbær gerði þar sem
stefnt er að því að bærinn verði
gerður að sérstökum matvælabæ.
Soffía segir að í raun ætti allt
Norðurland vestra að koma sér
upp ímynd sem matvælasvæði og
segist hún lengi hafa haft áhuga á
að vinna að því máli og nú fái hún
tækifæri til þess í gegnum Mat-
gæði ehf.
Blönduóssbær
óskar skýringa
Bæjarstjórn Blönduóss hefur
óskað skýringa hjá sjávarút-
vegsráðuneytinu á úthlutun
byggðakvóta í desember sl. Jóna
Fanney Friðriksdóttir, bæjar-
stjóri á Blönduósi, sagði að í
fréttatilkynningu frá sjávarút-
vegsráðuneytinu gæfi það sér
ýmsar forsendur og ástæður
fyrir úthlutun til nær allra
byggðalaga en þegar kemur að
úthlutun 69 tonna til Blönduóss
væri alls engin skýring gefin.
Þess vegna sagðist hún hafa rit-
að ráðuneytinu eftirfarandi
bréf.
,,Á fundi bæjarstjórnar hinn
18. janúar sl. var úthlutun byggða-
kvóta samanber reglugerð nr. 960,
6. desember 2004 til almennrar
umfjöllunar.
Samkvæmt töfluyfirlit sem
gefið var út og sýnir úthlutun til
einstakra byggða gefur ráðuneytið
sér ýmsar forsendur svo sem hag-
stæðasta viðmiðunarár, breytingar
á aflaheimildum, punktafjölda og
fleira. Hvað forsendur úthlutunar
fyrir Blönduósbæ og nokkur önn-
ur sveitarfélög varðar koma þess-
ar forsendur þó ekki fram.
Bæjarstjórn Blönduóssbæjar
fer þess því hér með á leit við
sjávarútvegsráðuneytið að skýrðar
verði nánar þær forsendur sem
liggja að baki úthlutun byggða-
kvóta til Blönduósbæjar, saman-
ber reglugerð nr. 960, 6. des.
2004.“
Félag kúabænda á
Suðurlandi 20 ára
Félag kúabænda á Suðurlandi á
20 ára afmæli þann 13. mars
nk. Félagið var stofnað á Hvol-
svelli þann 13. mars 1985. Fé-
lagssvæðið nær yfir Árnes-,
Rangárvalla- og V-Skaftafells-
sýslur. Sigurður Loftsson, for-
maður félagsins, sagði að í und-
irbúningi væri veglegt afmælis-
rit þar sem litið verður til baka
yfir þau 20 ár sem liðin eru frá
stofnun félagsins og þróun í
greininni skoðuð bæði á félags-
legum og faglegum nótum. Þá
verða í ritinu viðtöl við starf-
andi bændur í greininni og aðra
aðila henni tengda þar sem
horft verður til framtíðar.
Aðalfundur Landsambands
kúabænda verður haldinn 8. og 9.
apríl á Hótel Selfossi og endar á
árshátíð kúabænda laugardags-
kvöldið 9. apríl. Segir Sigurður að
það megi telja hápunkt afmælisins
enda sé ekki ætlunin að setja fé-
lagið sem slíkt á oddinn heldur
greinina sjálfa.
Öllu starfsfólki kjötmjölsverksmiðju Förgunar á
Suðurlandi var sagt upp um síðustu mánaðamót,
með þriggja mánaða uppsagnarfresti. Torfi Ás-
kelsson, framkvæmdastjóri verksmiðjunnar, segir
ekki ljóst á þessi stigi hvort verksmiðjan muni
starfa allan þann tíma. KB-banki eignaðist verk-
smiðjuna eftir að fyrri rekstraraðili varð gjald-
þrota. Helgi Sigurðsson, lögfræðingur bankans,
segir viðræður hafa átt sér stað við bæði umhverf-
is- og landbúnaðarráðuneyti um framtíð verk-
smiðjunnar. „Verksmiðjan er og hefur verið rekin
með halla síðan hún hætti að geta framleitt fyrir
sölumarkað eftir að kúariðan breytti öllum kjöt-
mjölsmarkaði,“ segir Helgi. „Ef stjórnvöld vilja
fara þessa leið í förgun sláturúrgangs verða þau að
tryggja fjárhagslegan grundvöll reksturs verk-
smiðjunnar, með úrvinnslugjaldi eða á annan
hátt.“
Kjötmjölsverksmiðja Förguna
Kjötmjölinu verður lokað
Matgæði ehf. á Blönduósi
Nýtt ráðgjafar- og markaðsfyrirtæki
Hér má sjá Vattarnesvita á Vattarnesi við Reyðarfjörð. Vitinn var reistur árið 1957 og er steinsteyptur. Vita-
turninn sjálfur er 9,3 m hár en með ljóshúsi er hann 12,3 m á hæð. Ljóshúsið er sænskt, úr járnsteypu, og
var á vita sem stóð á Vattarnesi árin 1912 til 1957. Birtuskilyrði voru afar sérstök þegar myndin var tekin í
lok janúar. Ef vel er að gáð má sjá mánann glenna sig efst á myndinni.
Innganga í Ferða-
þjónustu bænda
Þeir bændur sem hafa hug á
aðild að Félagi ferðaþjón-
ustubænda og komast í bæk-
ling Ferðaþjónustu bænda
fyrir sumarið 2005 eru beðn-
ir um að senda inn umsókn
fyrir 22. febrúar. Vinna við
útgáfu íslenska bæklingsins
er komin í gang og verður
hann tilbúinn fyrir Ferða-
torgið sem haldið verður 2.
og 3. apríl. Nánari upplýs-
ingar varðandi leyfi, flokkun
gistingar og umsóknareyðu-
blöð er að finna á heimasíð-
unni www.sveit.is. Þá er
einnig hægt að hafa samband
við Berglindi gæðastjóra í
síma 570-2707.