Bændablaðið - 08.02.2005, Qupperneq 12
Fyrir skömmu var kynnt ný
skýrsla nefndar sem fjallað hef-
ur um heimasölu afurða bænda.
Mikill áhugi er hjá bændum að
fá að selja ferðamönnum mat-
væli sem búin væru til heima á
bæjunum eins og víða er gert í
Evrópu. Bændur geta að vísu
komið sér upp aðstöðu til að
framleiða mat til sölu en kröfur
Evrópusambandsins eru svo
strangar að það kostar milljónir
að koma upp slíku eldhúsi. Á
fréttamannafundinum var ein-
mitt boðið upp á marga alís-
lenska rétti og var þar mikið
sælgæti á ferðinni.
Guðni Ágústsson landbúnað-
arráðherra, sem stýrði frétta-
mannafundinum, sagði í samtali
við Bændablaðið að hann teldi
þróunina í þessum málum hafna
hér á landi og að ekki yrði aftur
snúið. Hann sagði mikinn áhuga
hjá bændum að koma sér upp að-
stöðu til matsendar til að mæta
óskum bæði innlendra og erlendra
ferðamanna um íslenskan heima-
tilbúin mat.
,,Ég tel mjög mikilvægt að
fylgja þessari skýrslu fast eftir í
samstarfi milli margra ráðuneyta,
Bændasamtakanna og ferðaþjón-
ustubænda,” sagði ráðherra.
Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdótt-
ir, lögfræðingur í landbúnaðar-
ráðuneytinu, var formaður nefnd-
arinnar sem samdi skýrsluna. Hún
sagði að þau Marteinn Njálsson,
formaður Félags ferðaskrifstofu-
bænda, hefðu farið til Noregs á
síðasta ári til að kynna sér stöðu
þessara mála í þar. Sagði hún
Norðmenn vera komna mun
lengra í þessum málum en Íslend-
ingar. Þeir hefðu sankað að sér
efni um boð og bönn Evrópusam-
bandsins. Í þeim væri ýmislegt
sem hægt er að komast fram hjá
eða reyna að fá undanþágu frá.
Norðmenn eru að semja viðmið-
unarreglur í málinu og munu Ís-
lendingar fá þær í hendur þegar
þær verða tilbúnar.
Í nefndinni áttu sæti auk Ingi-
bjargar Ólafar, Marteinn Njáls-
son, formaður Félags ferðaþjón-
ustubænda, Baldvin Valgarðsson,
forstjóri á matvælasviði Umhverf-
isstofnunar, Laufey Haraldsdóttir,
dýralæknir og kennari við Hóla-
skóla og Bjarni Guðmundsson,
prófessor við Landbúnaðarhá-
skóla Íslands. Í skýrslunni leggur
nefndin til átta tillögur í málinu
sem beinast annarsvegar að bænd-
um sjálfum og hins vegar ríkis-
valdinu.
12 Þriðjudagur 8. febrúar 2005
!" "
#! $%!&'(") !"'" )
#! "*+),,!$!-$ !-. ) " "'(% /)
*0$#1 /)!! ! 2 0 " %$!)
/1 !'(")*0$%!! /.)3! )'4!$ ) %$!"!! 0//! 2- )*0 $/)1/! )"
% )!) " "'(% /)*0#/
$#&'5 '6 )'!$)+7)')" " !)" "#! #8 !&1/!/
!$6) !) ! " " 3 ! ) !
9)":
;.%!/"$ ) ! " "/)
! ) /<. )=! !>:
;?
!
)/"97,/)" "/
! )$"!+7) @/! A5!
"B ) =/%,'" "/!"/)!
/!)$ .%!/"$ ) < 2CCD"
1 /%! $0 !E" ) " "
/)-#=" - % . ! '
)" "?
#! " "$/)#6 !/ =
A") ! 'D !! !FG" "
-$) $ ! /!/* !- $ #)% /
"$/!# # )@ 1 # *
# ") $.$) ) )! /! ! ) -6$H'" )6/+/ #" " +7)" ""/ $#F&'5 '6 )?
!"
Mikil ánægja kom fram á frétta-
mannafundinum þar sem skýrsla um
heimasölu afurða bænda var kynnt.
Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri
Ferðaþjónustu bænda, þakkaði landbún-
aðarráðherra fyrir það að hafa komið
þessu máli af stað. Hann sagði það hafa
verið mjög í umræðunni hjá ferðaþjón-
ustubændum að koma þessu máli í
kring. Það væri heiður fyrir Ferðaþjón-
ustu bænda að fá að taka þátt í svona
verkefni því það væri mikilvægt að
koma að málinu strax í byrjun. Hann
benti á að þegar ferðast er um Evrópu
sæju menn einmitt svona heimafram-
leiðslu til sölu á mörgum bæjunum. Það
væri mikil sérstaða fyrir íslenska bænd-
ur að geta boðið upp á þjónustu sem
þessa.
Haraldur Benediktsson, formaður
Bændasamtaka Íslands, byrjaði á að
þakka nefndinni fyrir hennar störf.
Sagði hann skýrsluna vel unna og í anda
þess sem um hefur verið rætt á vettvangi
bænda. Haraldur sagði að ferðaþjónust-
an væri sú búgrein sem væri hvað fram-
sæknust við að leita nýrra leiða og hafi
átt hvað mestan þátt í því að styrkja
byggðirnar í sveitunum.
Varðandi boð og bönn við að selja
ferðamönnum mat tók Haraldur dæmi af
því að ef bændur fá iðnaðarmenn til sín
er þeim boðið að borða með heima-
mönnum og það er allt í lagi. Ef selja
ætti iðnaðarmönnunum matinn þá mætti
það alls ekki því þá þyrftu bændur að
uppfylla aðrar reglur. Hann sagði að
heimavinnsla matvæla væri menning til
Sláturhús í endurnýjun lífdaga?
Þegar að því kemur að bændur fara að selja heimaafurðir sínar
þarf aðstöðu til slátrunar á því sauðfé eða öðrum gripum sem nota
á í þessa matargerð eða sölu. Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra staðfesti í samtali við Bændablaðið að upp hefði skotið
þeirri hugmynd að nota sláturhús SS við Laxá í Leirársveit til
þessa. Ekkert hefði þó verið ákveðið í málinu.
Sláturhúsinu var lokað vegna þess að það stenst ekki kröfur Evr-
ópusambandsins og Bandaríkjanna um búnað þar sem slátrað er fé til
kjötútflutnings. Húsið er samt í hinu besta ástandi og gæti vel hentað
til þessa verkefnis.
Það helsta í tillögunum er að
bændur sem nýta vilja sér
heimasölu afurða, efli með sér
samtök til þess að skilgreina og
fylgja eftir þeirri þörf sem hér
virðist vera til staðar. Að stjórn-
völd og yfirumsjónaaðilar eftir-
lits flýti þeirri vinnu sem hafin er
við að einfalda framkvæmd eft-
irlits með frumframleiðslu, fram-
leiðslu og dreifingu matvæla.
Að kannaður verði með áhættu-
mati grundvöllur tilslakana á
kröfu um gerilsneyðingu mjólk-
ur og mjólkurvara þegar um
milliliðalausa sölu frá frumfram-
leiðanda er að ræða..
Að stjórnvöld við mótun reglna
gæti eðlilegs samræmis um
heilbrigðis- og hollustukröfur á
milli afurða að teknu tilliti til mis-
munandi eðlist þeirra. Að sam-
tök bænda gefi út handbók með
öllum helstu upplýsingum um
lög og reglur sem í gildi eru. Að
þeim aðilum sem hefja vilja
heimavinnslu og sölu afurða
verði gefin kostur á tilhlýðileg-
um námskeiðum um viðfangs-
efnið.
Að stjórnvöld og bændur leiti
samninga um að ákveðinn hluti
mjólkurframleiðslu verði heimil-
aður til nota í heimavinnslu.
Þannig verði ákveðnum hluta
mjólkurframleiðslunnar haldið
fyrir utan búvörusamninginn.
Að samtökin sbr. 1. tillögu leiti
eftir fjármunum til að standa
straum af ráðgjöf og þekkingar-
miðlun um viðfangsefnið til
dæmis með 5 ára verkefni sem
verði á ábyrgð Bændasamtaka
Íslands og/eða landbúnaðar- og
umhverfisráðuneyta.
Ný skýrsla nefndar sem fjallað
hefur um heimasölu afurða bænda
Skýrslunni
fagnað