Bændablaðið - 08.02.2005, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 8. febrúar 2005 13
Umsóknir um
styrki vegna 5 gr.
aðlögunarsamnings
Samband garðyrkjubænda auglýsir eftir umsóknum
um styrki vegna framlaga til kynninga-, rannsókna-,
þróunar- og endurmenntunarverkefna sbr. 5. gr.
aðlögunarsamningsins milli ríkisstjórnar Íslands og
Bændasamtaka Íslands/Sambands garðyrkjubænda.
Hvað vöruþróun og kynningar þeirra varðar
sérstaklega þá er stefnt að því að verja 20 m. kr. á ári
á árunum 2005-2007 í grænmeti og kartöflur. Sækja
skal um vegna vöruþróunar almennt en ekki einstakra
verkefna. Styrkveitingar eru háðar því að
umsækjendur hafi mótað vöruþróunarstefnu, hafi virkt
vöruþróunarferli og ætli nægilegan manntíma og
fjármuni í vöruþróun og kynningar. Framkvæmdastjóri
og stjórn Sambands garðyrkjubænda munu reglulega
forgangsraða verkefnum innan ofangreinds í
samræmi við arðsemina fyrir garðyrkjubændur.
Einungis eru veittir styrkir vegna beins útlagðs
kostnaðar (t.d. geymsluþolsmælingar og
markaðsrannsóknir) en ekki venga mannahalds eða
aðstöðu, þ.m.t. vélakaupa.
Þeir sem óska eftir frekari upplýsingum um ofangreint
er bent á að senda tölvupóst á fridrike@lbhi.is.
Umsóknarfrestur um styrki vegna 5. gr.
aðlögunarsamningsins rennur út 1. mars nk. og skulu
sendar á netfangið hér að ofan.
Stjórn Sambands garðyrkjubænda
!!" # "
$
%
&
'
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+ Hann sagðist í samtali við
Bændablaðið vera vongóður um
að þetta mál verði leyst innan tíðar
og að bændur fái að selja afurðir
sínar beint til neytenda. Hér er ver-
ið að tala um heimaunnin matvæli
yfirleitt eins og ferðamenn geta
keypt hjá bændum í Þýskalandi og
raunar víðar.
,,Það sem gerðist í þessu máli
var að við Íslendingar tókum allar
reglur Evrópusambandsins upp
óbreyttar. Hins vegar veit ég að í
löndunum innan ESB er hægt að fá
undanþágur sem byggðar eru á
sérstöðu. Ég fullyrði að óvíða er
meiri sérstaða en hér á landi. En
því miður voru allar reglur ESB
um þetta mál teknar hérna upp og
þær hreinlega kokgleyptar. Engar
athugasemdir voru gerðar og ekki
óskað eftir neinum undanþágum,“
segir Ágúst.
Hann bendir á að forsvars-
menn norska landbúnaðarins séu
nú á kafi í vinnu við að fá undan-
þágur vegna nýrrar reglugerðar
ESB um hollustuhætti á matvæla-
sviðinu sem taka eiga gildi frá og
með 1. janúar 2006. Samkvæmt
þeim reglum hefur hvert land
nokkurt svigrúm til að setja sér
sérstakar reglur um milliliðalaus
viðskipti framleiðanda/bónda og
neytenda þegar um er að ræða lítið
magn. Þess má geta að nefnd fór
héðan til Noregs í fyrra að kynna
sér hvað þarlendir væru að gera í
þessum efnum.
Ágúst Sigurðsson sagðist ekki
sjá nein rök fyrir því að banna
bændum að selja afurðir sínar
beint til neytenda, að uppfylltum
tilteknum skilyrðum. Þess vegna
hlyti þetta að verða leyft fyrr en
seinna.
að viðhalda ákveðinni þekkingu. ,,Heill
þeim sem hófu þorramatinn okkar til
vegs og virðingar aftur fyrir 50 árum
eða svo,“ sagði Haraldur og tók fram að
Bændasamtökin lýsi yfir fullum vilja til
að koma að þessu starfi áfram. Hann
lýsti yfir ánægju með viðtökurnar sem
Þorrabjórinn, bruggaður úr íslensku
byggi, fékk og sagði mikinn áhuga á að
halda áfram slíku ,,bruggeríi“.
Marteinn Njálsson, formaður Félags
ferðaþjónustubænda, sagði að nefndin
hefði komist að því að lög og reglur
væru ekki óhagstæðar bændum. Það
færi eftir því hvernig embættismenn
túlka reglugerðir og lög hver útkoman
væri. Matvælalöggjöfin í Evrópu væri
að vísu ströng en síðan koma þessi und-
anþáguákvæði sem verða að vera til að
skapa svigrúm fyrir sumar þær þjóðir
sem eru nýkomnar inn í Evrópusam-
bandið. Þess vegna væri nauðsynlegt að
láta framkvæma áhættumat þar sem vís-
indamenn yrðu fengnir til að fara yfir
skoðanir bænda á málinu.
Bændur sækja á um
að fá að selja afurðir
sínar beint til neytenda
Félag ferðaþjónustubænda hefur óskað eftir því að Búnað-
arþing 2005 feli stjórn Bændasamtaka Íslands að skoða
áfram möguleika bænda á að selja afurðir sínar beint til
neytenda, líkt og víða er gert í nágrannalöndunum. Vísað er
til skýrslu nefndar sem landbúnaðarráðherra skipaði um
heimasölu afurða bænda. Gert er ráð fyrir að skýrslan
komi út í febrúar. Það var Ágúst Sigurðsson, bóndi í Geitar-
skarði, sem sendi erindið inn til Bændasamtakanna í um-
boði stjórnar Félags ferðaþjónustubænda.