Bændablaðið - 08.02.2005, Síða 15
Þriðjudagur 8. febrúar 2005 15
Einar K. Guðfinnsson alþingis-
maður hefur lagt fram á Alþingi
frumvarp til laga um breytingu
á lögum um afréttarmálefni,
fjallskil o.fl., nr. 6/1986, með síð-
ari breytingum. Í frumvarpinu
stendur að í stað orðanna „12
vikna innlausnarfresti“ í 1.
málsl. 4. mgr. 59. gr. laganna,
komi fjögurra vikna innlausnar-
frestur.
Einar Kristinn segir í greinar-
gerð að með frumvarpi þessu sé
ætlunin að gera breytingar á regl-
um um meðferð óskilapenings,
hrossa og nautgripa, sem sam-
kvæmt gildandi lögum er heimilt
að selja að kröfu hreppstjóra við
nauðungarsölu með tólf vikna inn-
lausnarfresti án þess að sérstakrar
áskorunar sé þörf til eiganda.
Með gildistöku reglugerðar nr.
463/2003, um merkingu búfjár, er
skylt að einstaklingsmerkja (ör-
merkja) hross sem fædd eru eftir 1.
janúar 2003 og samkvæmt ákvæði
til bráðabirgða er skylt að merkja
alla nautgripi fædda eftir 1. sept-
ember 2003 með plötumerki eða
rafrænu merki og skulu allir naut-
gripir merktir í samræmi við regl-
urnar frá 1. janúar árið 2005. Þá
hefur verið nokkuð gert sl. ár í að
merkja eldri hross sérstaklega og
hefur því tilvikum fækkað þar sem
þurft hefur að selja óskilapening á
uppboði.
Tólf vikna innlausnarfrestur
fyrir eigandann er því ekki lengur
nauðsynlegur og afar langur sé lit-
ið til hagsmuna þess er kaupir
óskilapeninginn á uppboði og get-
ur átt von á því í tólf vikur að eig-
andinn komi og nýti sér brigðarétt.
Breytingin mun einnig virka hvetj-
andi á eigendur hrossa og naut-
gripa til að vera með fullnægjandi
merkingar.
Sorpstöð Rangár-
vallasýslu þarf
aukið landrými
Sorpstöð Rangárvallasýslu hef-
ur haft á leigu landspildu til
urðunar á sorpi að Strönd en
landið er í eigu Rangárþings
ytra. Nú er farið að þrengja að
sorpstöðinni og hefur hún gert
tilboð í 28 hektara lands að
Strönd.
Viðræður hafa farið fram milli
sorpstöðvarinnar og eignaumsjón-
ar Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Valtýr Valtýsson, formaður stjórn-
ar eignaumsjónar, sagði að málinu
hafi verið vísað til sveitarfélag-
anna en svör ekki borist enn. Hann
segir sorpstöðina ekki komna í
landþurrð enn þá en að ekki sé
langt í að hún þurfi meira land.
Vill stytta þann tíma sem
hreppstjórar þurfa að
geyma óskilapening
www.bondi.is