Bændablaðið - 08.02.2005, Síða 17
„Tilgangur heimsóknarinnar
hingað til Íslands er að skoða að-
búnað sauðfjárins og það er lið-
ur í að fræðast um allan feril
framleiðslunnar á lambakjötinu
sem við seljum. Við förum milli
landa með þessum hætti og
kynnum okkur mismunandi
framleiðsluaðstæður fyrir sauð-
fjárafurðir á hverjum stað. Við
seljum lambakjöt frá Nýja-Sjá-
landi, vestursvæðum Bandaríkj-
anna og Íslandi og þótt margt sé
líkt í framleiðslunni þá eru líka
margir þættir mjög ólíkir. Eitt
þeirra atriða sem til dæmis
skapar sérstöðu er þessi innivera
dýranna hér á Íslandi sem er
ólík því sem gerist á Nýja-Sjá-
landi og í Bandaríkjunum.
Heimsókn okkar núna um miðj-
an vetur miðar að því að auka
vitneskju okkar um aðbúnað
dýranna og þær framleiðsluað-
stæður sem þið búið við,“ segir
Margret Wittenberg frá banda-
rísku matvælakeðjunni Whole
Foods sem selur lambakjöt frá
Norðlenska. Fulltrúar fyrirtæk-
isins og frá bandarískum dýra-
verndunarsamtökum heimsóttu
fjögur sauðfjárbýli í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslum á dögunum.
Heimsóknin er liður í starfi inn-
an fyrirtækisins að móta staðla
sem verður að uppfylla til að fá
að selja lambakjöt innan keðj-
unnar og er ljóst að íslenska
kjötið á mikla möguleika á að
komast í hæsta gæðaflokk, sem
aftur getur leitt til hærra verðs
og aukinna tækifæra í sölu hjá
verslunum innan keðjunnar.
Þeir bæir sem hópurinn heim-
sótti voru Laufás í Grýtubakka-
hreppi, Þverá í Dalsmynni, Sýr-
nes í Aðaldal og Ingjaldsstaðir í
Þingeyjarsveit. Með hópnum í
för voru fulltrúar Norðlenska,
Bændasamtaka Íslands, Búnað-
arsambands Suður-Þingeyjar-
sýslu og fleiri.
„Fyrirtæki okkar starfar með
fjölmörgum dýraverndunarsam-
tökum og í gegnum þá samvinnu
mótum við kröfur sem framleið-
endur þurfa að uppfylla til að við
tökum framleiðslu þeirra í sölu.
Viðskiptavinir okkar eru mjög
kröfuharðir og þeir krefjast upp-
lýsinga, ekki bara um framleiðend-
urna sem slíka heldur ekki síður
hvernig aðbúnaður dýranna er.
Viðskiptavinir okkar ætlast til þess
að við gerum miklar kröfur til
þessa þáttar og spyrja spurninga
þannig að við verðum að vinna
okkar heimavinnu og vera tilbúin
að svara. Viðskiptavinir Whole
Foods krefjast mun meiri upplýs-
inga en venjulegir kjörbúðarvið-
skiptavinir gera og sem dæmi má
nefna að þeir vilja vita hvers vegna
kindurnar á Íslandi eru á húsum
stóran hluta úr árinu þegar slíkt er
ekki gert annars staðar. Þeir krefj-
ast þess um leið af okkur að vissa
sé fyrir því að aðbúnaður sé allur
eins og best verður á kosið,“ segir
Margret Wittenberg.
Whole Foods rekur 160 versl-
anir í Bandaríkjunum, Bretlandi og
Kanada og hefur um nokkurra ára
skeið selt lambakjöt frá Norð-
lenska og er kjötinu dreift fersku á
markaðinn á tímabilinu ágúst -
desember. Í ár fóru um 100 tonn
frá Norðlenska í verslanir Whole
Foods. En hvað segir Margret Wit-
tenberg um gæði íslenska lamba-
kjötsins. Hvað segja viðskiptavinir
Whole Foods?
„Þeim þykir íslenska kjötið
frábærlega gott, bæði bragðgott og
áferðarfallegt kjöt. Það myndast
alltaf eftirvænting þegar íslenska
kjötið kemur á markaðinn,“ sagði
Margret Wittenberg og lýsti
ánægju sinni með þau sauðfjárbú
sem hún sá í Íslandsheimsókninni.
Aukinn útflutningur
og hærra verð?
Sigmundur Ófeigsson, fram-
kvæmdastjóri Norðlenska, segir
heimsókn hópsins frá Whole
Foods mjög mikilvæga og von-
andi skref í þá átt að tryggja ís-
lenska lambakjötinu enn betri sess
innan Whole Foods keðjunnar.
„Vinnu við mótun þessara
staðla og krafna sem Whole Foods
setur gæti lokið í vor og fari allt á
besta veg getur það skilað okkur
5-7% hækkun á verði. Íslenska
kjötið á mikla möguleika á að ná
inn í hæsta gæðaflokk og það þýð-
ir að það fær betra hillurými í
verslununum og meiri athygli. Við
vitum að eitt af því sem hefur þótt
athugavert er hversu lengi sauðfé
er lokað á húsi hjá okkur en ég
hygg að heimsóknin núna hafi
aukið skilning á því hvaða ástæð-
ur eru fyrir því. Í öðru lagi eykst
skilningurinn á því að lömbin eru
ekki hýst heldur ganga á fjalli
nánast frá fæðingu og fram til
slátrunar en það eru vissulega
þættir sem dýraverndunarfólk
spyr um, líkt og hvers vegna
klippt er í eyrun á kindunum og
fleira. Aðbúnaður dýranna og
meðferð er ekki síður mikilvægur
þáttur en kjötið sjálft,“ segir Sig-
mundur.
Aðspurður segir Sigmundur að
sala til Whole Foods geti átt eftir
að aukast, jafnvel um helming.
„Kröfurnar eru mjög miklar innan
Whole Foods og varan seld dýru
verði. Eftirspurninni er því hægt
að stjórna nokkuð með verðlagi en
okkur sýnist að það sé vel raun-
hæft að selja um og yfir 200 tonn
og það ráðum við auðveldlega við.
Í framhaldi af þessum nýju stöðl-
um hjá Whole Foods erum við
þegar byrjuð að huga að því innan
Norðlenska að útfæra kröfur sem
við þurfum að gera til okkar fram-
leiðenda. Það er ljóst að þeir þurfa
að undirgangast þær til að fá að
koma kjöti í þennan útflutning en
um leið fá þeir að njóta þess í
verðinu fyrir framleiðsluna. Það
fæst gott verð fyrir framleiðsluna
nú en okkar vandi sem stendur er
gengi krónunnar. Þær ytri aðstæð-
ur breyta hins vega ekki því að við
vinnum að því af fullum krafti að
auka við söluna til Whole Foods
og ná hærra afurðaverði,“ segir
Sigmundur Ófeigsson, fram-
kvæmdastjóri Norðlenska.
Þriðjudagur 8. febrúar 2005 17
STALDREN
FÓÐURBLANDAN HF.
Korngarðar 12 Rvík.
FB Selfossi
FB Hvolsvelli
Bústólpi Akureyri
Sími 570 9800
Fax 570 9801
www.fodur.is
Komum í veg fyrir smit-
notum viðurkennd
sóttvarnarefni.
STALDREN er borið undir bú-
fénað. Einstök samsetning
náttúrulegra efna veldur því að
efnið er skaðlaust mönnum og
dýrum en stórskaðlegt sýklum
og annari óáran.
Fulltrúar Whole Foods í Bandaríkjunum í heimsókn á sauðfjárbúum norðan heiða:
Kynntu sér aðbúnað íslenska
sauðfjárins að vetrarlagi
- íslenska lambakjötið á möguleika á að standast hæstu gæðastaðla Whole Foods sem nú
eru í mótun í samstarfi fyrirtækisins og bandarískra dýraverndunarsamtaka
Hér má sjá Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóra Bændasam-
takanna, ræða við gesti í fjárhúsinu á Þverá.
Sigmundur Ófeigsson, framkvæmastjóri Norðlenska, ræðir málin í
fjárhúsinu í Laufási.
!" #$ &
' () *