Bændablaðið - 08.02.2005, Síða 21
Þriðjudagur 8. febrúar 2005 21
Fjós eru okkar fag
Landstólpi ehf.
Lárus Pétursson Arnar Bjarni Eiríksson
s: 4370023 / 8694275 s: 4865656 / 8989190
Mikið úrval tæknibúnaðar í fjós:
Weelink - fóðrunarkerfi
o www.weelink-systems.nl
Básamilligerðir og átgrindur
o www.dcedrachten.nl
Básadýnur
o www.promatltd.com
Steinrimlar
o www.appelbeton.nl
Flórsköfukerfi
o www.dairypower.ie
Uno Borgstrand náttúruleg loftræsting
o www.uba.se
Kjarnfóðurbásar og kálfafóstrur
o www.urbanonline.de
Propydos - súrdoðabrjótur
o www.propydos.nl
Plastgrindur í gólf
o www.carfed.ch
Þráðlausar eftilitsmyndavélar
o www.lynx-systemes.com
Fjósbyggingar - Hönnun og ráðgjöf
Þann 1. janúar sl. sameinuðu
Límtré hf. og Vírnet Garðastál
hf. innlendan rekstur sinn og
heitir hið nýja sameinaða fyrir-
tæki Límtré Vírnet ehf. Fram-
kvæmdastjóri Límtrés Vírnets
ehf. er Stefán Logi Haraldsson,
sem áður var framkvæmdastjóri
Vírnets Garðastáls hf.
Fyrirtækin hafa undanfarin ár
haft með sér samstarf en stíga nú
skrefið til fulls og sameinast.
Um leið var stofnað nýtt fyrir-
tæki LVG International ehf. sem
sjá mun um erlenda starfsemi sam-
stæðunnar Límtré Holding hf. sem
er eigandi beggja fyrirtækjanna.
Stjórnarformaður fyrirtækj-
anna er Hörður Harðarson og
framkvæmdastjóri LVG Interna-
tional er Guðmundur Ósvaldsson,
sem áður var framkvæmdastjóri
Límtrés.
Fyrirtækin Límtré hf. og Vír-
net Garðastál hf. hafa verið rótgró-
in fyrirtæki á íslenska bygginga-
markaðnum og þjónað honum um
áratuga skeið. Límtré hf. var
stofnað árið 1982 að Flúðum í
Hrunamannahreppi og hefur frá
upphafi framleitt límtré, eins og
nafnið gefur til kynna, ásamt því
að annast hönnun og tæknilausnir
á því efni. Árið 1991 kom Límtré
hf. að stofnun og byggingu ein-
ingaverksmiðjunnar Yleininga, í
Reykholti, Biskupstungum, þar
sem framleiddar hafa verið húsein-
ingar með stályfirborði. Fyrirtæk-
ið yfirtók síðan þennan rekstur ár-
ið 1995. Vírnet hf. var stofnað ár-
ið 1956 í Borgarnesi, þar sem upp-
haflega var eingöngu um að ræða
framleiðslu á nöglum og vír en
síðar völsun á klæðningarefni úr
stáli og fleiri málmum, ásamt ým-
iss konar þjónustustarfsemi. Bæði
þessi fyrirtæki hafa verið kjölfesta
í atvinnulífi sinna sveitarfélaga allt
frá sofnun þeirra.
Það var síðan á miðju árinu
2000 að Límtré keypti Vírnet og í
framhaldinu Garðastál í Garða-
bænum og var rekstur þeirra fyrir-
tækja síðan sameinaður í byrjun
árs 2001, undir nafni Vírnets
Garðastáls og framleiðslunni allri
komið fyrir í Borgarnesi. Í lok árs-
ins 2002 var síðan fyrirtækið Lind-
ax keypt og sameinað rekstri Vír-
nets Garðastáls.
Vírnet Garðastál hf. hefur ver-
ið rekið sem sjálfstætt dótturfélag
Límtrés hf. en samstarfið á milli
fyrirtækjanna hefur verið töluvert
mikið.
Það lá því beinast við að þessi
tvö öflugu fyrirtæki á landsbyggð-
inni sameinuðust og sú varð raunin
1. janúar sl. Samhliða sameining-
unni átti sér stað mikil endurskipu-
lagning á öllum rekstri fyrirtækj-
anna og liður í því er aðgreining á
milli innlendrar og erlendrar starf-
semi. Stofnað hefur verið eignar-
haldsfélag um reksturinn, Límtré
Holding hf., en eigendur þess eru
hluthafar Límtrés hf. LVG Inter-
national ehf. mun alfarið sjá um
rekstur verksmiðja í Portúgal og
Rúmeníu, auk þess að vinna að
frekari útrás og fjárfestingartæki-
færum á erlendri grund. Límtré
Vírnet ehf. einbeitir sér að inn-
lendum markaði hvað varðar fram-
leiðslu, sölu og þjónustu við bygg-
ingariðnaðinn.
Markmið Límtrés Vírnets ehf.
er að veita enn meiri og betri þjón-
ustu við byggingamarkaðinn en
áður. Gildi fyrirtækisins eru alveg
skýr en þau eru; Áreiðanleiki -
Þjónusta - Árangur
Fréttatilkynning
Límtré hf. og Vírnet
Garðastál hf. sameinast
Óvíða á landinu er meiri ferða-
þjónusta en í uppsveitum Árnes-
sýslu og því til sönnunar má
nefna að árið 2004 heimsóttu
415 þúsund gestir, innlendir og
erlendir, uppsveitir Árnessýslu.
Ásborg Arnþórsdóttir er ferða-
málafulltrúi svæðisins. Hún
sagði í samtali við Bændablaðið
að markvisst hafi verið unnið á
svæðinu samkvæmt stefnumót-
un í ferðaþjónustu í mörg ár og
ber stefnan heitið ,,Gæði og gest-
risni“, Á síðasta ári var stefnan
svo endurskoðuð og metin og
horft til framtíðar. Fjöldi heima-
manna tók þátt í vinnunni og
komu fram margar skemmtileg-
ar hugmyndir.
Ein þeirra var að veita Gæða-
og gestrisni viðurkenningu fyrir
vel unnin störf í ferðamálum og
sem kallast Uppsveitabrosið. Við-
urkenningin var afhent í fyrsta
sinn fyrir árið 2004 og hlaut
Ferðaþjónusta bænda viðurkenn-
inguna.
Ásborg segir að gestum sem
heimsækja uppsveitir Árnessýslu
fjölgi ár frá ári og uppbygging
ferðaþjónustu á svæðinu sé mikil.
Víða sé fólk að stækka við sig,
bæði ferðaþjónustubændur og hót-
eleigendur.
,,Við höfum unnið eftir stefn-
unni í nokkur ár og við endurskoð-
un okkar á henni í fyrra kom margt
athyglisvert fram sem gerst hefur á
þessu sviði. Meðal þess var fjölg-
un starfa í ferðaþjónustu og t.d. í
Bláskógabyggð vinna nú fleiri við
ferðaþjónustu en hefðbundinn bú-
skap og garðyrkju og hin sveitarfé-
lögin þrjú fylgja fast á eftir. Í upp-
sveitum Árnessýslu störfuðu 235
manns að ferðaþjónustu árið 2003.
Hafði fjölgað um 38% á 6 árum.
Þá má einnig geta þess að sumar-
húsin á svæðinu eru á fimmta þús-
und en íbúar svæðisins eru um
2.500,“ sagði Ásborg.
Hún bendir á að það þurfi
nokkuð til að taka á móti 415 þús-
und gestum á ári auk þess að þjón-
usta sumarhúsaeigendurna. ,,Og
það er ekkert smáræðis álag á veg-
ina í uppsveitunum þegar umferð-
in er mest yfir hásumarið,“ sagði
Ásborg Arnþórsdóttir.
Traktor 2005
Við eigum til nokkur
eintök af tímaritinu
Traktor 2005.
Verð kr. 1.480.
Sendum í
póstkröfu.
Síminn er
563 0300
Tvær milljónir króna í viðgerðir á mann-
gerðum hellum í Rangárþingi eystra
Fjárlaganefnd Alþingis hefur veitt 3ja milljóna króna styrki árin
2003 og 2004 til viðgerða á manngerðum hellum í Rangárþingi
ytra. Unnið hefur verið við hellinn að Hellum í Landsveit. Von-
ast er til þess að sá hellir verði orðinn í sýningarhæfu ástandi að
viðgerðum loknum. „Horfur eru á því að fjárlaganefnd veiti
styrk að nýju þó hann verði eitthvað lægri (2 milljónir króna) á
árinu 2005 og verður þá væntanlega unnt að hefja viðgerðir á
fleiri hellum í sveitarfélaginu,“ sagði Guðmundur Ingi Gunn-
laugsson, sveitarstjóri Rangárþings eystra, í samtali við blaðið.
MHH
Ferðaþjónusta bænda
fékk Uppsveitabrosið